Morgunblaðið - 10.10.2015, Síða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú stendur í kostnaðarsömum fram-
kvæmdum í vinnunni í dag. Jákvætt viðhorf
þitt hvetur samferðafólk þitt til þess að
leggja hönd á plóginn.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er ekki rétti tíminn til þess að skipta
á milli eða ákveða hver á að eiga hvað. Ef ein-
hver mistök hafa verið gerð má draga af þeim
lærdóm fyrir framtíðina.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Allt hefur sinn stað og stund og nú
þarftu ekki annað en grípa tækifærið þegar
það gefst. En nei er orðið sem breytir lífi þínu
til hins betra, líkt og um töfra væri að ræða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér dettur í hug alveg ný leið til að
gera eitthvað í vinnunni í dag. Leitaðu jafn-
vægis þannig að vinir og samstarfsmenn séu
ánægðir með þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú lætur tilfinningarnar ráða í sam-
skiptum við aðra. Allt sem maður getur sigr-
ast á í huganum getur maður yfirbugað í
raunveruleikanum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er komið að skuldadögum og þú
verður að láta hendur standa fram úr ermum
til þess að eiga fyrir skuldunum. Fyrr en þú
veist af hefurðu breytt leiðindum í framtak.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur lagt hart að þér. Settu þig inn í
málið. Bestu upplýsingarnar sem þú færð
gætu í fyrstu virst ómögulegar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef ástvinir bregðast ekki við þér
af nægum áhuga skaltu vera minna innan
handar. Bolmagn annarra kemur þér á ein-
hvern hátt að góðum notum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð tækifæri til að komast að
einhverju nýju varðandi fortíð þína. Við annað
skaltu leita þér nauðsynlegrar aðstoðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að finna tjáningarþörf
þinni útrás með einhverjum hætti. Leyfðu
sköpunarþrá þinni að njóta sín og losaðu þig
þannig við innri spennu og kvíða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver sem gerði mistök vill fá
annað tækifæri. Hafðu í huga að velgengni
getur þýtt eitthvað allt annað í þínum huga
en annarra. Bíddu ekki eftir því að hann biðji
um hjálp þína.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fjölskyldusamkomur og málefni fjöl-
skyldunnar hafa verið ofarlega á baugi hjá
þér að undanförnu. Hafðu í huga að þú munt
sennilega þurfa að breyta þeim ákvörðunum
sem þú tekur í dag.
Síðasta vísnagáta var sem endra-nær eftir Guðmund Arnfinns-
son:
Sá gæti sín, sem fram á hana fer.
Frá þeim stað var skáld og hestamaður.
Af degi aðeins lítið ljósblik er.
Lyftist gjarnan á þér sértu glaður.
Fyrst er hér lausn Hörpu á
Hjarðarfelli:
Ef gengur fram á brún þá gættu þín.
Glöggur var hann Sigurður frá Brún.
Dagsbrún boðar, senn þá sólin skín.
Sértu glaður lyftist augabrún.
Sigrún Erla Hákonardóttir
svarar:
Ysta brún er ærið há
Eiríkur var Brúnum frá
Dagsbrún fagnar feginn hver
og fljótt þá lyftist brún á mér.
Kristín Sigríður Guðjónsdóttir
Hrafnistu á þessa lausn:
Gættu þín vel er fram á brún þú fer.
Fátt hef ég lært um Eirík gamla á
Brúnum.
Örlitla brún af sólu sé ég hér,
sýnist mér við það lyftist brún á þér.
Árni Blöndal svarar:
Tæpt á brún að standa – þarf til þrótt.
Þá var Brúnar bóndi ferðamaður.
Hinstu glætu dagsins gleypir nótt.
Gjarnan lyftist brún, ef verð ég glaður
Bjarni Þorkelsson, Þórodds-
stöðum, svarar og spyr: „Kannski
má segja að þetta sé umorðuð gátan,
fremur en ráðning?“
Á heljarþröm er heiglum ekki vært.
Hestum reið hann einn og var það kært.
Boðað getur sólfar bjart og skært.
Brúnaþungt er skáld með stoltið sært.
Helgi R. Einarsson á þessa lausn:
Lausnina nú lít ég strax,
létt hún er, sem gerð úr dún.
