Morgunblaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Óðinn var léttur og skemmtilegur. Hann var mjög góður söngvari eins og best sést á laginu hans sem allir eru núna að syngja,“ segir Ragnar Bjarnason söngvari í samtali við Morgunblaðið. Lagið sem um ræðir þekkir þjóðin. „Ég er kominn heim“ er það yfirleitt kallað og nýtur svo mikilla vinsælda um þessar mundir að það er sungið hvarvetna þar sem Íslendingar koma saman til mann- fagnaðar, en vinsælast er það á knattspyrnulandsleikjum. Svo vin- sælt að talað er um nýjan þjóðsöng. „Maður fær alveg gæsahúð þegar það heyrist,“ sagði einn viðmæl- enda blaðsins. Lagið verður eflaust sungið hátt og snjallt í dag, þegar Ísland mætir Lettlandi. Hver var Óðinn? Aftur á móti þekkja færri mann- inn að baki söngnum, Óðin Valdi- marsson, sem upphaflega gerði lag- ið frægt. „Tíu árum eftir andlát hans gekk eitt af lögum hans í end- urnýjun lífdaganna,“ segir í pistli sem birtist á Pressunni í vor og er eftir Jón Óðin Waage, son Óðins. „Hann fékk þá viðurkenningu sem hann hafði þráð í marga áratugi. En hún kom tíu árum of seint,“ skrifar hann og bætir við: „Það á að heiðra fólk meðan það er lifandi.“ Óðinn var fæddur á Akureyri snemma árs 1937, sonur fátæks verkafólks. „Það var engin efn- hagsleg meðgjöf, en þeim mun meira af umhyggju og ást. Það var reyndar meðfæddur hæfileiki þessa unga manns, allir elskuðu hann. Gáskinn heillaði alla. Hann var allt- af hrókur alls fagnaðar,“ skrifar sonur hans. Söngferillinn hófst fyrir tilviljun. „En risið upp á hinn litla stjörnu- himin sem Ísland skartaði var hratt. Hvert lagið á fætur öðru náði vinsældum, honum var boðið til höfuðstaðar landsins til að syngja með vinsælustu hljómsveit lands- ins. En fyrir ungan, fátækan Eyr- arpúka var þetta hættuleg vegferð. Að vera frá náttúrunnar hendi heillandi umfram flesta þá bætir það ekki að verða vinsælasti dæg- urlagasöngvari landsins,“ segir Jón Óðinn og rekur hvernig faðir hans hraktist úr landi og við tók ferill flakkarans um heim allan. Allt var breytt Þegar Óðinn sneri heim mörgum árum seinna var allt breytt. Skemmtanabransinn var annar og nýjar stjörnur á himninum. „Hann komst hvergi að, fallega röddin fékk bara að hljóma í sam- kvæmum, þar var hann enn aufúsu- gestur, enn sama samkvæm- isljónið,“ skrifar sonur hans og heldur áfram: „Þannig liðu árin og áratugirnir, áfengið réði för, hann var alveg búinn að missa stjórn á þeim fylginaut. Alltaf blundaði samt draumurinn um endurkomu, hann hafði reynt en ekki orðið ágengt. Að lokum fór líkaminn að gefa sig. Krabbamein tók sér bólfestu í hálsinum og eyðilagði röddina. Hann gat ekki einu sinni talað leng- ur. Fyrir honum voru þetta enda- lokin, hann tók þá ákvörðun að drekka sig í hel. Honum tókst það. Fáir fylgdu honum til grafar, örfáir vinir sem höfðu reynst sannir vinir þegar á reyndi. Ein minninargrein birtist í fjölmiðlum, lítil stúlka sem hann hafði gengið í afastað skrif- aði hana. Engin lög voru spiluð honum til heiðurs á útvarps- stöðvum. Hann yfirgaf þennan heim vinafár.“ Byrjaði aftur með Björgvin Fram kom í útvarpsþætti á dög- unum að endurnýjaður áhugi á laginu „Ég er kominn heim“ hefði hafist með Íslandslagaplötu Björgvins Halldórssonar 2003. Smám saman hefði lagið náð fót- festu og fjölmargir söngvarar og kórar gert sínar útgáfur af laginu. Það er eftir ungverskan gyðing, Emmerich Kalman, og var upp- haflega samið fyrir óperettu árið 1930. Mun það hafa borist hingað til lands með bíómynd í lok sjötta áratugarins. Jón Sigurðsson þýddi textann. Það varð smellur þegar það kom á plötu með KK og Óðni. Lagið sem allir eru að syngja  „Ég er kominn heim“ sem Óðinn Valdimarsson gerði frægt er eftirlæti þjóðarinnar  Söngvarinn varð stjarna ungur en réð ekki við frægðina  „Mikill missir að honum,“ segir Ragnar Bjarnason Söngvari Óðinn (t.v.) með Helenu Eyjólfs, Ingimar Eydal og félögum 1959. Morgunblaðið/Golli Tólfan Stuðningsmannasveitin Tólfan hefur gert lag Óðins Valdimarssonar að sínu og syngur það ótt og títt við góðar undirtektir annarra áhorfenda á landsleikjum Íslands. „Það er mikill missir að honum. Þessi strákur hafði alveg einstaka rödd, rödd sem enginn annar hafði,“ segir Ragnar Bjarnason sem kynntist Óðni ungum. „Ég syng þetta lag hans oft, síðast í samkvæmi á laugardaginn,“ sagði Ragnar. „Ég er alveg í skýjunum yf- ir þeirri viðurkenningu sem hann er að hljóta og átti skilið að fá miklu fyrr.“ Ellý Vilhjálms söng með Óðni með KK. Hún minntist hans í útvarpsviðtali og sagði þá: „Hann gat verið svo fyndin, hann Ódi. Stundum sá hann að það lá eitthvað illa á manni. Þá þurfti hann ekki annað en að setja fing- urna undir sitt hvort axlarbandið og segja: „Góðir Íslendingar!“ og svo söng hann! „Hæ, tröllum á meðan við tór- um“ alveg svo kvað við! Og ég þurfti ekki meir, ég hló og hló og hló. Ómissandi svona menn. Bjarga deginum!“ Mikill missir að honum MEÐ EINSTAKA RÖDD Ragnar Bjarnason Er völlur grær og vetur flýr og vermir sólin grund. Kem ég heim og hitti þig, verð hjá þér alla stund. Við byggjum saman bæ í sveit sem brosir móti sól. Þar ungu lífi landið mitt mun ljá og veita skjól. Sól slær silfri á voga, sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim, því ég er kominn heim. Að ferðalokum finn ég þig sem mér fagnar höndum tveim. Ég er kominn heim, já, ég er kominn heim. „Ég er kom- inn heim …“ TEXTI ÖÐLAST NÝTT LÍF Meira úrval Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 10-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku MYRKVAGLUGGATJÖLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.