Morgunblaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það má ráða af tölvubréfum aðallög-
fræðings Seðlabankans til sérstaks
saksóknara að óvissa hafi verið um
það innan bankans hvort lögáskilið
samþykki ráðherra væri fyrir hendi á
gjaldeyrisreglum bankans.
Fjöldi aðila var til rannsóknar
vegna meintra brota á þessum
reglum og fjölluðu fulltrúar ákæru-
valds um eitt þessara mála opinber-
lega.
Fram kom í
Morgunblaðinu í
gær að sérstakur
saksóknari hefði
fellt niður hluta
ákærunnar í
Aserta-málinu í
fyrravor, þegar í
ljós kom að gjald-
eyrisreglur Seðla-
bankans gætu
ekki talist viðhlítandi refsiheimild,
enda skorti lögáskilið samþykki ráð-
herra.
Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir
í nýju áliti að hann hafi ekki fengið
réttar upplýsingar í málinu frá Seðla-
bankanum og efnahags- og við-
skiptaráðuneyti í byrjun árs 2011.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, áætlar að um leið hafi tíu
önnur mál verið felld niður. Hluti
þeirra hafi haft „greinar sem kvísl-
uðust áfram“ og því hugsanlega get-
að leitt af sér fleiri sjálfstæð mál.
Heyrir til undantekninga
Hann segir þetta mál heyra til
undantekninga, fátítt sé að ríkis-
stofnunum sé falið að setja reglur og
að baki þeim séu refsiheimildir. Meg-
inreglan sé að mönnum skuli ekki
gerð refsing nema með lögum.
Ólafur Þór segir aðspurður að ef
menn telja á sig hallað í tengslum við
rannsóknir eða saksókn eigi þeir þess
kost að gera kröfu um bætur, hafi
þeir orðið fyrir tjóni. Hann vilji ekk-
ert segja til um hvort slíkt eigi við í
málum sem varða gjaldeyrisreglur
Seðlabankans.
Aserta-málið hófst í nóvember
2009 með því að Seðlabankinn sendi
tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins
um starfsemi félagsins. Málið fór
þaðan til efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra og svo áfram til sér-
staks saksóknara, sem gaf út ákæru í
málinu í marsmánuði 2013.
Hálfu ári síðar óskaði embætti sér-
staks saksóknara eftir upplýsingum
frá Seðlabankanum um samþykki
ráðherra á reglum um gjaldeyrismál
sem bankinn gaf út og segir Ólafur
Þór að í framhaldinu hafi verið óskað
eftir afriti, eða ljósriti, af samþykki
ráðherrans.
Morgunblaðið hefur undir höndum
tölvupósta Sigríðar Logadóttur, yf-
irlögfræðings Seðlabankans, til emb-
ættis sérstaks saksóknara.
Benda þeir til þess að ekki hafi
verið fullvissa um það innan bankans
að samþykkið væri fyrir hendi.
Vísað til „þegjandi samþykkis“
Eitt bréfið er dagsett 19. desem-
ber 2013. „Mér skilst að ráðuneytið
(viðskiptaráðuneytið 2008) hafi birt á
heimasíðu sinni frétt um breytingu á
gjaldeyrisreglunum – felst ekki í því
ákveðið samþykki?“
Annað bréfið er dagsett 27. janúar
2014. „Því miður virðist niðurstaðan
sú að engin formleg staðfesting ráð-
herra finnst – en það má kannski
halda því fram að a.m.k. sé til staðar
þegjandi staðfesting þar sem bank-
inn tók til greina athugasemdir ráðu-
neytisins og engar athugasemdir
komu í kjölfar útgáfu nýrra reglna
um miðjan desember 2008.“
Morgunblaðið hefur jafnframt
undir höndum uppskrift af blaða-
mannafundi Ingibjargar Guðbjarts-
dóttur, núverandi framkvæmda-
stjóra gjaldeyriseftirlits Seðla-
bankans, Helga Magnúsar Gunnars-
sonar, þáverandi saksóknara efna-
hagsbrota, og Gunnars Andersen,
þáverandi forstjóra Fjármálaeftir-
litsins. Athygli vekur að þar lýsir
Gunnar því að opinbera umfjöllun um
rannsókn málsins, sem reyndist svo
byggjast á reglum sem ekki teljast
gild refsiheimild, megi réttlæta með
mögulegum fælingaráhrifum þess.
Átti að hafa fælingaráhrif
„Ég vil þá kannski rétt áður en ég
gef orðið aðeins skýra tilurð þess
[málsins], þetta er kannski ekki alveg
hefðbundið að hafa blaðamannafund
eins og hér nú. En ástæðan fyrir því
að við gerum þetta er í og með sú að
við viljum koma á framfæri
ákveðnum skilaboðum um að þetta sé
litið alvarlegum augum og fá fólk til
þess að hugsa sinn gang og í von um
að það verði þá kannski til þess að
fæla einhverja frá því að stunda þessi
brot,“ sagði Gunnar m.a.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins leikur grunur á því að nöfn-
um sakborninganna fjögurra í þessu
máli hafi verið lekið til fjölmiðla.
Nöfnin hafi birst strax í kjölfar fund-
arins. Þar voru þeir ekki nefndir á
nafn en fyrirtæki þeirra tilgreint. Þá
var aldur þeirra gefinn í skyn. „Ætli
þeir séu ekki á fertugsaldri … Nú
verð ég að taka fram að ég er að lýsa
rannsóknarefni þessa máls, rannsókn
er nýhafin en það eru sterkar grun-
semdir um að brotin séu með þessum
ætti,“ sagði Helgi Magnús m.a. við
blaðamenn.
