Morgunblaðið - 10.10.2015, Page 14

Morgunblaðið - 10.10.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins og baráttuna gegn krabbameini hjá konum. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum. Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl! „Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október. Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Tökum bleikan bíl! Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins SÆKTU APPIÐ á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play Sæktu þér Hreyfils appið og pantaðu bleikan bíl. BÆJARLÍFIÐ Jón Sigurðsson Blönduós Hefðbundnum haustverkum er að ljúka hjá flestum þessa dagana. Eitt af haustverkunum hjá sífækk- andi íbúum er kartöfluupptaka. Blönduósingar og fleiri sýslubúar ræktuðu um langan aldur kartöflur sínar í Selvíkurgarðinum oftast með þokkalegum árangri. Uppskeran í ár var í fullkomnu samræmi við sum- arið sem nú lætur undan, heldur döpur. Þessi „fornfrægi“ garður hef- ur um langa tíð verið afar eftirsóttur og fengu færri garðland en vildu. Nú er öldin önnur í orðsins fyllstu merk- ingu og má nánast telja ræktendur á fingrum beggja handa. Farið er að tala um kartöflugarðavísitöluna sem byggð er á nýtingu Selvíkurgarð- anna og þróun mannfjölda á svæð- inu, mannfjöldi/fjöldi kartöflugarða (MF/FK=M/K) sem þýðir á einföldu máli, menn og kartöflur eru eitt, og beinir kartöfluneyslu í næstu versl- un.    Sauðfjárslátrun hjá SAH Af- urðum á Blönduósi hefur gengið vel það sem af er sláturtíð að sögn Gunnars Tr. Halldórssonar, fram- kvæmdastjóra félagsins. Gert er ráð fyrir að slátrað verði um 100 þúsund fjár líkt og undanfarin ár og slát- urtíð ljúki í lok þessa mánaðar. Gunnar segir að sala afurða félags- ins sé meiri í ár en hún var í fyrra og að starfsmenn séu langt í frá verk- efnalausir. Um 160 manns vinna um há- annatímann hjá SAH Afurðum á Blönduósi og hafa starfsmenn aldrei verið fleiri. Af þessum 160 starfs- mönnum eru um 100 útlendir starfs- menn og þeir sem lengst að eru komnir eru frá Nýja-Sjálandi. Vel gekk að ráða starfsfólk í sláturhúsið í haust og má segja að um 90% af því komi ár eftir ár.    Minnisvarði um Sigurð Jónasson (1863-1887) frá Eyjólfs- stöðum í Vatnsdal var afhjúpaður fyrir skömmu á túninu milli Húna- brautar og Árbrautar á Blönduósi. Ávörp við afhjúpunina fluttu meðal annars Þór Jakobsson veðurfræð- ingur, Margrét Kristín Sigurð- ardóttir fyrir hönd fjölskyldunnar, Auður Styrkársdóttir, for- stöðumaður Kvennasögusafnsins og formaður Alþingisnefndar um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, Valgarður Hilmarsson forseti bæj- arstjórnar Blönduósbæjar, og Bryn- hildur Heiða Ómarsdóttir fram- kvæmdastjóri Kvenréttindafélags Íslands. Minnisvarðinn er reistur til að minnast bókmenntaafreks Sigurðar en hann íslenskaði bókina „Kúgun kvenna“ eftir enska heimspekinginn John Stuart Mill, grundvallarrit í sögu kvennaréttindabaráttunnar. Stöpullinn var afhjúpaður á fæðing- ardegi frumkvöðuls kvenréttinda á Íslandi, Bríetar Bjarnhéðinsdóttur en hún var frá Haukagili í Vatnsdal líkt og Sigurður.    Listamiðstöð Textílsetursins á Blönduósi er sögð ein fárra sér- hæfðra textíllistamiðstöðva í heim- inum. Listamiðstöðin hefur verið starfrækt í Kvennaskólanum á Blönduósi síðastliðin þrjú ár og dvelja listamenn alls staðar að úr heiminum þar hluta úr ári. Í ár dvelja 46 listamenn í listamiðstöð- inni en það eru helmingi fleiri en í fyrra þegar 23 listamenn dvöldu þar og árið þar á undan voru þeir 12 en flestir staldra við í 1–3 mánuði í senn. