Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 11
framfæri. Við vorum öll að fást við
bækur og stofnuðum því bókabúðina
Boekie Woekie árið 1986 í pínulitlu
húsnæði sem var tveir sinnum tveir
metrar. Við vorum sex einstaklingar
sem stóðum að þessu, tveir Íslend-
ingar, ég og Pétur Magnússon, þrír
Hollendingar og einn Þjóðverji. En
rýmið var svo lítið að þegar við vor-
um öll saman þarna inni var lítið
pláss fyrir fleiri. Þetta var mikil
nánd og viðskiptavinir voru sumir
hræddir við að koma inn.“
Þetta er okkar listaver
„Við vorum fyrst einvörðungu
með okkar eigin bækur, um hundrað
titla, og einn veggur var gallerí. Ári
síðar gengu þrjú úr samstarfinu og
við þrjú sem urðum eftir höfum
haldið áfram að reka þessa búð og
galleríið allar götur síðan. Í fimmtán
ár fórum við á bókamessuna í
Frankfurt til að kynna bækurnar
okkar. Við fórum líka að taka inn
bækur annarra listamanna og árið
1991 fluttum við hingað í Beren-
straat, í stærra húsnæði,“ segir
Rúna og bætir við að þá hafi þau
gert sér grein fyrir því að Boekie
Woekie var meira en bókabúð og
gallerí.
„Þetta er okkar listaverk. Við
hugsum þetta sem skúlptúr sem
breytist stöðugt. Á þessum tíma
byrjuðum við að vinna með Dieter
Roth og tókum þátt í sýningum með
honum. Við erum með útgáfu, höld-
um stöðugt úti sýningum og kynnum
aðra listamenn.“
Bókverk er myndlist
Hlutverk bókabúðarinnar hefur
því þróast mikið á þessum þremur
áratugum.
„Frá þessum hundrað titlum í
byrjun erum við núna með um átta
þúsund titla af bókverkum. Bókverk
er myndlist í sjálfu sér, slík bók er
ekki um myndlist eða listamann,
heldur er bókin verk í sjálfu sér. Við
erum líka með uppákomur hér í búð-
inni; tónlist, ljóðalestur, gjörninga
og ýmislegt fleira. Íslenskir hljóm-
listarmenn hafa oft spilað hjá okkur
og í gegnum árin hafa komið hingað
íslenskir stúdentar í listnámi við
Rietveld, sumir hafa orðið vinir okk-
ar og unnið hérna. Það er mikil Ís-
landstenging í búðinni, hér er sér-
stök íslenskudeild í bókunum, til
dæmis er Kristján Guðmundsson
með sérhillu og við erum með bækur
eftir Sigurð Guðmundsson og marga
fleiri íslenska listamenn, bæði eldri
og yngri.“
Sýning á Íslandi á næsta ári
Rúna segir mjög skemmtilegt
að lifa og hrærast í þessum heimi.
„Við höfum líka farið með búð-
ina sem breytilegan skúlptúr á sýn-
ingar. Á Listahátíð árið 2006 vorum
við til dæmis með bókabúðina inni á
Listasafni Reykjavíkur í þrjá mán-
uði.“
Og margt spennandi er á döf-
inni.
„Arna Valsdóttir frá Akureyri
ætlar að vera með músíkskúlptúr
hjá okkur í dag, hún ætlar að syngja
sig inn í búðina. Og við erum að und-
irbúa afmælissýningu því búðin
verður 30 ára í janúar. Nýlistasafnið
á Íslandi hefur boðið okkur að halda
sýningu af því tilefni sem verður
opnuð 9. janúar. Svo eru stöðugar
útgáfur. Við prentum okkar eigin
bókverk og kortin heima á kvöldin
og á nóttunni eftir vinnu. Þetta er sí-
felld vinna, en þetta er lífsstíll sem
við höfum kosið okkur.“
Þau eiga öll hús á Hjalteyri
Eðli málsins samkvæmt fá þau
nokkuð af söfnurum til sín í búðina
en líka alls konar fólk af götunni.
„Stundum segir fólk þegar það
kemur hér inn: „Hvar erum við eig-
inlega stödd?“ Af því að þetta er eins
og að ganga inn í heim. Og þá þurf-
um við að leiða viðkomandi í gegnum
það og þá skapast oft skemmtileg
samtöl,“ segir Rúna sem er fráskilin
en hún á einn son sem býr á Íslandi
með fjölskyldu og fyrir vikið kemur
hún oft til Íslands.
„Við þrjú sem eigum bókabúð-
ina erum öll með sterka tengingu við
Ísland. Jan og Henriëtte eiga hús á
Hjalteyri sem þau keyptu árið 1979
og þau hafa verið þar á sumrin allar
götur síðan. Ég á líka hús á Hjalt-
eyri og ég á fjölskyldu í Reykjavík
sem ég heimsæki oft.“
Læðan Tickety Úrvals bókaköttur, krassar ekki í bækur og klórar ekki.
Hugsanatankur Gullfiskurinn Pissi er með fasta búsetu í Boekie Woekie.
Listamenn Brynjar Helgason sem Manet, og Jan Voss sem Van Gogh.
Vefsíða búðarinnar:
www.boekiewoekie.com
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Miklar listir voru leiknar í háloftunum
í vikunni þegar æfingar fóru fram fyr-
ir „Fleet Week“-hátíðina í San Franc-
isco. Hér má sjá flugmanninn Sean
Tucker fljúga á hvolfi með þremur
Bláum englum (Blue Angels F/A-18
Hornets) yfir hinni frægu brú í San
Francisco. Á „Fleet Week“-hátíðinni
er mikið um flugvélasýningar í háloft-
unum.
Háloftahátíð í San Francisco
AFP
Flogið á hvolfi um loftin blá