Morgunblaðið - 10.10.2015, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Senegal-flúra hefur verið flutt fersk
á erlenda markaði vikulega frá því í
mars. Meginhlutinn er fluttur kæld-
ur með skipum til Evrópu en einnig
stöku flugi og um 20% framleiðsl-
unnar fer með flugi til Bandaríkj-
anna.
„Við reynum að slátra fiskinum
sama dag og hann fer í skip eða flug.
Helst þannig að við getum verið að
pakka síðasta sporðinum þegar bíll-
inn kemur til að sækja sendinguna,“
segir Ólafur Arnarson, fram-
kvæmdastjóri Stolt Sea Farm Ice-
land ehf. sem rekur eldisstöðina í
Höfnum á Reykjanesi. Fiskinum er
pakkað í Sandgerði fyrir flutning á
erlendan markað.
Helstu markaðssvæðin eru Spánn
og Bretland en einnig Frakkland og
Ítalía. Þá fer hluti framleiðslunnar
til Boston og New York í Bandaríkj-
unum.
Fínstilla framleiðsluna
Framleiðslan er komin í gott horf.
„Það er kominn stöðugleiki í fram-
leiðsluna. Núna erum við að fínstilla
hana. Kominn er góður kjarni
starfsmanna. Markmiðið fyrir árið
2016 er að framleiða 550 tonn og full-
nýta fyrsta áfanga stöðvarinnar,“
segir Ólafur. Tuttugu starfsmenn
eru hjá fyrirtækinu.
„Það er bara stækkun fram-
undan,“ segir Ólafur um næstu
skref. Ætlunin er að þrefalda hús-
plássið þannig að það verði 75 þús-
und fermetrar og auka framleiðsl-
una upp í tvö þúsund tonn á ári.
Verður væntanlega byrjað á fram-
kvæmdinni í lok næsta árs eða byrj-
un árs 2017.
Styrjueldi í tilraunaskyni
Í stöðinni er verið að gera til-
raunir með eldi á styrju en móð-
urfélagið er með styrjueldi í Kali-
forníu í Bandaríkjunum. Eldið er
langtímaverkefni því það tekur að
minnsta kosti átta ár að ala styrju
þangað til hún er komin með
hrognafyllingu og hægt er að skera
hrognin úr hrygnunni. Til mikils er
að vinna því að styrjuhrogn, kavíar,
er afar verðmæt afurð.
Í stöðinni eru gerðar tilraunir með
mismunandi seltustig og hitastig á
sjónum sem styrjan er alin í. Ólafur
segir að nú sé verið að athuga hvort
jarðsjórinn sem stöðin hefur aðgang
að hjá Reykjanesvirkjun henti til
eldisins.
Undirbúa fjór-
földun fram-
leiðslunnar
Senegal-flúra frá Höfnum flutt viku-
lega á markaði austan hafs og vestan
Morgunblaðið/Eggert
Senegal-flúra Fiskur búinn til út-
flutnings í fiskvinnslu í Sandgerði.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Minkur hefur gert sig heimakominn í miðborginni síð-
ustu vikur og hans orðið vart á fleiri stöðum en síðustu
ár. Guðmundur Þorbjörn Björnsson, rekstrarstjóri
Meindýravarna Reykjavíkur, segir að víðast hvar á land-
inu hafi mink fækkað á síðustu árum og borgin sé þá ekki
undanskilin. Hins vegar hafi sú breyting orðið í ár að
meira hafi orðið vart við mink í borgarlandinu. „Hér
virðist hafa orðið aukning og töluvert verið kvartað
vegna minks og meira heldur en undanfarin ár,“ segir
Guðmundur.
Á hárgreiðslustofu á Skólavörðustíg
Hann segir að sú breyting hafi orðið frá síðustu árum
að minks hafi ekki aðeins orðið vart í úthverfum heldur
einnig óvenju mikið í miðborginni. Hann nefnir að nýlega
hafi orðið uppi fótur og fit er minkur heimsótti hár-
greiðslustofu á Skólavörðustígnum. Sá var rekinn öfugur
út og sást síðast á leið upp Skólavörðustíg.
