Morgunblaðið - 10.10.2015, Síða 22
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Segja má að salan á um 10% hlut í
Símanum fyrir almennt hlutafjárút-
boð hafi falið í sér ákveðna áhættu-
dreifingu fyrir bankann. Þannig var
hægt að bjóða hæfilega stóran hlut í
hlutafjárútboðinu en jafnframt ná
eignarhlut bankans niður fyrir 10%
að skráningu lokinni,“ segir Haraldur
Guðni Eiðsson, forstöðumaður sam-
skiptasviðs Arion banka, spurður um
ástæðu þess að bankinn seldi hópi
fjárfesta hlut í Símanum skömmu fyr-
ir útboð. Í aðdraganda þess að bank-
inn bauð 21% hlut í Símanum til
kaups í almennu útboði seldi hann
fjárfestahópi um 5% hlut í fyrirtæk-
inu á genginu 2,5 og völdum við-
skiptavinum bankans hlut af svipaðri
stærðargráðu á genginu 2,8. Í útboð-
inu reyndist meðalgengi á hlutum í fé-
laginu vera 3,33 eða 19-33% hærra en
gengið sem hóparnir tveir fengu að
kaupa hluti sína á. Mismunurinn
nemur um 720 milljónum króna.
Leituðu besta verðsins
Haraldur segir að bankinn hafi vilj-
að tryggja að ekki yrði of mikið fram-
boð af bréfum í útboðinu sem lauk
fyrr í vikunni.
„Við ákvörðun á fyrirkomulagi á
sölu á 38% hlut bankans í Símanum
var horft til ýmissa þátta, svo sem
framboðs og væntrar eftirspurnar,
sem og samsetningar hluthafa félags-
ins. Grunnmarkmið bankans við söl-
una var að hámarka söluandvirði
hlutarins sem og að tryggja farsæla
skráningu og stuðla að góðum mark-
aði eftir skráningu. Of mikið framboð
af bréfum í tengslum við skráningu
eða eftir skráningu gæti gengið þvert
á þau markmið.“ Haraldur segir að við
verðlagningu á hlutabréfunum hafi
verið litið til þess að þeir sem keyptu
hluti fyrir útboðið eru bundnir að því
að halda í hlutina í ákveðinn tíma.
„Helmingur af þessum 10% hlut var
seldur eftir að tilboð barst frá fjár-
festahópi í kringum stjórnendur Sím-
ans og var talið að það myndi styrkja
félagið fyrir hlutafjárútboðið og til
framtíðar. Hinn helmingurinn var
seldur til breiðs hóps viðskiptavina
bankans. Í fyrra tilfellinu voru 18
mánaða söluhömlur og í því síðara 3ja
mánaða. Meiri áhætta er fólgin í því að
kaupa hlutabréf með söluhömlum sem
réttlætir lægra verð enda óvíst hvern-
ig hlutabréfaverð þróast og hvert það
verður þegar söluhömlum verður af-
létt,“ segir Haraldur.
Segja áhættustýringu hafa
ráðið för hjá bankanum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Útboð Arion banki hefur á síðustu sjö vikum minnkað hlut sinn verulega í Símanum og á nú 7% í stað 38% áður.
Arion banki segir að óvissa hafi verið uppi um þátttöku í hlutafjárútboði Símans
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
!
"#
#$%
!
#
#!"
"% "
!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!"
!"
%
$ "!
!"
%
$
#%"
"
!
#
!
%$
#
#
#"
#%
# "
"%!
!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Gengi langtíma ríkisbréfa hefur
hækkað mikið síðastliðinn mánuð eða
um 4,3%. Það jafngildir um 66%
hækkun á ársgrunni, að því er fram
kemur í skuldabréfayfirliti Capacent. Að
meðaltali hefur gengi óverðtryggðra
ríkisbréfa hækkað um 1,9% síðastliðinn
mánuð. Hækkunin hefur verið mjög
misjöfn eftir flokkum en gengi skamm-
tíma ríkisbréfa hefur lítið hækkað eða
vel innan við eitt prósent.
Capacent bendir á að stýrivextir
Seðlabankans myndi vaxtaviðmið sem
aðrir vextir eiga að fylgja, en á meðan
stýrivextir Seðlabanka hafa hækkað um
hálft prósentustig hafi vextir á markaði
lækkað um 1,3 prósentustig. Seðla-
bankinn virðist því hafa misst stjórn á
vaxtaskipinu tímabundið í það minnsta,
að því er segir í skuldabréfayfirliti
Capacent.