Auga-, fjalls- og einnig dags-,
auk þess staðarheitið – Brún.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Í þoku fram af brún við gætum borist.
Frá Brún kom Sigurður, hagmæltur,
skýr.
Við dagsbrún hefur mark í myrkrið
skorist,
margoft lyftist brún þá dimman flýr.
Hér er skýring Guðmundar en
limran verður að bíða mánudags
vegna plássleysis:
Gæt að þér á bjargsins tæpu brún.
Frá Brún var Siggi, skáld og
hestamaður.
Brún hins unga, bjarta dags er hún.
Brúnin lyftist á þér sértu glaður.
Enn rær Guðmundur á gátumið:
Sleginn á degi einum er.
Um þann sagt, er vel sig ber.
Yfir honum vakað var,
Veginn margur kappi þar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af brúnum
Í klípu
„ÞAÐ ÆTTI EKKI AÐ TAKA OF LANGAN
TÍMA, HANN ER BARA AÐEINS Á EFTIR.“
BIÐSTOFA
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG KANN VARLA VIÐ AÐ NEFNA ÞAÐ, EN
ÞAÐ VAR KOMINN FIMMHUNDRUÐ KALL Á
MÆLINN ÞEGAR ÉG KLESSTI Á TRUKKINN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ein ævi er ekki
nóg.
MÓTTAKA
BYRJA MEÐ MIKINN
PENING!
ÉG KOMST
LOKSINS AÐ
ÞVÍ HVERNIG
ÉG GÆTI...
...GRÆTT SMÁ
PENING Í
TÓNLISTAR-
BRANSANUM!
HVERNIG
ÞÁ?
GELT! ÞAÐ ERU ALLIR ALLTAF AÐ
FLÝTA SÉR NÚ TIL DAGS!Varstu í útlöndum? Þú ert svobrún,“ spurði móðir 10 ára
stúlku vinkonu hennar. Stúlkurnar
voru báðar býsna fjörugar og á að
giska um 10 ára gamlar. „Já, ég var
á Ítalíu,“ svaraði brúna barnið að
bragði. „Við fórum öll fjölskyldan og
vorum á Capri í tvær vikur. Það var
alveg ofsalega gaman.“ Hélt stúlkan
áfram.
x x x
Ítalía er svo æðisleg. Ég hef einmittkeyrt um alla Ítalíu og farið til
Capri. Það er alveg dásamlegt,“
sagði móðirin glaðlega og hraðmælt
um leið og hún varð dreymin á svip.
Þessi tveggja barna móðir gleymdi
stund og stað, staðurinn var sturtu-
klefinn í sundlauginni í Mosfellsbæ,
þar til dóttir hennar kippti henni inn
í veruleikann. „Mamma. Hvenær
fórst þú til Ítalíu?“
„Það var fyrir mörgum árum,“
svaraði móðirin ögn stutt í spuna.
„Með hverjum fórstu?“ Hélt barnið
áfram undrandi á svip. „Með Óla,“
svaraði móðirin lágt um leið og hún
setti hausinn undir sturtuhausinn.
„Óla? Hver er Óli?“ spurði barnið
stóreygt og opinmynnt.
x x x
Fyrrverandi kærasti minn,“ svar-aði hún milli samanbitinna tann-
anna um leið og hún leit fast í augu
Víkverja. „Og passaðu bróður þinn,
hann má ekki príla upp úr balanum,“
sagði móðirin ráðvillt á svip og rjóð í
vöngum. Víkverji hætti að brosa
með sjálfum sér og rak á eftir dóttur
sinni að halda áfram að klæða sig í
blautan sundbolinn.
x x x
Það er varla hægt að vera ber-skjaldaðari en nakinn í sturtu-
klefa þar sem saltar myndir fortíð-
arinnar dúkka upp með öllum sínum
gömlu kærustum, sandi og funheit-
um sólardögum.
x x x
Ekki er hægt að lifa lífinu án þessað minningarnar og fortíðin sem
er ýmist dísæt, súr eða sölt láti á sér
kræla. Hún getur nartað eða bitið í
hælana á manni og þá er gott að vera
undir það búinn. Víkverji ætlar að
finna sér námskeið fyrir foreldra
sem vilja efla og styrkja hvíta lygi í
sínu lífi. víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem
mig styrkan gjörir. (Fil. 4.13)