Fréttabréf - 01.12.1992, Page 13
"Banvæn blekking"
Áróðursherferð gegn
framleiðslu kjarnorkuvopna
Kvennalistanum berast margvísleg erindi utan úr
heimi, og eitt þeirra kom nýlega í bréfi frá F)redrik S. HefTermehl,
norskum stjórnarmanni f alþjóölegri friöarstofnun,
Intemational Peace Bureau. Sú stofnun er ekkert unglamb,
átti sitt upphaf í Róm fyrir 100 árum. þ.e. áriö I892, enhefur
nú höfuðstöðvar í Genf. Og ekki sakar aö geta þess. aö
stofnunin fékk friöarverölaun Nóbels áriÖ 1910.
Erindi Fredriks er aö vekja athygli á áróöursherferö
gegn fjölþjóða fyrirtækinu General Electric, sem margir hér
kannast viö af góöu einu. Þessi Qölþjóöarisi hefur hins vegar
ekki haft hátt ura alla sína starfsemi, og því vita fáir um
ITiFACT. bandarísk baráttusamtök gegn kjarnorku-
vopnum, ýttu af staö herferðinni gegn GE, enhúner dyggilega
studd af fyrrnefndri friðarstofhun í Genf og af Samtökum
lækna gegn kjarnorkuvá, aö því er Fredrik hermir i bréfi sínu.
Reyndar hefur INFACT beitt sér gegn ýmsu öðru en
kjarnorkuvopnum, t.d. stóö stofnunin fyrir árangursríkri
herferö gegn NESTLE-fyrirtækinu, sem á sínum tíma flutti
heilu skipsfarmana af mjólkurdufli til vanþróaöra landa án
þess aö skeyta hiö minnsta ura aíleiöingarnar.
Áhrifaríkasta áróöurstækiö f herferöinni gegn Gen-
eralElectricerhálftímaheimildarmynd, sem fckkóskarsverö-
Iaun sem besta stutta heimildarmyndin á þessu ári. Heiti
myndarinnar er „Deadly Deception', sem þýöa mætti sem
„Banvæn blekking”. Ondirtitill myndarinnar er ‘General Elec-
tric, kjarnorkuvopn fif umhverfiö okkar'. Debra Chasnoff
stjómaöi upptöku myndarinnar og er vafalaust ekki efst á
vinsældalistanum hjá GE þessa stundina. Myndin hefur þegar
veriö sýnd í Noregi, hún veröur sýnd á næstunni í Qölda
Evrópulanda, og Fredrik fullyröir, aö hún veröi innan fárra
mánaða sýnd á íslandi.
Loks gefúr Fredrik upp heimilisfang INFACT, sem er
256 Hanover Street, Boston, MA02113, USA.Þangað erhægt
að leita eftir firekari gögnum og upplýsingum.
13