Minkar gjóta að vori og læðan fer yfirleitt á stjá með
yrðlingana í júlímánuði. Þeir fara síðan frá henni þegar
líður á ágúst. „Þá kunna þeir tæpast fótum sínum forráð
og fara gjarnan á flakk hingað og þangað. Slíkt hefur
gerst áður hér í Reykjavík, en kannski ekki í sama mæli
og núna,“ segir Guðmundur.
Í eyjum og meðfram ám
Hann segir að nýlega hafi frést af fimm minkum sem
voru saman á hafnasvæðinu. Tveir þeirra hafi náðst í
fjörunni við garðinn sem liggur frá Hörpu út í hafn-
armynnið og einn við gamla Slysavarnafélagshúsið á
Grandagarði. Í fyrradag hafi frést af mink á ferð við
Hörpuna, en hann var horfinn þegar meindýraeyðir kom
á vettvang. Það gæti verið sama dýr og var á ferðinni á
þessum slóðum á sama tíma og Sinfóníutónleikar fóru
fram í Hörpu í fyrrakvöld.
Minkur er víða í útjaðri borgarinnar, upp með Elliða-
ám, Korpu og Leirvogsá og nokkrum eyjanna á Sund-
unum. Guðmundur segir að minkur hafi náðst í Engey,
Viðey og Þerney.
Ljósmynd/Jóhann Gunnar Helgason
Í ætisleit Minkur við Ingólfsgarð, nálægt Hörpu, í fyrrakvöld. Þrír minkar hafa náðst við höfnina á síðustu vikum.
Minkur gerir sig heima-
kominn í miðborginni
Töluvert kvartað og meira heldur en undanfarin ár
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
hefur skoðað annan gúmmíbjörg-
unarbát dragnótarbátsins Jóns Há-
konar BA sem hvolfdi skyndilega og
sökk út af Aðalvík í byrjun júlí sl.
Fangalínan hafði ekki dregist nægi-
lega út til að opna bátinn. Ekki er
vitað um ástæður þess.
Hvorugur björgunarbátur fiski-
skipsins flaut upp þegar skipinu
hvolfdi. Þrír skipverjar komust á
kjöl og biðu þar björgunar í um
klukkustund en fjórði skipverjinn
fórst.
Neðansjávarmyndir sem rann-
sóknarnefndin aflaði sýndi að annar
báturinn var fastur í sínum gálga og
hafði ekki losnað frá eins og hann
átti að gera. Hinn hafði losnað og lá
á hafsbotni skammt frá flaki skips-
ins. Sá björgunarbátur lenti í veið-
arfærum fiskiskips á dögunum og
opnaðist við það.
Jón Arilíus Ingólfsson rannsókn-
arstjóri segir að áður hafi sést að
fangalínan hafi dregist út en ekki
nóg til að báturinn opnaðist. Hann
hefur væntanlega verið undir Jóni
Hákoni í þann klukkutíma sem hann
flaut á hvolfi og boxið fyllst af vatni.
Jón segir ómögulegt að segja til um
hvað hafi gerst, hvort báturinn hafi
krækst einhvers staðar í og þess
vegna hafi línan ekki togast alla leið
út. Enginn galli hefur fundist á bún-
aðinum við skoðun rannsóknar-
manna.
Ekki er heldur vitað hvers vegna
hinn báturinn losnaði ekki og hvers
vegna Jóni Hákoni hvolfdi. Jón segir
að verið sé að rannsaka slysið. „Við
erum að reikna okkur í það hvað
þurfi að ganga á til þess að þetta
gerist.“ Hann segir að ekki hafi ver-
ið ákveðið að taka skipið upp til að
rannsaka það nánar, hvað sem síðar
verði. Rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa taki ákvörðun um slíkt.
helgi@mbl.is
Fangalínan dróst
ekki nógu langt út
Skoða björgunarbát Jóns Hákonar
Ljósmynd/Jón Páll Jakobsson
Fiskiskip Jón Hákon BA á veiðum.