Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Sergei Karjakin sem fæddurer og uppalinn í Úkraínuen teflir nú fyrir Rússlander sigurvegari heimsbik-
armóts FIDE sem lauk í Baku í
Aserbadsjan sl. mánudag. Karjakin
var stálheppinn að vinna keppnina.
Það gerði gæfumuninn að hann var
sterkari á taugum en eldri and-
stæðingar hans. Þannig var afar
gremjulegt fyrir Úkraínumanninn
Pavel Eljanov í undanúrslitum að
leyfa Karjakin sem var með koltap-
að tafl að fá upp sömu stöðuna
þrisvar í 6. skák einvígis og missa
þannig af tækifæri til að fylgja eftir
magnaðri frammistöðu á fyrri stig-
um; Eljanov hlaut 9 ½ úr 12 kapp-
skákum. Úrslit í fimm af sjö ein-
vígjum Karjakins réðust í skákum
með styttri umhugsunartíma. Alls
hófu 128 skákmenn heimsbik-
armótið og stóð keppnin í 25 daga.
Úrslitaeinvígi sitt háði Karjakin við
Rússann Peter Svidler og þeir
tefldu samtals 10 skákir og ekki
einni einustu lauk með jafntefli!
Fyrst tefldu þeir fjórar kappskákir
og Svidler vann tvær fyrstu tvær
og þurfti aðeins jafntefli í tveim síð-
ustu. En hið mikla álag á tauga-
kerfið sem fylgir keppni af þessu
tagi varð honum um megn. Í væn-
legri stöðu þriðju einvígisskák-
arinnar gerðist þetta:
3. skák:
Svidler – Karjakin
27. Hbe1(?)
„Þú leikur alltaf vitlausa hrókn-
um,“ stóð einhversstaðar skrifað.
Eftir 27. Hfe1! er hvíta staðan unnin
t.d. 27. … Df5 28. Hbc1! Rd3 29. Hf1
o.s.frv. eða 27. … Dxe3 28. Hxe3 e5
29. Rd7! o. s.frv. Þrátt fyrir þessa
ónákvæmni er hvíta staðan enn mun
betri.
27. … exd5? 28. Hxf2??
Eftir 28. Dc3! getur svartur gefist
upp.
28. …Dh4 29. Dd2??
Algert hrun. 29. Dxe8 Dxf2+ 30.
Kh2 Dxb6 31. He7+ Kh7 32. Dd7
dugar til jafnteflis.
29. … Hxf2 30. Dc3+ d4!
– og Svidler gafst upp, 31. Dc7+
er svarað með 31. … Hf7! o.s.frv.
Degi síðar vann Karjakin fjórðu
kappskákina og jafnaði 2:2. Mánu-
daginn 5. október var svo tekið til
við skákir með styttri umhugs-
unartíma, fyrst atskákirnar, 25 10.
Aftur jafnt og samkvæmt reglum
tóknu nú við þá tvær hraðskákir
með tímamörkunum 10 10. Aftur
jafnt og nú staðan 4:4. Þá voru
tefldar tvær hraðskákir, 5 3. Í
þeirri fyrri var leikið svo óná-
kvæmt að undrum sætti. Þegar hér
er komið sögu í þeirri skák var
Svidler með mun betri tíma og
vinningsstöðu:
9. skák:
Karjakin – Svidler
Leik áður hafði Svidler sleppt
valdi á hróknum og nú vildi hann
laga kóngsstöðuna aðeins …
42. … Kg8?? 43. Dxb8+
Þar fauk hrókur fyrir ekki neitt og
Svidler gafst upp. Hann byggði upp
vinningsstöðu í 10. skákinni og færi
svo yrðu þeir að tefla svonefnda
„Armageddon-skák. En „tauga-
orkan“ sem Rússum er svo tíðrætt
um var búin og hann tapaði hörmu-
lega. Lokaniðurstaðan 6:4, Karjakin
í vil en þeir komast þó báðir í áskor-
endakeppnina.
Bragi efstur á Haustmóti TR
Bragi Þorfinnsson er efstur í
keppni A-riðils á Haustmóti Tafl-
félags Reykjavíkur sem nú stend-
ur yfir. Bragi hefur hlotið 4 ½
vinning af fimm mögulegum og á í
harðri keppni við Oiver Aron Jó-
hannesson og Einar Hjalta Jens-
son sem eru með 4 vinninga. Í B-
riðli eru Guðlaug Þorsteinsdóttir
og Agnar Tómas Möller efst með 4
vinninga en Guðlaug á skák til til
góða. Gauti Páll Jónsson er lang-
efstur í C-riðli með fullt hús eftir
fimm umferðir og í Opna flokknum
er Oliver Alexander Mai efstur
með 4 ½ vinning.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Taugaspenna í úrslitaeinvígi
Alþjóðlegi geðhei-
brigðisdagurinn er í
dag, 10. október.
Hann er haldinn að
undirlagi
Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar
(WHO) og skipulagður
í hverju landi eftir
nýju þema fyrir hvert
ár. Ákveðið þema er
valið eftir því hvaða
þáttum geðheilbrigðis talið er mik-
ilvægast að vekja athygli á. Þema
ársins 2015 er sérstaklega mik-
ilvægt en það er „Reisn og geð-
heilsa“ eða á ensku „Dignity in
Mental Health“. Bent er á hve
mikilvægt það er á heimsvísu að
huga að þessu þema því víða um
lönd eru aðstæður geðsjúkra léleg-
ar og heilbrigðsþjónusta ófullkomin
og mannréttindi þeirra brotin.
