Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 3

Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 3
sig veðrið að undanförnu og ert.d. komin meö um 2.500 áskrifendur. b) Anna Ól. Björnsson Reykjanesi ræddi stöðu og framtíð Kvennalistans í stjórnarandstööu enn eitt kjörtímabilið. Hún sagði m.a., að það væri hart, aö viö sem vinnum mest að þeim málum, sem samkvæmt nýlegri skoöanakönnun viröast forgangsmál hjá meirihluta þjóöarinnar, fáum ekki að ráða ferðinni, heldur einmitt hinir meö hörðu áherslurnar. Hún minnti einnig á, að við yrðum í stjórnarandstööu með mörgum föllnum stórveldum, sem sum hver a.m.k. leggðu ekki ýkja mikiö upp úr málefnaiegri baráttu. c) Guðrún Halldórs Rvk flutti erindi, sem hún kallaði: Hvernig liði Fjallkonunni í sambúö með Mr. Júró? og fjallaði þar um ýms samtök innan Evrópu og þá fyrst og fremst Evrópubandalagið. Hún endaði með tilvitnun í enska prinsessu, sem sagöi árið 1962: Mér hugnast ekki Evrópuban- dalagiö, sem veröur leikvangur flugríka mannsins. III. Hvar verðum við árið 2020? a) Sigrún Helga Rvk horföi fyrst nokkuö langt afturtil þess að undirbúa sýnina til framtíðar. Sú sýn er að hennar mati ekki beint fögur, en um það vísast til ritaðs erindis. Hún endaði með því að skipta epli á mjög táknrænan hátt þannig að sá litli biti, sem eftir var, þegar skornir höföu verið frá “óbyggilegir" bitar, táknaði þaö brot af hnettinum, sem mannkyniö hefur til umráöa - og fer svo hraklega meö. Að loknu erindi Sigrúnar skiptust konur í hópa og ræddu málefni dagsins, fóru í gönguferðir um nágrenniö og snæddu góðan kvöldverð. Um kvöldiö var mikið sungið, leikin bókarheiti og fleiri samkvæmisleikir. Ingibjörg Sólrún las 3

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.