Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Óskum eftir
nýlegumbílum
á skrá.
Mikil sala
þessa dagana!
M.BENZML 270CDI 07/2004, ekinn aðeins
155 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ 2.190.000.
Raðnr.254129
NISSANQASHQAI SE 06/2011, ekinn 77 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur, ný heilsársdekk.Verð 3.290.000. Raðnr.254190
BMW520D XDRIVE F10 04/2014, ekinn 28 Þ.km,
diesel, sjálfskipturmjög vel útbúinn stórglæsilegur bíll!
Tilboðsverð 8.990.000. Raðnr.254156
AUDI A6 2,0 TDI 03/2013, ekinn 48 Þ.km, 2,0 diesel,
sjálfskiptur. 19“ álfelgur, leður og alcantaraálæði o.fl.
Verð 7.390.000. Raðnr. 254090
VW JETTA COMFORTLINE DIESEL 03/2006,
ekinn 142 Þ.km, 5 gíra. Aukafelgummeð vetrardekkjum.
Verð 1.390.000. Raðnr.253863
VOLVO S60MOMENTUM 10/2012, ekinn 44 Þ.km,
diesel, 6 gíra, leður. Verð 3.590.000. Raðnr.253970
M.BENZ GL 550 AMG4MATIC 03/2008, ekinn 43
Þ.km, 383 hö, bensín, sjálfskiptur, 7manna.Verð 8.880.000.
Raðnr.253292
AUDI A6 2,0 TDI 05/2012, ekinn 50 Þ.km, 2,0 diesel,
sjálfskiptur. 17“ álfelgur, leður, o.fl. Eins og nýr!
Verð 6.490.000. Raðnr. 254089
VWPASSATHIGHLINE 4MOTION 06/2007, ekinn
131 Þ.km, dísel, 6 gíra, aukadekk á álfelgum.Verð 1.890.000.
Raðnr.230113
ROVERMINI 04/1994, ekinn 78 Þ.km.
Bíll sem er tekið eftir! Verð 1.290.000. Raðnr.254151
HYUNDAI TUCSON 4x4 04/2006, ekinn 165 Þ.km,
diesel, 6 gíra. Einn eigandi! Verð 1.090.000. Raðnr.286459
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Dragi ekki úr reykingum í Kína er líklegt að
þær valdi tveimur milljónum dauðsfalla á ári
innan fimmtán ára, tvöfalt fleiri en árið 2010,
að því er fram kemur í grein í tímaritinu The
Lancet um viðamikla rannsókn.
Haldi svo fram sem horfir er líklegt að einn
af hverjum þremur ungum kínverskum karl-
mönnum deyi síðar á ævinni af völdum reyk-
inga, að sögn vísindamanna sem önnuðust
rannsóknina. Dauðsföllin eru færri meðal
kínverskra kvenna, enda reykja þær miklu
minna en karlmennirnir.
„Um það bil tveir af hverjum þremur ung-
um kínverskum karlmönnum verða reyk-
ingamenn og flestir byrja að reykja áður en
þeir verða tvítugir. Hætti þeir ekki að reykja
deyr helmingur þeirra af völdum reykinga
síðar á ævinni,“ sagði einn höfunda greinar-
innar, Zhengming Chen, vísindamaður við
Oxford-háskóla. Dragi ekki úr reykingum í
Kína er líklegt að dauðsföllum af völdum
þeirra fjölgi úr einni milljón árið 2010 í tvær
milljónir á ári innan fimmtán ára og í þrjár
milljónir fyrir árið 2050, að sögn vísinda-
mannanna.
Rannsóknin leiddi í ljós að dregið hefur úr
reykingum meðal kínverskra kvenna á vinnu-
aldri. Um 10% kvenna sem fæddust á fjórða
áratugnum reyktu en aðeins 1% þeirra sem
fæddust á sjöunda áratugnum.