En full ástæða er til að hug-
leiða þessi mál hérlendis. Ein al-
gengasta ástæða örorku á Íslandi
hjá ungu fólki eru geðrænir sjúk-
dómar. Þeir sem þjást af erf-
iðustu geðsjúkdómunum veikjast
oft ungir og eru í
hættu að verða lang-
veikir og það tak-
markar tekjumögu-
leika þeirra og
afkomu. Það er því
erfitt að bera höfuðið
hátt og viðhalda reisn
og eðlilegri þátttöku í
samfélaginu og ekki
síður ef viðkomandi
mætir fordómum,
skilningsleysi og
höftum. Margt vantar
upp á hér til að bæta
atvinnuþátttöku geðsjúkra. Auka
þarf sérhæfðan stuðning við þá,
fræða vinnumarkaðinn og efla
skilning stjórnvalda. Ekki er gert
nægilega mikið til að auðvelda
þeim sem átt hafa við geðræn
veikindi að stríða að stunda nám
en þetta mætti samt gera með
auðveldum og ódýrum hætti og sá
kostnaður myndi örugglega skila
sér aftur til samfélagsins.
Forvarna- og fræðslusjóðurinn
ÞÚ GETUR! er sjálfseign-
arstofnun sem starfað hefur í sjö
ár. Allt starf er unnið í sjálfboða-
vinnu og án skrifstofu- eða launa-
kostnaðar. Fjármagn til sjóðsins
kemur frá velviljuðum ein-
staklingum og fyrirtækjum sem
styrkja starfs sjóðsins og eiga
miklar þakkir skildar fyrir. En
meginhluti styrktarfjár kemur frá
styrktartónleikum sem reynt er að
halda árlega og þar hafa bestu tón-
listarmenn landsins af örlæti gefið
vinnu sína og gert starf ÞÚ GET-
UR! mögulegt og verður þeim
seint fullþakkað. Góð samvinna
hefur verið við helstu fjölmiðla
sem hafa oft lagt sjóðnum lið og
dýrmætan stuðning við að vekja
athygli á þessum mikilvæga mál-
stað og um leið unnið gegn for-
dómum.
Í tilefni Alþjóðageðheilbrigðis-
dagsins hafa ár hvert verið veittir
námsstyrkir úr sjóðnum til náms-
manna sem átt hafa við geðræn
veikindi að stríða og eru að efla sig
með námi. Þetta er gert í samráði
við meðferðaraðilana sem hafa lagt
á sig mikla vinnu við að aðstoða
stjórn ÞÚ GETUR! við að velja
hvar styrkurinn komi best að
gagni. Frá upphafi hafa verið veitt-
ir um 110 námsstyrkir.
Í ár bárust margar vandaðar
umsóknir og ákvað stjórn ÞÚ
GETUR! að styðja 13 einstaklega
sem eru í námi í háskólum, list-
námi eða sérhæfðu verknámi. Átta
þeirra stunda nám í Reykjavík,
einn í dreifbýlinu en fjórir eru
nemar við Háskólann á Akureyri.
Það vekur mikla athygli að þetta
unga glæsilega fólk, sem sumt hef-
ur þurft að berjast við mjög alvar-
leg geðræn veikindi, stundar há-
skólanám og ber höfuðið hátt. Það
sýnir þolgæði og reisn sem vekur
aðdáun og skilar því árangri og
hvetur aðra til dáða.
Hvatningarverðlaun ÞÚ GET-
UR! hafa einnig verið veitt árlega.
Þau fá þeir einstaklingar, samtök
eða meðferðarteymi sem hafa stað-
ið sig sérlega vel í að bæta
geðheilbrigðisþjónustuna eða vekja
athygli á mikilvægi geðheilsu.
Hvatningarverðlaun ÞÚ GETUR!
árið 2015 hlýtur Geðvernd-
armiðstöðin Grófin á Akureyri fyrir
hópastarf, fræðslu fyrir notendur
og aðstandendur, forvarnir og bar-
áttu gegn fordómum.
Frekari upplýsingar eru á
www.thugetur.is og á Facebook.
Þeim sem vilja styrkja starf sjóðs-
ins er bent á söfnunarreikninginn
0336-26-1300 og kennitala For-
varna- og fræðslusjóðsins ÞÚ
GETUR! er 621008-0990
Til hamingju með daginn!
Geðsjúkdómar algeng
ástæða örorku ungs fólks
Eftir Ólaf Þór
Ævarsson » ÞÚ GETUR! veitir
námsstyrki og
hvatningarverðlaun á
Geðheilbrigðisdaginn.
Ólafur Þór Ævarsson
Höfundur er geðlæknir og formaður
stjórnar ÞÚ GETUR!
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
—með morgunkaffinu
Húsið afhendist rúmlega fokhelt.
Húsið skiptist skv. teikningu í: 4 svefnherbergi, fata-
herbergi, 2 baðherbergi, forstofu, stóra stofu, sjónvarps-
hol, stórt eldhús, þvottahús, geymslu og stóran bílskúr.
Grunnmynd má sjá á www.tresmidjan.is
Allir gluggar og gler er komið í sem og aksturshurð í
bílskúr. Búið er að einangra útveggi og ísteyptar hita-
lagnir eru í gólfum.
Verð 28,2 m.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir í síma 892 3742
eða á tresmidjan@tresmidjan.is
Til sölu glæsilegt nýtt 224 fm einbýlishús
með innfelldum bílskúr að
Básahrauni 42, Þorlákshöfn
með glæsilegu útsýni í jaðri byggðarinnar