Gengi langtíma ríkis-
bréfa hækkað um 4,3%
● Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar
til ágúst sýnir að tekjujöfnuðurinn var
lítillega jákvæður sem er betri staða en
gert hafði verið ráð fyrir. Innheimtar
tekjur jukust um 24,4 milljarða milli ára
og greidd gjöld jukust um 37,3 milljarða.
Tekjur ríkissjóðs námu 429,3 milljörðum
og gjöld námu 428,9 milljörðum króna.
Betri staða ríkissjóðs
en gert var ráð fyrir
STUTTAR FRÉTTIR ...
Kvika er nýtt nafn á MP Straumi
sem varð til við samruna MP banka
og Straums fjárfestingabanka. Nýja
nafnið var kynnt starfsfólki síðdegis
í gær og tekur nafnbreyting gildi í
kjölfar hluthafafundar sem haldinn
verður á mánudagsmorgun. Þá verð-
ur vefsíðu bankans og heimabankans
breytt.
Í tilkynningu segir að nafnið vísi í
óbeislaða orku íslenskrar náttúru,
jarðkvikuna sem iðar og hrærist,
umbreytir og skapar spennu. Sam-
hliða nafnbreytingunni verður tekið
upp nýtt merki.
„Með nafnbreytingunni erum við
að stíga síðasta formlega skrefið í
sameiningu tveggja öflugra fjár-
málafyrirtækja. Að vissu leyti er
þetta nýtt upphaf fyrir bankann,
sem þó byggir áfram á þeim góða
grunni sem lagður var í Straumi fjár-
festingabanka og MP banka. Við er-
um afskaplega ánægð með að vera
orðin Kvika og vonum að viðskipta-
vinir verði jafn ánægðir með nýtt
nafn og breyttar áherslur sameinaðs
banka,“ segir Sigurður Atli Jónsson,
forstjóri Kviku.
Ný fjárfestingarstefna
Kviku er samkvæmt tilkynningu
ætlað að vera umbreytingabanki
sem sérhæfir sig í alhliða þjónustu
við sparifjár- og innlánseigendur á
sviði eignastýringar. Kvika hyggst
fyrst íslenskra banka innleiða nýja
fjárfestingarstefnu sem snýr að
samvinnu bankans og viðskiptavin-
arins og nefnd er „partnership bank-
ing“. Að sögn bankans miðar stefnan
að heildarhag allra; viðskiptavina,
eigenda og starfsmanna.
Morgunblaðið/Golli
Kvika Sigurður Atli Jónsson segir
nýtt nafn síðasta skref sameiningar.
MP Straumur
verður Kvika
Hyggst sérhæfa
sig í umbreyting-
arverkefnum
Samkvæmt kaupréttaráætlun sem
eigendur Símans hafa samþykkt
mun fyrirtækið gefa út nýtt hlutafé
á næstu þremur árum að að nafn-
verði allt að 510 milljónir. Það
hlutafé munu starfsmenn fyrir-
tækisins geta keypt næstu þrjú árin
á genginu 2,5 óháð því hver
verðþróun verður á markaði. Sam-
kvæmt skráningarlýsingu Símans
hafa 613 starfsmenn skráð sig fyrir
liðlega 438 þúsund hlutum fyrir 1,1
milljarð króna. Sé miðað við meðal-
útboðsgengið hefur kaupréttur
starfsfólksins þegar vaxið að verð-
gildi um 356 milljónir króna.
Í skráningarlýsingu kemur fram
að Orri Hauksson, forstjóri Símans,
hefur keypt um 0,47% hlutafjár í
eigin nafni og í gegnum tengda að-
ila. Kaupverð hlutarins er 115 millj-
ónir króna miðað við gengið 2,5
krónur á hlut. Verðgildi hlutar Orra
er komið í 152 milljónir króna miðað
við meðaltalsverðið í útboðinu í vik-
unni.
Starfsfólk kaupir á lægra gengi
VERÐGILDI HLUTAR FORSTJÓRANS HÆKKAÐI UM 37 MILLJÓNIR
Ertu þreytt á að vera þreytt?
Getur verið að þig vanti járn?
Magnaðar járn- og bætiefnablöndur
úr lífrænt ræktuðum jurtum
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum