Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 8

Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 8
Húsnæði - atvinna Eins og margar kvennalistakonur vita er hér á landi stödd ung þýsk vísindakona Moniká Brandmair aö nafni.sem er aö skrifa bók um Kvennalistann. Hún hefur dvaliö hér síöan í mars sl. og ætlar aö vera fram í september. Monika verður húsnæöislaus þann 15.júlí og þarf aö fá inni einhverstaðar í Reykjavík. Hún gerir ekki miklar kröfurtil lífsins, er fyrirferöarlítil og til í aö taka aö sér létt húsverk, barnapössun og annað tilfallandi í staðinn. Mónika er farin aö skilja töluvert í íslensku og talar svolítiö. Þar aö auki talar hún ágæta ensku. Þær sem hafa herbergi eöa annaö húsnæöi laust þennan tíma vinsamlega látið vita á skrifstofu Kvennalistans eins fljótt og hægt er. Mónika er félítil og vill gjarnan vinna svolítiö fyrir sér milli skrifta. Hún getur tekiö aö sér vélritun á ensku og þýsku, einkakennslu í þessum málum, passaö börn og fleira. Móníka er sködduö á mjööm og getur því illa tekiö aö sér mikla erfiöisvinnu en er til í allt annaö. Þeir sem hafa einhverja íhlaupavinnu fyrir hana vinsamlega látiö vita á skrifstofunni í síma 13725. írsk stúlka er einnig á leið til landsins til aö kynna sér Kvennalis- tann. Hún veröur á íslandi í 2 vikur í sumar, frá 21. júlí og fram í fyrstu viku af ágúst, en hún áætlar aö koma aftur seinna. Hún er einnig aö leita aö ódýru (helst ókeypis) húsnæöi þennan tíma. Vera Eins og fram hefur komið var lagt til á Vorþingi Kvennalistans í Skálholti aö Kvennalistinn hætti aö styöja Veru í þaö minnsta gætu Samtökin ekki látiö meira fé renna til hennar á þessu ári. Margar kvenfrelsiskonur mega vart til þess hugsa aö Vera, eina kvenfrelsisblaö á landinu, hætti aö koma út. Viö skorum því á allar Kvennalistakonur sem ekki eru áskrifendur aö Veru aö láta til skara skríöa. Þaö stenduryfir áskriftarherferö núna, þannig aö ef ykkur tekst aö safna nokkrum áskrifendum er jafnvel borgun í boöi heilar 300 kr. fyrir hverja áskrift. Hafið samband viö skrifstofu Veru í síma 22188. Vera er blað Kvennalistans og viö berum ábyrgö á henni. 8

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.