Morgunblaðið - 10.10.2015, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
Gjafir sem gleðja
Líttu við og
skoðaðu úrva
lið
Glæsilegir skartgripir á frábæru verði
Verð 45.400,-
Demantur 6p.
Verð 37.900,-
Demantur 2p.
Verð 69.000,-
Demantur 11p.Verð 47.000,- Verð 35.900,-
Verð 33.900,-
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Bókakötturinn Tickety eraðalpersónan hér. Hanner hluti af búðinni, endabýr hann hér að staðaldri
ásamt gullfiskinum Pissi,“ segir
Rúna Þorkelsdóttir myndlistarkona
og ein þeirra þriggja listamanna
sem eiga og reka bókabúðina og
galleríið Boekie Woekie í Amster-
dam. Hin tvö eru hjónin Henriëtte
van Egten og Jan Voss.
„Hér var mikill músagangur og
mýsnar svo heimaríkar að þær komu
fram þegar ró var komin á og tóku
nokkur dansspor. Þessar mýs voru
aðgangsharðar, þær voru búnar að
borða nokkur girnileg listaverk í
bakherberginu, brauðverk eftir mig
og hnetuverk eftir Jan. Mýsnar átu
þau innan frá. Við gripum til þess
ráðs að gerast fósturforeldrar læð-
unnar Tickety sem vantaði heimili á
þessum tíma og það hefur ekki mús
sést síðan hún flutti í búðina. Hún er
hinn besti bókabúðarköttur, krassar
ekkert í bækurnar og klórar hvergi.
Hún elskar japönsku. Þegar hún
heyrir japönsku kemur hún fram og
lætur klóra sér og klappa og veltir
sér um og vekur gleði viðskiptavina.
Hún er í mörgum myndaalbúmum
út um allan heim þessi læða.“
Sumir hræddir við nándina
Rúna hefur búið í Amsterdam í
rúma þrjá áratugi, hún flutti upphaf-
lega þangað þegar hún hóf nám í
Rietveld-akademíunni, en hún var
líka ástfangin af hollenskum manni.
„Við ákváðum ásamt nokkrum
öðrum listamönnum að gera eitthvað
sjálf til að koma okkar verkum á
Lífsstíll sem við höf-
um kosið okkur
Bókabúðin Boekie Woekie í Amsterdam er ekkert venjuleg, hún er gallerí, lista-
verk, sjálfstæður skúlptúr sem breytist stöðugt. Þar eru listrænir viðburðir og í dag
ætlar Arna Valsdóttir að vera þar með músíkskúlptúr, hún ætlar að syngja sig inn
í búðina. Rúna Þorkelsdóttir er einn af þremur eigendum Boekie Woekie.
Gamla búðin Kortin sem þau gera sjálf hanga utan við búðina.
Vinkonur Rúna og Hettie stilla sér upp eftir mynd af þeim sem tekin var ár-
ið 1986 fyrir framan gömlu Boekie Woekie sem var tveir sinnum tveir.
Heimilisiðnaðarfélag Íslands rekur
Heimilisiðnaðarskólann þar sem boð-
ið er upp á fjölbreytt námskeið í
handverki. Félagið hlaut nýlega Nord-
plus styrk til kennaraskipta á milli Ís-
lands, Eistlands og Finnlands. Til-
gangurinn er að miðla þjóðlegu
handverki og kennslureynslu á milli
landanna. Handverkskennararnir
hittast og læra hver af öðrum á nám-
skeiðum. Í tilefni af þessari gesta-
komu munu finnsku gestirnir, þær
Leena Haapio-Lehti og Johanna Mai-
jala, bjóða upp á þriggja kvölda nám-
skeið í svokallaðri sólarlitun fyrir al-
menning dagana 12.-14. október.
Sólarlitun er skemmtileg leið til lita
bómullarefni en notuð er svokölluð
mjólk sem textíllitunum er blandað í.
Þessi aðferð gerir kleift að munstra
efnið til dæmis með laufblöðum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu fé-
lagsins: www.heimilisidnadur.is.
Vefsíðan www.heimilisidnadur.is.
Sólarlitun Hægt er að munstra efni með t.d. þurrkuðum laufblöðum eða öðru.
Nú er lag að læra sólarlitun
Dagskrá um kvenskörunginn Þuríði formann
verður í Menningarverstöðinni Hafnargötu 9
á Stokkseyri kl 14 í dag. Margt áhugavert er
á dagskrá, Sandra Dís Hafþórsdóttir kynnir
og meðal annars ætlar dr. Margaret Willson
að segja frá sjósókn íslenskra kvenna í fortíð
og nútíð, og útdráttur verður fluttur á ís-
lensku úr því erindi. Sigurbjörg Árnadóttir
segir frá vitafélaginu, norrænni strandmenn-
ingu og norrænum sjókonum; Inga Fanney
Egilsdóttir talar um sjókonur nútímans og í
kaffihléinu verða munir sem tengjast Þuríði
til sýnis. Síðan verða pallborðsumræður og
vettvangsferð í Þuríðarbúð sem er meist-
aralega hlaðin.
Atburðurinn er hluti af Menningarmánuði
Árborgar, allir eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Fjallað um sjósókn íslenskra kvenna í fortíð og nútíð
Þuríður formaður og sjókvenska
Þuríðarbúð Er á Stokkseyri.
Á fésbókarsíðu Fuglaverndar er sagt
frá því að undanfarna daga hafi suð-
austlægar áttir borið til landsins
töluvert af evrópskum flækings-
fuglum, þar á meðal mesta fjölda
hnoðrasöngvara (Phylloscopus
inornatus) sem hefur fundist á einum
degi hér á landi. Hvorki meira né
minna en 48 hnoðrasöngvarar fund-
ust 7. október á Austfjörðum og Suð-
austurlandi. Hnoðrasöngvari eru agn-
arsmár fugl, lítið eitt stærri en
glókollur. Meginvarpstöðvar hans eru
í Asíu en lítill varpstofn er einnig
vestan Úralfjalla og hefur hluti hans
vetrarsetu á Bretlandseyjum. Í haust
kom þangað óvenjumikið af hnoðra-
söngvurum og fuglaskoðarar hér-
lendis hafa vonast eftir því að það
myndi skila sér áfram vestur til Ís-
lands, sem nú hefur gerst. Hnoðra-
söngvari á náskyldan frænda, kolls-
öngvara (Phylloscopus proregulus),
sem hefur sést margoft á Bretlands-
eyjum en hefur aldrei sést á Íslandi.
Myndina tók Brynjúlfur Brynjólfsson
hjá Fuglaathugunarstöð Suðaustur-
lands, sem finna má á Facebook.
Suðaustlægar áttir bera fugla til landsins
Út að leita að hnoðrasöngvurum
og öðrum flækingsfuglum
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson
Hnoðrasöngvari Hann er agnarsmár og kemur til Íslands með vindinum.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.