Morgunblaðið - 27.10.2015, Page 6

Morgunblaðið - 27.10.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Hitablásarar Rafmagnshita- blásari 2Kw 1 fasa 6.890 Rafmagnshita- blásari 3Kw 1 fasa 8.890 Rafmagnshita- blásari 5Kw 3 fasa 12.830 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.990 Rafmagnshitablásari 15Kw 3 fasa 29.990 25 metra rafmagnssnúra 5.490Rafmagnshitablásari 9Kw 3 fasa 17.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ 20% AFSLÁTTUR 5.512 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Langar raðir mynduðust við Gull- foss og Geysi í fyrradag, síðasta sunnudag októbermánuðar. Samtals yfir 50 hópferðabifreiðar biðu á hlaðinu við Hótel Geysi og Gullfoss Kaffi og skipti fjöldi bílaleigubíla lík- lega hundruðum. Ys og þys var á báðum stöðum og vakti athygli að veitingarýmið á Geysissvæðinu skyldi vera nær fullnýtt á þessum árstíma. Nýi veitingasalurinn á Geysi tekur 250 manns í sæti og er dag hvern hægt að afgreiða um þús- und matargesti þar, í söluskála og á veitingastað á Hótel Geysi. Jón Harry Njarðarson, eigandi Hótels Gullfoss, segir aðsóknina að Gullfossi og Geysi hafa aukist mikið. Gerbreyting á þremur árum „Það hefur orðið gerbreyting á síðustu þremur árum. Það er orðin stanslaus umferð nánast alla daga ársins. Það er helst að umferðin sé lítil þegar Hellisheiðin lokast vegna ófærðar,“ segir Jón Harry og bendir á að umferðin í október sé orðin jafn mikil og í september fyrir nokkrum árum. Sumarið hafi lengst og haust- ið orðið að drjúgum tíma í gisting- unni. Lokað er á hótelinu í mánuð frá og með miðjum desember. Ný 20 herbergja álma verður opn- uð á Hótel Gullfoss í janúar og verða þá alls 35 herbergi á hótelinu. Skammt frá er unnið að stækkun Gullfoss Kaffis og er sú bygging sýnd á mynd hér efst til hægri. Foreldrar Jóns Harrys í Bratt- holti hófu að bjóða upp á heima- gistingu árið 1987. Sjö árum síðar, árið 1994, tók Jón Harry í notkun íbúðarhús sem hann byggði og leigði þar út nokkur gistirými. Reksturinn gekk vel og um aldamótin opnaði fjölskyldan Hótel Gullfoss. Spurður um arðsemina af rekstr- inum segir Jón Harry hana viðun- andi. Gengið skipti miklu máli. „Það eru ýmsar hættur framundan. Það er ekkert fast í hendi í svona rekstri. Gengið er að breytast. Það er kannski helsti áhættuþátturinn. Krónan má ekki styrkjast meira. Þetta er mjög viðkvæmt. Það þyrfti að koma gengisfelling,“ segir hann. Ragnar Jóhann Bogason, fram- kvæmdastjóri Hótels Selfoss, segir mun betri nýtingu á herbergjum en í fyrra. „Haustið er í raun miklu betra en í fyrra. Nýtingin hjá okkur í sept- ember er 69% en var 45% í fyrra. Við búumst við 50% nýtingu í október, nóvember og desember en nýtingin þessa mánuði var 35% í fyrra.“ Ný viðbygging Gullfoss Kaffis verður opnuð í nóvember. Ástdís Kristjánsdóttir, rekstrarstjóri Gull- foss Kaffis, segir viðbygginguna fara undir verslun og veitingasal. Sætum í veitingasal muni fjölga um 200 í 600 til 700. Frekari framkvæmdir séu fyrirhugaðar á staðnum næsta vor og svo enn frekari stækkanir. „Það má segja að við hlaupum ekki nógu hratt. Aðsóknin eykst stöðugt,“ segir Ástdís sem hefur ekki nákvæmar tölur um gesta- fjölda. Lauslega megi áætla að 70- 80% erlendra ferðamanna á Íslandi skoði Gullfoss og Geysi, eða hér um bil milljón erlendir ferðamenn í ár. Við Gullfoss Það var maður við mann á göngubrautinni við Gullfoss á sunnudaginn var. Gullfoss Kaffi Ný viðbygging hjá Gullfoss Kaffi verður opnuð í nóvembermánuði. Íslandsferð Þessar konur skemmtu sér vel við Gullfoss um síðustu helgi. Morgunblaðið/Baldur Arnarson Geysir Uppsteypu á herbergjaálmu nýs 77 herbergja lúxushótels miðar vel. Hótel Gullfoss Ný 20 herbergja álma á hótelinu verður opnuð í janúar. Sumarumferð við Geysi í október  Biðraðir voru við Gullfoss og Geysi á sunnudaginn var  Ný álma Hótels Gullfoss opnuð í janúar  Ný veitingaálma Gullfoss Kaffis nær tilbúin  Nýting herbergja á Hótel Selfossi mun betri en í fyrra Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Adda Þóreyjar- og Smáradóttir er komin aftur til Spán- ar þar sem hún er skiptinemi, eftir tíu daga ævintýraför til Taívans. Þar tók hún við sérstökum verðlaunum fyrir baráttu sína í þágu jafnréttis og kvenréttinda, eins og Morgunblaðið greindi frá þann 9. október sl. Adda er einungis sextán ára gömul, en vakti mikla at- hygli hér á landi sl. vetur þegar hún birti mynd af sér berbrjósta á samfélagsmiðlinum Twitter, til þess að benda á að geirvörtur hennar hefðu ekki sömu stöðu og geirvörtur skólabræðra hennar. Þetta var gert undir slagorðinu „Free the Nipple“. „Þetta var ótrúlegt ævintýri og eins lærdómsrík för og hugsast getur, á svona fáum dögum,“ sagði Adda í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Mér fannst þessi ferð opna augu mín fyrir vanda- málum alls staðar í heiminum og því hversu mikla löng- un maður fær til þess að leggja sitt af mörkum við að takast á við vandamálin,“ sagði Adda. „Ég vona svo sannarlega að ég muni halda sambandi við þessa krakka sem ég kynntist um ókomna tíð, því þau eru svo gefandi og hafa svo mismunandi sýn á lífið. Ferðin var í einu orði sagt dásamleg og það var algjör heiður fyrir mig að fá þessi verðlaun. Þetta fær mig til að halda áfram því sem ég hef verið að gera. Þetta var eins og gott spark í rassinn!“ sagði Adda Þóreyjar- og Smára- dóttir. Ferðin opnaði augu mín fyrir vandamálunum í heiminum Ljósmynd/Vala Smáradóttir Glöð Adda ásamt Memory Banda, Khalidi Mngulu og fyrrverandi varaforseta Taívans, Annette Lu Hsiu-lien.  Adda segist vera alsæl með för sína til Taívans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.