Morgunblaðið - 10.10.2015, Síða 55
MENNING 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2015
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta er varðan,“ segir Sigurður
Árni Sigurðsson myndlistarmaður
þegar hann leggur plexíglerhjálm yf-
ir litla gula vörðu úr ávaxtasteinum í
innra rýningarrými Hverfisgallerís
neðst við Hverfisgötu. Ljósmynd af
vörðunni er á upplagsverki sem hefur
verið gert sérstaklega fyrir sýn-
inguna Varp með verkum Sigurðar
Árna sem verður opnuð í galleríinu í
dag, laugardag, klukkan 16. „Þetta
eru appelsínu- og sítrónusteinar sem
við söfnuðum heima,“ segir hann um
þetta litla verk. „Þegar ég fór að
hlaða þá tæmdist boxið en varðan reis
ekkert. Ótrúlega margir steinar fara í
svona vörðu.“
Þarna í innra rýminu er einnig nýtt
málverk eftir listamanninn, „Fransk-
ur gluggi“, skuggamynd af glugga á
striga, en það er í fremra rýminu sem
gefur að líta megininnsetningu sýn-
ingar Sigurðar Árna. Hann er einn
okkar kunnustu myndlistarmanna,
hefur verið valinn til að sýna á Fen-
eyjatvíæringnum og verk hans sést á
fjölda einka- og samsýninga hér á
landi, en hann er líka kunnur fyrir list
sína á meginlandi Evrópu, ekki síst í
Frakklandi þar sem hann starfar með
virtu galleríi og sem gestaprófessor.
Þetta eru framleidd verk
Í málverkum hefur Sigurður Árni
gjarnan velt upp spurningum um
hlutverk fyrirmynda eða forma á
myndfletinum og vægi forgrunns og
bakgrunns. Í sumum verkanna eru
skuggar þessara fyrirmynda það eina
sem eftir stendur á myndfletinum.
Hann er kunnastur fyrir verk á striga
og pappír og hér gefur að líta nokkur
pappírsverk, einskonar forteikningar
að öðrum sem skorin eru út í ál í
Geislatækni, pólýhúðuð og hengd upp
í nokkurri fjarlægð frá veggnum, þar
sem skuggar verða mikilvægur hluti
af hverju verki.
„Þessi verk á pappírnum eru eins-
konar grófar skissur. Það er málarinn
í mér að finnast ég þurfa að hafa ein-
hver handgerð með á sýningunni,“
segir Sigurður Árni og brosir. Bætir
við að varla séu fingraför á hinum
verkunum.
„Þetta eru framleidd verk – þótt
aðdragandinn að því að þau eru skor-
in út og máluð með þessum hætti sé
ótrúlega langur og flókinn.
Og ég lít á þetta sem beina fram-
lengingu af og hluta af málverkunum
mínum.“
Í ljós kemur að hann hefur reyndar
málað vissa fleti aftan á verkunum,
sem eru hengd nokkuð frá veggnum
og lita þessir fletir skuggana að hluta.
„En það málverk sést þó í raun ekki,“
segir hann.
„Myndlistin er líka allt það sem
maður sér ekki í verkunum, ég hef til
dæmis eytt mörgum dögum í að
grunna þessi álverk en öll sú vinna
sést ekki.“
Þarna eru verk með þeim formum
sem þekkja má úr sumum verka Sig-
urðar og hafa verið kölluð „mólíkúl“
og annað sem byggist á sexhyrn-
ingum sem víða má sjá í náttúrunni.
„Skugginn er jafn mikið atriði og
þrívíð formin; skugginn gefur form-
inu líf,“ segir hann. En stígur hann
hér frá málverkinu yfir í einskonar
lágmyndir?
„Ég gerði fyrstu tilraunina með
verk sem þessi fyrir nokkrum árum
og sé nú að ég get rakið þessa nálgun
aftur í námsárin mín í Frakklandi en
þar var ég farinn að taka form út úr
málverkunum mínum og saga þau í
krossviðarplötur. Það var til að losna
við bakgrunninn. Þetta voru orðin
hugmyndafræðileg málverk og allt í
kringum formin orðið aukaatriði. Ég
fór aftur í málverk en var svo fyrr en
varði kominn með trjágarða, sem ég
hafði verið að mála, í módel. Það
sama gerist hér, við sjáum form sem
hafa verið gegnumgangandi í mál-
verkum hjá mér, ákveðna teikningu,
og ég tek þau út. Ætli þetta sé ekki
einhver þörf fyrir að núllstilla komp-
ásinn aftur. Til að fylgja vörðunum!“
Þar er jarðtengingin
Í sumar voru tvær einkasýningar á
verkum listamannsins í Frakklandi, í
Lieu d́Art Contemporain í Sigean í
Galerie Iconoscope í Montpellier.