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Afhjúpun Auk systranna Emmu Karenar og Söru Bjargar Jónsdætra eru á myndinni Þór Jakobsson og eiginkona hans Jóhanna Jóhannesdóttir. Til- efnið var afhjúpun minnisvarða um Sigurð Jónasson frá Eyjólfsstöðum. Starfsmenn í slátr- un komnir langt að Náttúrustofa Norðausturlands, NNA, hefur tekið saman niður- stöður talninga í sumar á fjórum tegundum bjargfugla í Skoruvíkur- bjargi á Langanesi og í Grímsey. Tegundirnar eru rita, langvía, stutt- nefja og fýll og benda niðurstöður til þess að tegundunum sé nokkur vandi búinn um þessar mundir, auk þess sem eldri gögn sýna fram á mjög óheillavænlega þróun. „Það er mikið áhyggjuefni að fækkun rytu í Skoruvíkurbjargi heldur áfram með sama takti og undanfarinn áratug. Fjöldi hreiðra í sumar er sá lægsti frá upphafi taln- inga, eða rétt tæp 14% af fjöldanum árið 1994 þegar stofninn var í há- marki. Sömuleiðis eru blikur á lofti í Grímsey þar sem 40% færri ritu- hreiður sáust í sumar,“ segir m.a. í samantekt Yann Kolbeinssonar á heimasíðu NNA. Eftir talsverða fækkun langvíu og stuttnefju í Grímsey og Skoruvík sumarið 2014 hafa báðar tegundir tekið svolítinn kipp upp á við, þó minnst í Skoruvík. Fylgst verður áfram náið með þessum tegundum og þá sér í lagi stuttnefju sem sýnir stöðuga langvarandi fækkun í Skoruvík. Erfiðara er að segja til um ástandið í Grímsey þar sem um mun styttri tímaseríu er að ræða. Breytingar á fýl virðast haldast að mestu í hendur í Grímsey og Skoru- víkurbjargi. Til langs tíma má greina fækkun í Skoruvíkurbjargi. Minniháttar sveiflur endurspegla þó ekki endilega stofnsveiflur heldur einungis fjölda fýla á varpstað hverju sinni. Um langlífa tegund er að ræða og því algengt að fuglar sleppi því að verpa séu þeir ekki í ástandi til þess og/eða vegna fæðu- skorts. Náttúrustofan hefur með reglu- bundnum hætti fylgst með ástandi sjófuglastofna á Norðausturlandi undanfarin ár. Vöktunina má rekja til frumkvæðis Arnþórs Garðars- sonar prófessors sem hóf staðlaðar talningar í Skoruvíkurbjargi 1986 og 2009 í Grímsey. aij@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Í Grímsey Rita eða skegla með unga, en árið hefur verið erfitt. Mikil fækkun ritu í Skoruvíkurbjargi Íslendingar geta, að tilteknum skil- yrðum uppfylltum, sótt heilbrigðis- þjónustu í aðildarríkjum EES- samningsins nái frumvarp til breyt- inga á lyfjalögum og sjúkra- tryggingum fram að ganga. Heilbrigðisráðherra leggur frum- varpið fram og rauði þráðurinn er að jafnræði ríki í meðferð sjúklinga og þjónusta sé veitt út frá þörf fremur en hvar fólk sé tryggt. Kostnaður verður endurgreiddur að því marki sem sjúkratryggingar greiða fyrir sambærilega þjónustu hér á landi. Það sem út af stendur borgar sjúklingurin sjálfur. Með breytingum á lyfjalögum á að auðvelda viðurkenningu á lyfseðlum sem gefnir eru út í öðrum aðildar- ríkjum EES. Lyfjaávísun læknis, tannlæknis eða dýralæknis sem hef- ur gilt leyfi hér á landi er þá virk á Íslandi, svo og í öðrum aðildar- löndum EES, í samræmi við reglu- verk þar að lútandi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Sjúkrahús Nýir möguleikar fyrir sjúklinga opnast senn. Sækja þjón- ustu til útlanda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.