Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 34

Morgunblaðið - 10.10.2015, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 ✝ Anna StefaníaBergsveins- dóttir fæddist í Aratungu í Stað- ardal í Stein- grímsfirði 17. jan- úar 1919. Hún lést á Ljósheimum 4. október 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sigríður Guðrún Friðriksdóttir, f. í Drangavík á Ströndum 10. október 1879, d. 24. febrúar 1976, og Bergsveinn Sveins- son, f. að Dunk í Hörðudal 21. september 1876, d. 13. júlí 1967. Anna Stefanía var fjórða yngst 15 systkina en þrjú dóu í æsku. Hinn 13. júní 1941 gekk Anna að eiga Magnús Guð- að Kirkjubóli til Guðlaugar Magnúsdóttur, sem þar bjó með syni sínum Magnúsi Sveinssyni. Eftir að Guðlaug féll frá var Anna áfram á Kirkjubóli hjá Magnúsi og konu hans Þorbjörgu Árna- dóttur og ólst þar upp með fimm uppeldissystkinum. Fljótlega eftir fermingu fór hún að heiman og dvaldist þá á Akureyri, fyrst hjá Guð- björgu systur sinni og manni hennar og síðar í vist hjá Jór- unni ljósmóður. Um vorið fór hún að vinna í eldhúsinu á Bændaskólanum að Hólum þar sem hún kynntist manni sín- um, Magnúsi Guðmundssyni, sem þann vetur stundaði þar nám. Veturinn eftir fór hún á Húsmæðraskólann á Lauga- landi. Fluttist að Blesastöðum og bjó þar uns hún fluttist á Selfoss, fyrst í Grænumörk og síðar á Ljósheima. Átti alltaf húsið sitt á Blesastöðum. Útför Önnu Stefaníu verður gerð frá Skálholtskirkju í dag, 10. október 2015, kl. 14. mundsson bónda á Blesastöðum, f. 17. september 1912, d. 29. júní 1997. Börn þeirra eru fjögur: 1) Hrafn- hildur, f. 11. apríl 1942, gift Svavari Jóni Árnasyni og eiga þau þrjá syni. 2) Guðmundur Haukur, f. 20 des- ember 1944, kvæntur Jónu Guðbjörgu Sigursteinsdóttur og eiga þau tvö börn. 3) Tryggvi Karl, f. 12. ágúst 1949, kvæntur Berthu Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn. 4) Ragnhildur, f. 5. nóvember 1954, gift Árna Árnasyni og eiga þau fjögur börn og son er Árni átti áður. Anna fór vikugömul í fóstur Elsku tengdamamma. Nú er þín langa ævi á enda. Að ná því að verða 96 ára göm- ul er stórkostlegt. Oft var glatt á hjalla í eldhúsinu í gamla hús- inu á Blesastöðum. Mér er svo minnisstætt þegar þú komst með stóra kartöflupottinn alveg fullan og við fórum að skræla og skræla og sögð var heil saga á meðan. Svo voru það jólin. Á jóladag kom öll fjölskyldan saman og þá var nú oft gaman. Við laumuðumst oft mágkon- urnar saman inn í litla her- bergið þar sem gamla orgelið hans Madda var og sungum lít- aníuna og sálma af hjartans lyst. Ég held kannski að þér hafi fundist við dálítið skrýtnar þar sem ég sat og spilaði, Habbý hægra megin og tróð pedalann, Ragnhildur hinum megin og tróð þann vinstri. Ég minnist líka réttardagsins. Kjötsúpan þín var í mörgum pottum og aldrei kláraðist hún, sama hversu margir komu að borða, það var bara bætt í pott- ana. Stoltið þitt var garðurinn og hvað hann var fallegur og ekki minnkaði það þegar gróð- urhúsið bættist við með öllum fallegu rósunum í öllum regn- boganslitum. Þessi bláa var í sérstöku uppáhaldi. Eftir að þú fluttist á Ljósheima fékkst þú alltaf nýútsprungnar rósir þér til yndisauka. Anna mín, þú varst yndisleg tengdamamma og ég kem til með að sakna þín mikið, en þinn tími var kominn og þú hittir Madda þinn sem ég hef trú á að hafi beðið eftir þér. Far þú í friði. Þín tengdadóttir, Jóna Sigursteinsdóttir. Traust, dugleg, fylgin sér, barngóð og yndisleg eru bara nokkur lýsingarorð sem gætu átt við hana ömmu. Mínar fyrstu minningar ná tæplega 40 ár aftur í tímann, ég sem smá snáði að skottast í sveitinni hjá ömmu og afa. Alltaf hægt að ganga að föstu punktunum í til- verunni þar, afi í sætinu sínu að föndra við pípuna sína og amma að útbúa og finna til kaffi og meðlæti, alltaf að og settist æv- inlega síðust. Hún hafði sérlega mikið yndi af að ferðast og þvælast, stuttar skreppur sem lengri ferðir. Keyrði þó aldrei sjálf en lét það ekki aftra sér frá smá þvælingi. Ég hafði gaman af því að kippa henni með í flugtúr fyrir örfáum ár- um, þá hún orðin rígfullorðin. Hún ljómaði af barnslegri gleði þegar hún skoðaði sveitina sína úr lofti. Fylltist hún ævinlega stolti þegar