Morgunblaðið - 10.10.2015, Page 50

Morgunblaðið - 10.10.2015, Page 50
50 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015 Guðrún Árdís Össurardóttir kennir á fata- og textílbraut í Fjöl-brautaskólanum í Breiðholti, en hún er fatahönnuður aðmennt. „Það eru um 50 nemendur á þessari braut, þeir eru á öllum aldri og skemmtileg flóra af nemendum. Það gefur manni mikið að vera innan um ungt, skapandi fólk.“ Guðrún hefur áhuga á öllu sem tengist hönnun og handverki, en hún hefur unnið til verðlauna fyrir fatahönnun sína. „Það hefur þó farið minna fyrir því undanfarin ár að búa til föt, það þyrfti helst að lengja í sólarhringnum til að maður gæti gert allt það sem mann langar til.“ Eiginmaður Guðrúnar er Örvar Þór Ólafsson, viðskiptafræðingur og sölu- og markaðsstjóri hjá Kóða. Börn þeirra eru Kristín Hekla 14 ára, tvíburarnir Andrea og Össur Anton 11 ára og Örvar Gauti 15 mánaða. „Stærsta áhugamálið hjá okkur er að ganga á fjöll, en Örvar stend- ur á bak við Fjallafélagið ásamt bróður sínum. Bestu stundirnar eru þegar fjölskyldan sameinast í ferðalögum, þá ævintýraferðir um ótroðnar slóðir. Þetta er svo góð samvera fyrir alla stórfjölskylduna og skapar góðar minningar fyrir börnin okkar. Við fórum t.d. í skemmtilega tjaldferð í Langadal í Þórsmörk í sumar og var það fyrsta útilega Örvars Gauta. Það er lítið mál að ferðast með ung börn ef maður er vel útbúinn. Honum finnst æðislegt þegar gengið er með hann á bakinu og um að gera að hafa hann með í ferðunum. Á afmælisdaginn ætlum við að hafa teiti heima hjá okkur. Við vor- um að flytja á æskuheimilið mitt í Garðabænum og erum búin að koma okkur vel fyrir. Það er því tilvalið að fagna því líka.“ Fjallganga Fjölskyldan á Valahnúk í Þórsmörk í sumar. Flutt á æskuheimilið Guðrún Árdís Össurardóttir er fertug í dag A Aðalsteinn fæddist á Núpi í Dýrafirði 10.10. 1940. „Ég hafði aldurs- forystu í stórum barna- hópi á hlaðinu undir Núpi. Stóreygð störðum við syst- kinin á höfunda nýrra glósubóka, enn ekki nema föl í miðjar hlíðar, en fyrr en varði lokaði snjórinn þetta samfélag alveg af, oft vikum saman. Bernskuminningar eru margar frá Gemlufalli. Þar voru mót tvennra tíma. Strokkur í búri, bar- inn steinbítur, reyktur rauðmagi, gota og ábrystir, súrt slátur. Bryddaðir skinnskór, undan- rennuskol handa kaula, heitar rúg- kökur af hringum kolaeldavél- arinnar, peli heimalningsins sem lifði fyrir náð hofmannsdropa og upphitunar í ofninum. Amma Ágústa og afi voru „að handan“ frá Brekku og Hólum. Það styttist í barnaskólann hjá Svövu Thoroddsen og landafræðina hjá Ólafi H. Kristjánssyni, síðar á Reykjum. Landsprófið táknaði svo skilnað við móðursveitina en syðra beið annar skóli og kynnin hófust af föðurættinni: Hildur föðuramma var frá Iðu en bjó á Eyrarbakka.“ Í Reykjavík var Aðalsteinn til húsa hjá bróðurdóttur Hildar, Al- dísi Kristjánsdóttur, á Bergþóru- götu 16a, en smátt og smátt tók Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri Kvennaskólans, við uppeldinu og gerði hann að kennara hjá sér. Aðalsteinn lauk stúdentsprófi frá MR 1959, fyrrihlutaprófi í guðfræði við HÍ 1963, BA-prófi í landafræði, sögu, grísku og uppeldis- og kennslufræði við HÍ 1971 og lauk fyrsta stigi í íslensku í HÍ 1977. Aðalsteinn var kennari við Hér- aðsskólann á Núpi 1960-61, við VÍ 1961-63, við Iðnskólann og Austur- bæjarskólann 1961-63, við Kvenna- skólann 1964-77, kennari við KHÍ 1978, yfirkennari í Kvennaskólanum 1977-82 og skólameistari 1982-2000. Aðalsteinn réðst síðan til mennta- málaráðuneytis til þess að kvelja fyrri kollega sína með naumum fjárveitingum, eins og hann orðar það. Aðalsteinn var í stúdentaráði HÍ 1963-64, með Ellert B. Schram, frænda sínum, var formaður Stúd- entafélags HÍ 1966-67, formaður Félags guðfræðinema og formaður Bræðralags, formaður borðtenn- isklúbbsins Arnarins 1974-78, for- maður mótanefndar BTÍ 1975-85, sat í stjórn og launamálaráði FHK Aðalsteinn Eiríksson, fyrrv. skólameistari – 75 ára Bernskuslóðir Aðalsteinn með sr. Sigtryggi Guðlaugssyni, stofnanda Núpsskóla. Elsti og yngsti stúdent MR, 1959. Skólamaður frá Núpi Hjónin Aðalsteinn og Guðrún. Kópavogur Haraldur Snær Einarsson fæddist 2. september 2014 kl. 7.07. Hann vó 3.472 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Rakel Sif Hauks- dóttir og Einar Haraldsson. Nýir borgarar Hafnarfjörður Helga Ísafold Þór- hallsdóttir fæddist 11. september 2014 kl. 11.00. Hún vó 3.394 g og var 13 merkur. Foreldrar hennar eru Val- gerður Margrét Þorgilsdóttir og Þórhallur Guðmundsson. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Norræna siglir í allan vetur Bókaðu núna! Norræna siglir vikulega yfir vetrartímann frá Seyðisfirði til Færeyja og Danmerkur. Hægt er að bóka ferðir í allan vetur á frábæru verði. Þeim sem bóka sig er sérstalega bent á að kynna sér vel aukaskilmála vegna vetrarsiglinga. Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.