Voru báðar vel sóttar og vel tekið af
gagnrýnendum sem söfnurum. Á
þeim sýndi Sigurður Árni málverk og
teikningar.
„Hér langaði mig að gera allt ann-
að og dreif í að gera þessi verk sem
höfðu lengi leitað á mig. Og ég sá
þetta alltaf sem heila sýningu,“ segir
hann og lítur yfir salinn. „Stærðir
verkanna eru til dæmis hugsaðar sér-
staklega fyrir þetta rými. En ég
ákvað jafnframt að stíga varlega til
jarðar og bætti teikningunum við –
þar er jarðtengingin. En þetta er allt
mitt myndmál, minn myndheimur.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Sexhyrningar „Þetta er allt mitt myndmál, minn myndheimur,“ segir Sigurður Árni og hampar hér einu verkanna.
Bein framlenging
af málverkunum
Sigurður Árni Sigurðsson opnar sýningu í Hverfisgalleríi
Sýningin er
kallast Speg-
ilmyndir verður
opnuð í Safni
Ásgríms Jóns-
sonar, Berg-
staðastræti 74, á
morgun, sunnu-
dag, klukkan 14.
Leiðsögn verður
um sýninguna
klukkan 15.
Á sýningunni má sjá úrval sjálfs-
mynda eftir Ásgrím Jónsson. Í
safneigninni er að finna 29 verk
með heitinu „Sjálfsmynd“. Elstu
sjálfsmyndina af þeim sem til eru í
safninu málaði Ásgrímur sama ár-
ið og hann hóf nám við Listahá-
skólann í Kaupmannahöfn, árið
1900.
Spegilmynd opnuð
í Ásgrímssafni
Sjálfsmynd
Ásgríms Jónssonar
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn
Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas.
Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn
Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn
Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn
Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn
Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn
Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 19.sýn Sun 25/10 kl. 19:30 22.sýn
Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 20.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn
Fös 16/10 kl. 19:30 18.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 21.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Lau 24/10 kl. 19:30 Frums. Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn
Lau 24/10 kl. 22:30 2.sýn Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Lau 10/10 kl. 19:30 Frums. Sun 25/10 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn
Mið 14/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn
Fim 15/10 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn
Fös 16/10 kl. 19:30 4.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 10/10 kl. 13:30 Lau 17/10 kl. 13:30 Lau 24/10 kl. 13:30
Lau 10/10 kl. 15:00 Lau 17/10 kl. 15:00 Lau 24/10 kl. 15:00
Kuggur og félagar eru komnir aftur í Kúluna.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 25/10 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 16:00
Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 14:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
DAVID FARR
HARÐINDIN
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Lau 10/10 kl. 19:00 13.k Fös 6/11 kl. 19:00 Fös 20/11 kl. 19:00
Lau 17/10 kl. 19:00 Fim 12/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00
Fös 23/10 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 11/10 kl. 20:00 aukas. Sun 18/10 kl. 20:00 aukas. Sun 25/10 kl. 20:00 aukas.
Aðeins þessar sýningar!
At (Nýja sviðið)
Lau 10/10 kl. 20:00 Lau 17/10 kl. 20:00
Fim 15/10 kl. 20:00 Fim 22/10 kl. 20:00
Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Fös 23/10 kl. 20:00 6.k. Fös 6/11 kl. 20:00
Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 8/11 kl. 13:00
Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k.
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k.
Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k.
Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Hundur í óskilum snúa aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Sun 11/10 kl. 20:00 7.k. Þri 3/11 kl. 20:00 Sun 22/11 kl. 20:00
Mið 21/10 kl. 20:00 8.k. Fim 5/11 kl. 20:00 Mið 25/11 kl. 20:00
Fim 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 14/11 kl. 20:00
Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 21/11 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Mið 28/10 kl. 20:00
Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fim 29/10 kl. 20:00
Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Sun 1/11 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k.
Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k.
Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Þri 27/10 kl. 20:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas.
Allra síðustu sýningar!
Dúkkuheimili, nýjar aukasýningar!
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
.. — —
Frami (Salur)
Sun 18/10 kl. 20:30
Lokaæfing (Salur)
Fös 9/10 kl. 20:30 Fös 16/10 kl. 20:30 Lau 31/10 kl. 20:30
Sun 11/10 kl. 20:30 Lau 24/10 kl. 20:30
Þú kemst þinn veg (Salur)
Fim 15/10 kl. 20:30 Mið 21/10 kl. 20:30 Sun 25/10 kl. 20:30
Lífið (Salur)
Sun 18/10 kl. 13:00 Sun 15/11 kl. 13:00
Sun 1/11 kl. 13:00 Lau 21/11 kl. 13:00
Petra (Salur)
Lau 17/10 kl. 20:30 Fös 30/10 kl. 19:00
Uppsprettan (Salur)
Þri 20/10 kl. 19:30
This conversation is missing a point (Salur)
Mið 28/10 kl. 20:30 Mið 11/11 kl. 20:30