hún rifjaði ferðina okkar upp og spurði svo reglu- lega hvenær við ættum að fara aftur í loftið. Alltaf var gott að koma í sveitina til hennar og nú seinni árin í íbúðina hennar á Selfossi, hún var mikill sjónvarpsaðdá- andi og lét sér því ekki nægja t.d. bara RÚV heldur þurfti vídeó, DVD og Vod. Það vafðist þó stundum fyrir henni að finna útúr 4-5 fjarstýringum og þá kom yfirleitt símtal með ósk um aðstoð sem ávallt var fúslega veitt og varð ávallt kveikjan að góðu spjalli. Amma var kona sem alltaf var hægt að leita til, hvort sem það var í djúpar pælingar eða spjall um daginn og veginn. Alltaf var hún með á nótunum, fylgdist grannt með börnunum mínum og þeirra gengi, mætti ávallt fyrst í afmæli og aðrar uppákomur og fór síðust. Hafði yndi af því að hitta fólk og spjalla. Á þessum tímapunkti er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast og alast upp í kringum þessa stórkost- legu konu, þakklæti fyrir það að börnin mín hafi fengið að kynnast langömmu sinni og þakklæti fyrir það að hafa hana svo lengi á meðal vor sem raun bar vitni. Ég er sannfærður um að afi tekur á móti henni opnum örmum og saman fara þau í enn eitt ferðalagið sitt saman. Stolt- ur af þessari konu segi ég: Takk fyrir að vera þú. Guð geymi þessa yndislegu konu. Þórir Tryggvason og börn. Amma var sú allra besta. Það var svo gott að skríða upp í fangið á henni og hneppa hnöppunum á blússunni hennar, þar var svo hlýtt og gott að vera. Við vorum alltaf mjög góðar vinkonur og brösuðum margt saman í gegnum tíðina. Þegar ég var lítil var ég alltaf í kringum lappirnar á henni, að tæta í skúffum, hjálpa til í garð- inum og gróðurhúsinu þar sem var svo góð lykt. Seinna þegar ég var orðin stór og komin með bílpróf fórum við ófá skiptin saman í búðarleiðangur þar sem við kíktum meðal annars í Maddömurnar og oft gaf hún mér bolla eða eitthvað annað dásamlega fallegt. Amma var mikið fyrir glingur og dótarí og mikið átti hún af fallegum skál- um. Þegar hún var komin á Ljósheima var alltaf makkíntos eða annað góðgæti í dásamlega fallegri skál. Síðustu ár áttum við margar yndislegar stundir þegar ég snyrti á henni neglurnar og augabrúnirnar. Síðustu jól voru þau allra bestu. Við vorum að bíða eftir matnum á aðfanga- dagskvöld, sátum í rólegheitum við arineld og ég lakkaði á henni neglurnar og gerði hana fína fyrir kvöldið. Amma hafði alltaf mikinn áhuga á því sem ég var að gera og alltaf mundi hún allt sem ég hafði sagt henni, sama hversu langt var liðið frá því við hittumst síðast. Hún hafði mikinn áhuga á handavinnu og við gátum talað tímunum saman um það. Hún var mikill sælkeri og matar- kona, best fannst henni fitan á kjöti og allra best að fá kjúk- ling á Kentucky. Ég skottaðist oft yfir götuna þegar hún var flutt í Grænumörkina á Selfossi og sótti fyrir okkur kjúkling á Kenný. Ég er svo þakklát fyrir allan þann tíma sem ég fékk með henni en mikið á ég eftir að sakna hennar. Kristín Brynja Árnadóttir. Elsku amma, þú lífsreynda kona, hefur kvatt okkur og þennan heim. Nú heldur þú að nýju á vit ævintýra með Madda afa og saman eignist þið nýjar stundir. Það var alltaf gott að koma til þín, tókst vel og hlý- lega á móti okkur og ekki skemmdu fyrir sætu molarnir sem þú bauðst okkur uppá. Elsku amma, við eigum góð- ar minningar um þig sem ylja munu okkur ævina á enda, þín verður ætíð saknað – blessuð sé minning þín. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Með þessu fallega ljóði Bubba kveðjum við þig í hinsta sinn, elsku amma – hvíldu í friði Vignir, Anna Stefnía, Hildur Birna og Ernir. Þegar litið er yfir farinn veg, er eins og æskan og uppeldið hafi verið í annarri tilveru eða öðru lífi. Anna var hluti af þeirri til- veru. Hún er samofin fyrstu minningum, allri æsku og upp- vexti okkar krakkanna í aust- urbænum á Blesastöðum. Hún og föðurbróðir okkar, hann Maddi, voru einatt nefnd í sömu setningu. Anna og Maddi Vestrí, þannig var tungutakið og þurfti ekki útskýringa við. Anna og Maddi áttu 4 börn og var krakkaskarinn á hlaðinu því 9 fastbúandi og æði margir sem þar voru til viðbótar, tímabund- ið. Það var oft ærusta á hlaðinu, góður samgangur milli bæja og við öll eins og