Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 6

Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 KANARÍ – Montemar tvær vikur (17. nóv. – 2. des.) frá 137.500 kr. á mann m.v. tvo fullorðna. PLÚS Gunnar Dofri Ólafsson Agnes Bragadóttir Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi í gærmorgun þrjá sakborninga í Marple-málinu en sýknaði einn þeirra. Þyngsta dóminn, 18 mánaða fangelsi, hlaut Magnús Guðmunds- son, fyrrverandi bankastjóri Kaup- þings í Lúxemborg. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver- andi forstjóri Kaupþings, og Skúli Þorvaldsson fjárfestir voru dæmdir í sex mánaða fangelsi, en Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjár- málastjóri Kaupþings, var sýknuð af öllum ákærum. Öll ákærðu höfðu krafist sýknu. Allir verjendur sakborninga, nema verjandi Marple, voru við- staddir dómsuppkvaðninguna, en enginn ákærðu mætti. Fjárdráttur og hylming Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir milljarða króna fjár- drátt og umboðssvik og Magnús fyrir hlutdeild í þeim. Skúli var ákærður fyrir hylmingu og peninga- þvott. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í gærmorgun segir að Hreiðar Már hafi ákveðið að láta Kaupþing kaupa skuldabréf af Marple Hold- ing á nafnverði á tíma þegar mark- aðsverðið hafi verið mun lægra. Orðrétt segir m.a.: „Engar lög- mætar viðskiptalegar forsendur gátu legið að baki slíkum viðskipt- um og átti Kaupþing banki hf. þess ekki kost að endurheimta fjár- munina síðar, svo sem verið hefði ef um venjubundin lánsviðskipti hefði verið að ræða. Með því að kaupa bréfin á nafnverði sat eftir órétt- mætur hagnaður inni í félaginu Marple Holding S.A. SPF á kostnað Kaupþings banka hf.“ Samkvæmt ákæru voru rúmlega sex milljarðar króna fluttir úr sjóð- um Kaupþings á Íslandi á reikning Marple Holding með viðkomu í Kaupþingi í Lúxemborg. Féð var flutt í tvennu lagi árin 2007 og 2008. Sex mánaða fangelsisdómurinn yfir Hreiðari Má bætist við dóminn sem hann hlaut í Al Thani-málinu, en hann hljóðaði upp á fimm og hálfs árs fangelsisvist. Hann afplánar nú þann dóm á Kvíabryggju. Sömuleið- is kemur átján mánaða fangelsis- dómur yfir Magnúsi Guðmundssyni til refsiþyngingar, en hann var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Al Thani-málinu. Refsirammi fyrir fjárdrátt er sex ára fangelsisdómur og þar með hef- ur refsiramminn verið fylltur bæði hjá Hreiðari Má og Magnúsi. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu ákæruvaldsins um að gera upptæk öll verðbréf, innstæður á bankareikningi og aðrar eignir í fjárfestingasjóði á nafni Marple Holding S.A. SPF í Banque Havill- and í Lúxemborg. Lítið brot af heildarupphæð Heildarupphæðin nam um 6,7 milljónum evra síðast þegar virði safnsins var virt. Það nemur um 962 milljónum króna miðað við gengi dagsins í dag. Þetta er þó að- eins brot af þeirri upphæð sem sér- stakur saksóknari fór fram á að gerð væri upptæk í málinu, en dóm- urinn hafnaði kröfu ákæruvaldsins um upptöku tiltekinna eigna ákærða Skúla Þorvaldssonar, sem yfirvöld í Lúxemborg gerðu upp- tæk. Tugir milljóna í málsvarnir Hinir sakfelldu í málinu þurfa að greiða verjendum sínum háar fjár- hæðir í málsvarnarlaun. Þannig þarf Hreiðar Már að greiða verj- anda sínum tæpar 22 milljónir fyrir störf hans og kostnað upp á rúmar 1,7 milljónir. Magnús greiðir verj- anda sínum ríflega 11 milljónir, Skúli greiðir rúmar 16 og hálfa milljón og kostnað upp á 800.000 þúsund krónur, og málsvarnarlaun skipaðs verjanda á rannsóknarstigi málsins, 7,7 milljónir. Ríkissjóður þarf að greiða máls- varnarlaun verjanda Guðnýjar Örnu, ríflega 18 milljónir króna. Dómar fylltu refsirammann  Magnús Guðmundsson og Hreiðar Már Sigurðsson hafa hvor um sig hlotið alls sex ára fangelsisdóm  Þrír sakborninga sakfelldir, einn sýknaður  Sakarefni fjárdráttur, hlutdeild og hylming Morgunblaðið/Árni Sæberg Dómsuppkvaðning Allir verjendur sakborninga, nema verjandi Marple, voru viðstaddir dómsuppkvaðninguna í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun, en enginn ákærðu mætti. Þrír voru fundnir sekir en einn ákærðu sýknaður. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég sé ekki annað í kortunum en að til verkfalls komi. Viðræð- urnar hafa frá því árangurs- lausum fundi hjá Ríkissáttasemj- ara lauk síðastliðinn þriðjudag verið alveg strand og engin lausn virðist í sjónmáli,“ segir Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, í samtali við Morgunblaðið. Fjölmenni var við stjórnarráðs- húsið í Lækjargötu í Reykjavík í gærmorgun við upphaf ríkis- stjórnarfundar. Þar voru saman- komnir sjúkraliðar og fólk úr SFR sem boðað hefur verkfall frá og með fimmtudegi í næstu viku og lögreglumenn. Krafa þessa fólks er að það fái sambærilegar kjara- bætur og aðrir ríkisstarfsmenn hafa fengið að undanförnu. Í yfir- lýsingu SFR, Sjúkraliðafélags Ís- lands og Landssambands lög- reglumanna segir að fólk sætti sig ekki við virðingarleysi stjórn- valda sem birtist í þeirri ákvörð- un að leggja aftur á borð tilboð sem margsinnis hafi verið hafnað. „Ég held að menn hljóti að ná niðurstöðu þar sem þið fylgið þeim kjarabótum sem aðrir hafa náð,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra eftir að hafa tekið við áður- nefndri yfirlýsingu stéttarfélag- anna. Ráðherrann segir mark- miðið að ná raunverulegri kaupmáttaraukningu. Greiðir fyrir lausn Í vikunni var gengið frá kjara- samningi Starfsgreinasambands- ins og fleiri félaga við ríkið. Sá samningur gildir fram í mars 2019 og mun, að sögn Árna Stef- áns, skila 30% launahækkunum á samningstímanum. Hann segir slíkar tölur svip- aðar því sem SFR, sjúkraliðar og lögreglumenn kalli eftir nú, en það telji SA hins vegar ógna stöð- ugleika. Samningar þessir hljóti hins vegar að gefa tóninn og greiða fyrir lausn nú í kjaradeilu opinberra starfsmanna við ríkið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mótmæli Fólk lét í sér heyra við Stjórnarráðið. Hér gengur Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra til fundar. Verkfall í kortunum en tónn að lausn þó gefinn  Opinberir starfsmenn mótmæltu  Kjaradeila er strand „Verðlækkunin er á bilinu 2-5% og nær til um 600 vara sem við flytjum inn sjálf frá erlendum birgjum,“ seg- ir Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss. Verð í versl- unum fyrirtækisins hefur lækkað nokkuð í október og þar er nýtt svig- rúm, sem styrking á gengi íslensku krónunnar undanfarið gefur tilefni til. Sem dæmi um einstaka vöru- flokka þá lækkaði verð á frosnum brauðum og frönskum kartöflum um 5% svo og mexíkóskum mat og gælu- dýrafóðri. Verð vara frá Euroshop- per lækkaði um 2-3%. Aðspurður hvort verð á innlend- um vörum verði lækkað segir Guð- mundur Marteinsson að málin hafi verið rædd við birgja og framleið- endur að undanförnu. Hvernig mál þróist muni ráðast mikið af því hvernig fyrirtækin ráði við launa- hækkanir sem fylgdu kjarasamning- um sem gerðir voru fyrr á árinu. Ekki tilkynnt sérstaklega „Við fylgjum innkaupsverði og gengi krónunnar og breytum verði á vörum í verslunum okkar fimm til sex daga í viku. Við erum hins vegar ekki að tilkynna slíkt neitt sérstak- lega,“ sagði Jón Björnsson, forstjóri Festis, sem á og rekur lágvöruverðs- verslanir Krónunnar. sbs@mbl.is Bónus lækkar verð á 600 vörum  Sterk króna  Innlent er í skoðun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.