Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 9

Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 H a u ku r 1 0 .1 5 .Leit að fjárfestingarkostum. .Verðmat. .Viðræðu- og samningaferli. . Fjármögnun. .Frágangur samninga. Hér gætu verið góðir fjárfestingarkostir: Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Þórarinn Arnar Sævarsson fasteignaráðgjafi, thorarinn@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hæstaréttarlögmaður, sigurdur@kontakt.is Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Rótgróin rafvöruverslun í Reykjavík. Velta 80 mkr. og afkoman góð. • Sérhæft ferðaþjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði. Velta 85 mkr. EBITDA um 15 mkr. • Sérhæft afþreyingarfyrirtæki fyrir erlenda ferðamenn á góðum stað í miðbænum, sem hefur mjög jákvæða dóma á netinu. Fyrirtækið hefur verið starfrækt síðan 2011 og gengur mjög vel. Velta um 85 mkr. og EBITDA um 15 mkr. Framlegð er mjög há og má segja að frekari aukning veltu leiði nánast beint og óskert til hagnaðar. • Til leigu nýtt og glæsilegt 50 herbergja hótel á góðum og rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Hótelið verður verður afhent fullbúið um mitt ár 2016. • Fyrirtæki sem sérhæfir sig í innflutningi og þjónustu með rekstrarvöru til matvælaiðnaðarins, sér í lagi fiskvinnslu. Velta um 50 mkr. Hentar vel sem viðbót við rekstur af svipuðu tagi. • Stórt og rótgróið fyrirtæki í framleiðslu matvæla. Er nú með 14 eigin verslanir og hratt vaxandi sölu og hagnað. Ársvelta um 700 mkr. og EBITDA 110 mkr. • Innflutningur og smásala í tveimur verslunum á heimsþekktu vörumerki í fatnaði fyrir börn og konur. Viðkomandi er með sérleyfi á Íslandi. Velta 150 mkr. • Gróðrarstöð staðsett á Suðurlandi í nálægð við höfuðborgina. Fyrirtækið hefur sterka stöðu á markaði. Velta er nokkuð jöfn allt árið, um 130 mkr. og EBITDA um 25 mkr. • Stórt og rótgróið fyrirtæki með úrval tækja fyrir útgerðir. Ársvelta yfir 500 mkr. Mörg mjög góð umboð. • Gamalgróin heildverslun með þekkt leikföng og gjafavörur. Velta um 100 mkr. Góð afkoma. • Fasteignafélag með 27 nýjar stúdíóíbúðir í langtímaleigu. Góðar og stöðugar tekjur. Hagstætt verð. • Stór glugga- og hurðasmiðja. Mikil framleiðslugeta. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Vinsælu Lindon/Modest buxurnar komnar Verð 9.980 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið 10-16 í dag Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Síðir jakkar Verð 19.800 kr. str. 44–56/58 Röndótt og einlitt svart Vandaðar dúnúlpur m/hettu og ekta skinni (þvottabjörn), margir litir Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið laxdal.is/yfirhafnir „Við munum funda með skóla- meistaranum á mánudaginn hér í ráðuneytinu og ræða við hana um þá stöðu sem komin er upp og glöggva okkur á þeim vanda sem þarna virðist vera,“ sagði Ill- ugi Gunnarsson menntamálaráð- herra um málefni Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA). Hann sagði að síðan myndi ráðu- neytið vilja vinna með skólameist- aranum og öðrum að því að leysa úr þeim vanda sem virtist vera uppi í skólanum. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að átök og illdeilur væru í FVA. Kennarar við skólann væru mjög óánægðir með starfshætti og stjórn- un Ágústu Elínar Ingþórsdóttur skólameistara. Að sögn kennara við skólann er ástandið alvarlegt og skólinn sagður óstarfhæfur í raun. Kennarar skólans funduðu á mið- vikudaginn var og ákváðu þar að fara með málið til menntamálaráðu- neytisins, bæjaryfirvalda og skóla- nefndar. Formaður skólanefndar FVA, Reynir Þór Eyvindsson, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að mikil óánægja ríkti meðal kennara með störf og stjórnunarhætti skólameist- arans. Hann sagði það vera mennta- málaráðuneytisins að ákveða hvað gert yrði. gudni@mbl.is Illugi Gunnarsson  Skólameistarinn á fund í ráðuneytinu Funda um mál- efni FVA „Reynt hefur verið að hafa samráð við starfsmenn skólans eins og unnt er varðandi nauðsynlegar og umtalsverðar aðhaldsaðgerðir í rekstri skólans sem farið hefur ver- ið fram á við skólann,“ segir Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skóla- meistari Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi, í skriflegu svari við spurningu Morgunblaðs- ins hvort skólameistari hefði ekki þurft að hafa samráð við kennara skólans um niðurskurð. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er megn óánægja meðal kennara með starfshætti og stjórnun skólameist- arans. „Krafa er gerð um að uppsafn- aður rekstrarhalli fyrri ára verði greiddur og að rekstur stofnunar- innar verði innan fjárheimildar. Samkvæmt reglugerð nr. 1061/ 2004, um framkvæmd fjárlaga og ábyrgð á fjárreiðum ríkisstofnana, ber forstöðumaður ábyrgð á því að útgjöld stofnunar séu í samræmi við fjárheimildir og að fjárreiður og rekstur stofnunar sé í samræmi við áætlanir sem gerðar hafa verið,“ segir hún. – Hvers vegna hefur trúnaðar- maður kennara við skólann, Jónína Halla Víglundsdóttir, ekki fengið fund með þér? „Skólameistari hefur ávallt verið tilbúinn til að funda með trúnaðar- manni skólans, hefur virt verkefni hans og lagt áherslu á að samskipti við hann séu á jákvæðum og góðum nótum. Hlutverk trúnaðarmanna er fyrst og fremst að sjá til þess að gerðir kjarasamningar séu haldnir og að ekki sé gengið á félagslegan eða borgaralegan rétt starfsmanna. Þá er hlutverk trúnaðarmanna m.a. að vera fulltrúi stéttarfélags og til aðstoðar við starfsmenn þegar kemur að túlkun þess kjarasamn- ings sem viðkomandi heyrir undir. Að öðru leyti er það háð ákvörðun stjórnanda viðkomandi stofnunar hvort hann telji ástæðu til þess hvort trúnaðar- maður sé við- staddur þegar fundað er um rekstrarlegar forsendur stofn- unar eða ein- stakra deilda stofnunar,“ svar- ar Ágústa Elín. – Er ekki tímabært að höggva á hnútinn með einum eða öðrum hætti til þess að skólastarfið verði ekki fyrir stórskaða? „Skólastarf á þessari önn hefur hefur verið í föstum skorðum þótt ágreiningsefni hafi komið upp. Skólameistari er og hefur ávallt verið tilbúinn til að fara yfir álita- efni með starfsfólki skólans til að koma þeim í réttan farveg.“ Í erfiðri rekstrarstöðu Spurð hver verði næstu skref hennar í málinu segir hún að hvað sig varði muni hún halda áfram „að stuðla að góðu og öflugu skólastarfi og vinna með starfsmönnum skól- ans í þeirri erfiðu rekstrarstöðu sem skólinn er í. Ég vona bara að allir starfsmenn skólans komi með í þá vinnu því krafan um bættan rekstur breytist ekki með minni stöðu“, svarar Ágústa Elín. – Hvers vegna var nýjum aðstoð- arskólameistara sagt upp, eftir að- eins tveggja mánaða starf? „Fljótlega eftir að aðstoðar- skólameistari hóf störf kom í ljós meiningarmunur milli aðila um starfið, í hverju skyldur aðstoð- arskólameistara væru fólgnar, launamál og fleira, sem varð til þess að reynt var að leysa hann með aðstoð utanaðkomandi aðila. Fundir voru haldnir í þeim tilgangi en ljóst varð að ekki var hægt að finna ásættanlega lausn. Var því aðstoðarskólameistara sagt upp störfum,“ segir í svari skólameist- arans. agnes@mbl.is Reynt hefur verið að hafa samráð  Segir skólastarfið í föstum skorðum Ágústa E. Ingþórsdóttir - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.