einn systkinahóp- ur sem aldrei bar skugga á. Anna var hluti af foreldrahópn- um. Hún kom ung stúlka á Blesastaði, ættuð norðan af ströndum og bjó og var hluti af Blesastöðum til æviloka. Anna var falleg kona. Hún átti gott og innihaldsríkt líf, átti barna- láni að fagna og síðustu árin dvaldi hún á sjúkralegudeild á Ljósheimum, andlega heilbrigð en líkamlega farin að kröftum. Að leiðarlokum viljum við þakka Önnu fyrir allar minn- ingarnar sem við eigum með henni frá æsku okkar og upp- vexti. Þakka henni fyrir samfylgd- ina og biðja guð að geyma hana og varðveita í nýjum heimkynn- um. Ástvinum hennar öllum vott- um við samúð okkar. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Systkinin í Austurbænum, Blesastöðum, Sigurður, Kristín, Guðrún, Sigríður og Hildur Hermannsbörn. Nokkur kveðjuorð til minna kæru vina, hjónanna Magnúsar og Önnu Stefaníu, sem búsett voru á Blesastöðum á Skeiðum. Um árabil voru Blesastaðir mitt annað heimili um helgar og í öllum fríum. Þá voru þau Magnús og Anna ungir bændur með allstórt bú. Ég minnist góðra daga úr eldhúsinu þar sem oft var tvísetið við eldhús- borðið og tekist á um menn og málefni og gert að gamni sínu. Þá tróð Magnús í pípuna sína og Anna sá um að alltaf væri kaffi á könnunni. Minnist fjörugra þorrablóta í Brautar- holti þar sem við vorum oft fyrst á staðinn en líka oft lang- síðust heim. Minnist góðra stunda í heyskap við að raða böggum í hlöðuna. Minnist hve vel þau tóku alla tíð á móti mér og mér leið vel í návist þeirra. Minnist umhyggju þeirra hvors fyrir öðru. Nú hafa þau bæði kvatt þennan heim og sameinast á ný. Síðast þegar ég hitti Önnu var hún kvíðin fyrir því að klæða sig í kjól þar sem henni væri kalt. Ég trúi því að nú hafi hún klætt sig í kjól full tilhlökkunar og ekki fundið fyrir kulda. Elsku Maddi og Anna, verið Guði falin og hafið þökk fyrir allt og allt. Ingibjörg Stefánsdóttir. Anna Stefanía Bergsveinsdóttir Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19  210 Garðabær sími 842 0204  www.harpautfor.is Ástkær móðir okkar, amma og langamma, JÓNA JÓHANNA MORTENSEN frá Vík, Fáskrúðsfirði, andaðist á dvalarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði, 30. september. Útför fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju laugardaginn 17. október klukkan 14.00 og jarðsett á Kolfreyjustað. . Þóra Elísabet Mortensen, Birgir Grétar Sigurpálsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORGERÐUR KRISTÍN HERMANNSDÓTTIR frá Látrum í Aðalvík, Hlíf 1, Ísafirði, lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 7. október. Jarðarförin auglýst síðar. . Gunnar Valdimarsson, Herdís Halldórsdóttir, Hermann S. Gunnarsson, Þorgerður H. Kristjánsdóttir, Valdimar S. Gunnarsson, Linda Kristín Gunnarsdóttir, Bergsteinn Gunnarsson, Kristín Ósk Jónasdóttir, Gunnar Þ. Gunnarsson, Hrund Hjaltested, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, ERLA STEFÁNSDÓTTIR píanókennari, sem lést 5. október verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 13. október klukkan 13. . Salome Ásta Arnardóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir, Stefán Örn Arnarson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN ÁRNADÓTTIR kennari, Höfðagrund 17, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness 7. október. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 15. október klukkan 14. . Guðbjörg, Guðmundur, Anna Lea, Haukur, Jónína, Reynir, Ragnhildur, Jón Birgir, Erna, ömmubörn og langömmubörn. Ástkær faðir minn og bróðir okkar, JÖRUNDUR JÓHANNESSON listmálari, Niva, Danmörku, varð bráðkvaddur á heimili sínu í september síðastliðnum. . Jóhannes Jörundsson og systkyni hins látna. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍAS PÁLSSON bifreiðastjóri, Lindargötu 66, áður Melgerði 30, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 25. september. Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Gyða Björg Elíasdóttir, Jóhannes L. Guðmundsson, Helga Pála Elíasdóttir, Vilhjálmur Kvaran, Guðbrandur Elíasson, Auður Bárðardóttir, Guðlaug Elíasdóttir, Páll Melsted, Sigurjón Elíasson, Kristrún Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.