Kínverjar reykja um þriðjung allra vind-
linga sem seldir eru í heiminum og eitt af
hverjum sex dauðsföllum af völdum reykinga
verður í Kína. Af um 1,4 milljörðum íbúa
landsins dóu 840.000 karlmenn og 130.000
konur á árinu 2010 af völdum sjúkdóma sem
raktir eru til reykinga. Reykingamenn eru
tvöfalt líklegri til að deyja ótímabærum dauð-
daga en þeir sem reykja ekki. bogi@mbl.is
Heimild : Lancet
Árlegur fjöldi dauðsfalla af völdum reykinga stefnir í að tvöfaldast í Kína fyrir árið 2030
samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birtar voru í tímaritinu The Lancet
Dánartíðni reykingamanna
Reykingar drepa þannig:Talið er að dauðsföll af völdum
reykinga þrefaldist fyrir 2050
2010
1 milljón
2 milljónir
3 milljónir
Spá
Dauðsföll á ári
2030 2050
Ávinningurinn
af því að hætta
að reykja
Helstu dánarorsakir
Allar dánarorsakir
Tveir af hverjum þremur
karlmönnum í Kína reykja
Hlutfall kvenna sem reykja
hefur lækkað, meðal þeirra
sem fæddust á sjöunda
áratugnum er það 1%
Byggist á tveimur
rannsóknum sem
náðu til 730.000
Kínverja
2,12
1,21
1,55
1,00 0,98
1,32
Dauðsföll af völdum reykinga í Kína
Byrja að reykja undir 20 ára aldri
1,98 1,39 1,221,65
1,41
4,61
2,30
2,98
1,24
1,63
Óháð byrjunaraldri
Minna en 5
árum eftir að hætt var
5-14 15 +
(2,0 = tvöfalt líklegri til að deyja snemma en þeir sem reykja ekki)
1,889,09
2,91
3,78
1,37
2,03
Langvinnur
lungnasjúkdómur
Lungna-
krabbamein
Hjartasjúk-
dómar eða
heilablóðfall
1,0
1,5
2,0
2,5
Karlar í borgum
Hættu að reykja
vegna heilsubrests
Karlar í dreifbýli
Hættu þegar
þeir voru
heilbrigðir
Reykja ekki (= 1,0)
Dánartíðni
meðal þeirra
sem reykja ekki
Dauðsföllin gætu tvöfaldast innan 15 ára
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar,
sagði í gær að gert væri ráð fyrir að hælis-
umsóknum fjölgaði í 150.000 í landinu í ár og
vandkvæði væru á því að útvega húsnæði fyrir
fólkið.
„Síðustu sjö daga hafa 8.899 manns komið
hingað. Haldi svo fram sem
horfir verður fjöldi hælis-
leitendanna kominn í
150.000 í lok ársins,“ sagði
Löfven á blaðamannafundi.
Svíþjóð er með 9,8 millj-
ónir íbúa og eitt þeirra
Evrópusambandsríkja sem
hafa tekið við flestum
hælisleitendum miðað við
höfðatölu.
Löfven sagði að erfitt
væri að útvega húsnæði
fyrir hælisleitendur og að minnihlutastjórn
Jafnaðarmannaflokksins hefði heimilað stofn-
un, sem annast móttöku þeirra, að setja upp
tjöld fyrir þá. Morgan Johansson, sem fer með
málefni innflytjenda, lagði áherslu á að tjöldin
yrðu upphituð, enda væri hitinn á næturnar
nálægt frostmarki um þessar mundir víða í
Svíþjóð.
Fyrstu níu mánuði ársins sóttu 73.000
manns um hæli í Svíþjóð. Umsóknirnar voru
rúmlega 81.000 á síðasta ári, en aðeins um
36.000 fengu hæli.
Taka við Erítreumönnum frá Ítalíu
Fyrsti hópurinn, sem fluttur hefur verið
milli ESB-landa samkvæmt umdeildum flótta-
mannakvótum, kom til Svíþjóðar í gær. Í
hópnum eru nítján Erítreumenn sem höfðu
dvalið á ítalskri eyju eftir að þeim var bjargað
á Miðjarðarhafi.
Setja upp
tjöld fyrir
flóttafólk
Flóttafólk kem-
ur til Svíþjóðar.