Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 4

Fréttabréf - 01.08.1991, Blaðsíða 4
bráöskemmtilega blaöagrein Sverris heitins Kristjánssonar um Karitas nokkra, sem sett haföi virðulega frambjóöendur út af laginu fyrir allmörgum árum. Þá var heiti potturinn óspart notaöur til aö mýkja sig milli fundarseta. b) Sigrún Jóhannesdóttir Vesturl. tók viö af nöfnu sinni á sunnudagsmorgunjnn aö lítatil ársins 2020. Hún fjallaöi einkum um félagslegu hliðina og var ekkert aö hlífa okkur viö óveöursblikunum, en kom líka meö hvatningarorö, sem verö eru umhugsunar. Erindi Sigrúnanna beggja eru einmitt tilvalin til að lesa og ræöa í smærri hópum, og eru konur hér með eindregið hvattartil aö gera þaö. c) Guörún Agnars Rvk. talaði um sjálfsmynd kvenna og þörfina fyrir samstööu allra kvenna. Hún minnti á, aö flestar konur eru virkar í mörgum félögum og klúbbum, þar sem þær gætu unnið aö því aö lækka þröskulda milli kvenna. Nauösynlegt væri aö finna leiöir til samvinnu og samstööu meö konum utan Kvennalistans um leiö og viö yröum aö efla tengsl innan hans og styöja vel hver aöra. IV. Veaanesti. Helga Sigurjóns R-nesi talaöi um þróun hreyfinga innan kvennabaráttunnar. Hún sagöist líta svo á, aö bernskus- keiö Kvennalistans væri liöiö, og stundum væri svolítiö leiöinlegt aö veröa fulloröin, en nú reyndi fyrst verulega á hugsjónakonur- nar. Hugsjónir og markmiö þarf aö skerpa. “Viö erum í kap- phlaupi fyrir lífi okkar”, sagöi Helga. Þannig var hvert erindið ööru skemmtilegra og umhugsunarverðara og umræöur fjörlegar, einkum í lokin eins og oft vill veröa. Lokaoröunum stjórnaöi Sigrún Helga á sinn frumlega hátt. Hún teymdi okkur allar út á skólalóöina, þar sem viö mynduöum hring, héldumst í hendur og þjöppuöum okkur saman til þess aö halda hita hver á annarri. Oröiö var látiö ganga, og allartjáöu sig um áhrif fundarins og samverunnar í Skálholti. Allar lýstu sig mjög ánægöar meö erindi, umræöur og fundinn í heild, sumar fóru meö vísukorn, og margar vildu þakka, hversu mikiö Kvennalistinn heföi gefið þeim fyrr og síöar. Þannig lauk þessu vorþingi, sem konur í Suöurlandsanga önnuöust meö heiðri og sóma. 60 - 70 konur úr öllum öngum mættu til leiks og fóru endurnærðar af fundi. KH. 4

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.