Gengið nærri mannréttindum
Fram kemur í dómi Hæstaréttar,
þegar frávísunarkrafa var felld úr
gildi í apríl 2014, átta mánuðum áður
en mennirnir voru sýknaðir í Héraðs-
dómi Reykjaness af þeim ákærulið-
um sem eftir voru, að gengið hafi ver-
ið nærri mannréttindum mannanna
með þessum blaðamannafundi.
„Það verður þó að telja, eins og
málum var háttað, að vegið hafi verið
nærri ákvæðum 2. mgr. 70. gr.
stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr.
33/1944 og 2. mgr. 6. gr. mannrétt-
indasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/
1994.“ Þá segir í 70. grein stjórn-
arskrárinnar að „hver sá sem er bor-
inn sökum um refsiverða háttsemi
skal talinn saklaus þar til sekt hans
hefur verið sönnuð“. Með líku segir í
umræddri grein í Mannréttinda-
sáttmálanum, að „hver sá sem borinn
er sökum um refsiverða háttsemi
skal talinn saklaus uns sekt hans er
sönnuð að lögum“.
Mennirnir voru sýknaðir í Héraðs-
dómi Reykjaness í lok síðasta árs.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lög-
maður eins sakborninganna, segir
áfrýjunina til Hæstaréttar varða það
hvort þessa aðila skorti starfsleyfi.
Seðlabankinn var í óvissu um reglur
Aðallögfræðingur Seðlabankans lýsti í tölvubréfum yfir óvissu um gildi gjaldeyrisreglna bankans
Fjöldi aðila rannsakaður út frá reglunum Telji menn á sig hallað í rannsóknum geta þeir sótt bætur
Morgunblaðið/Ernir
Seðlabanki Íslands Fjöldi aðila var til rannsóknar vegna meintra brota á gjaldeyrisreglum bankans.
Ólafur Þór
Hauksson
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, gagnrýnir harð-
lega framgöngu Seðlabankans við
rannsóknir á meintum gjaldeyris-
brotum. Sérstakur saksóknari
felldi í byrjun september niður
rannsókn á Samherja, sem Seðla-
bankinn kærði til embættisins í
september 2013. Málið hófst með
húsleit sem unnin var í samstarfi
gjaldeyriseftirlits Seðlabankans
og embættis sérstaks saksóknara
hinn 27. mars 2012.
„Það er stjórnvalda að þekkja
reglurnar. Dómstólar eiga að veita
stjórnvöldum aðhald. Ég hef gagn-
rýnt að Seðlabankanum hefur ver-
ið leyft að fara fram með fullyrð-
ingar fyrir dómstólum sem þeir
hafa ekki þurft að rökstyðja eða
sanna. Dómstólar hafa brugðist í
þessum málum,“ segir hann.
„Varðandi Aserta-málið hef ég
sagt lengi að það er nýtt Geirfinns-
mál. Það er búið að draga þarna
unga menn, taka af þeim vinnuna,
hugsanlega rústa þeirra líf, mögu-
leika til starfa og svo framvegis.
Það er búið að draga þessa menn í
gegnum kerfið í samtals yfir 20 ár.
Málið byrjar með blaðamanna-
fundi [29. janúar
2010] sem vart á
sér fordæmi.
Þetta er búið að
ganga í allan
þennan tíma. Og
eins og þetta hafi
ekki verið nóg
halda ákæruvald-
ið og Seðlabank-
inn áfram að
reyna að sakfella þá, eftir að búið
er að fella niður flestar ákærurnar
og sýkna af því sem eftir stóð af
fjölskipuðum héraðsdómi. Ég spyr
bara hverjir geta leyft sér þetta?
Menn verða að átta sig á því hvað
er búið að gera þessum mönnum
og fjölskyldum þeirra. Þessir menn
höfðu drauma og væntingar um
lífið og menntuðu sig til að láta
þessa drauma rætast. Hafandi
horft á þetta mál og fylgst með því
er þetta orðið fyrir mér nýtt Geir-
finnsmál.“
Þorsteinn Már segir máli Sam-
herja ekki lokið.
„Mannorð og mannréttindi
verða ekki metin til fjár. Við mun-
um ekki sækja fjárhagslegar bæt-
ur. Málinu er þó ekki lokið.“
DÓMSTÓLAR SAGÐIR HAFA BRUGÐIST
Þorsteinn Már
Baldvinsson
Forstjóri Samherja líkir Aserta-
málinu við Geirfinnsmálið
Bréf umboðs-
manns Alþingis
til fjármála- og
efnahags-
ráðherra, for-
manns banka-
ráðs
Seðlabankans,
seðlabankastjóra
og stjórnskip-
unar- og eft-
irlitsnefndar Al-
þingis var tekið fyrir hjá
nefndinni á fimmtudaginn. Í bréf-
inu er fjallað um kvartanir vegna
framkvæmdar SÍ á reglum um
gjaldeyrismál.
Ögmundur Jónasson, formaður
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar,
segir nefndina hafa tekið formlega
við bréfi umboðsmanns Alþingis.
„Það er talsvert að vöxtum og
krefst rækilegrar yfirferðar. Við
höfum hafið þá yfirferð með það
fyrir augum að kanna hvort við
þurfum að bregðast við því á ein-
hvern hátt,“ segir hann.
Þingnefnd tekur
bréfið til meðferðar
Ögmundur
Jónasson
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Kattafóður
–Aðeins það besta fyrir köttinn þinn!