Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira en bara ódýrt! Scantool gæðaverkfærin loksins komin aftur í Verkfæralagerinn, á lækkuðu verði Frábærar vélar til að brýna hnífa og önnur bitverkfæri. Hverfisteinn m/snúning í báðar áttir, skapalón fylgir, frábært bit fyrir leikna og lærða. 34.995 24.975 Scanslib 200 Hverfisteinn Scanslib 150 Hverfisteinn Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Ævertu bara fegin/n aðlosna við þessa leið-inda kellingu/kall,hún/hann var aldrei nógu góð/ur fyrir þig.“ Efalítið yrði mörgum brugðið ef eitthvað þessu líkt væri sagt við syrgjandi mann- eskju sem nýverið hefði misst maka sinn. Gagnvart fráskildum virðist þó gegna öðru máli, því þeir fá á stund- um að heyra áþekk „huggunarorð“ rétt eftir skilnað. Í bókinni Skilnaður – en hvað svo? sem Skálholtsútgáfa gefur út, ber höfundurinn, Guðný Hallgríms- dóttir, prestur fatlaðra, saman sorg- argöngu þeirra sem missa maka sinn við andlát og þeirra sem missa maka sinn við skilnað. Hún fjallar einnig um viðhorf samfélagsins til beggja hópanna, gefur innsýn í aðstæður og sálarlíf fólks sem gengur í gegnum skilnað og beinir sjónum þess fram á veginn. Lífinu púslað saman „Við eigum fullt af flottum ritú- ölum sem við notum þegar andlát ber að höndum. Það eru haldnar kveðju- athafnir, dánartilkynningar birtast í blöðum og útvarpi svo heyrist um landið og miðin og skrifaðar eru minningargreinar. Allir hafa fögur orð um hinn látna og votta eftirlif- andi maka samúð, færa honum blóm og kökur og eru boðnir og búnir að aðstoða hann á alla lund. Ekkjan eða ekillinn getur setið í óskiptu búi og samúð samfélagsins er allt umlykj- andi. Við skilnað er þessu öðruvísi farið. Flestir þurfa að flytja úr hús- næði sínu, búinu er skipt, allt frá te- skeiðum til steinsteypu, gera þarf eignaskiptasamning og afla sér vott- orða og gagna af ýmsu tagi. Líf margra snýst á hvolf en veikindafrí er ekki í boði, þeir þurfa að standa sína pligt á öllum vígstöðvum og reyna að púsla lífi sínu saman. Þótt sorg sé fyrst og fremst viðbrögð við missi, viðurkennir samfélagið ekki eins vel sorg við skilnað,“ segir Guðný. Betri sálgæslumaður Sjálf gekk hún í gegnum skilnað um aldamótin þegar börn hennar þrjú voru á aldrinum fimm til fjórtán ára. Þá hafði hún sem sálgæslumað- ur í um áratug veitt fólki í sömu spor- um góð ráð til að takast á við breytt- ar aðstæður. „Ég upplifði djúpa sorg alveg eins og ég hafði heyrt fólk tala um, en þó í rauninni ekki trúað að gæti verið svona mikil, enda var manneskjan náttúrlega á lífi. Skiln- aðurinn kom mér í opna skjöldu, mér fannst ég eiga besta mann í heimi. Annars er ég heilmikil Pollýanna og fór að einhverju leyti í gegnum þetta á húmornum. Þegar frá líður hættir maður að sjá fortíðina í ljósrauðum bjarma og sér kannski betur að allt var ekki eins æðislegt og maður hélt. Svo er líka mikilvægt að hafa í huga að í lífinu skiptast á skin og skúrir og að ekki reynir á hjónabandið fyrr en eitthvað kemur upp á. Við gleymum stundum að standa saman bæði í blíðu og stríðu.“ Að hætti Pollýönnu segir Guðný að það góða við skilnaðinn hafi verið að hún varð betri sálgæslumaður og öðlaðist næmari skilning á líðan skjólstæðinganna og því sem þeir voru að ganga í gegnum. Starfs- reynslan sé enda ein ástæða þess að hún skrifaði bókina. Hinar eru rann- sókn sem hún gerði og byggðist á djúpum viðtölum við ekkjur og frá- skildar konur sem og hennar eigin skilnaður. Sælar eru sorgbitnar Fljótlega eftir skilnaðinn hóf Guðný meistaranám í guðfræðideild Háskóla Íslands og gerði þá fyrr- nefnda rannsókn í tengslum við meistararitgerð sína, Sælar eru sorg- bitnar því þær munu huggaðar verða, sem er skírskotun í sæluboð- orðin í Mattheusarguðspjalli. Þótt rannsóknin hafi einungis tekið til kvenna fullyrðir Guðný að upplifun karla sé sú sama. „Svo mikið hefur sálgæsluþjónustan kennt mér,“ segir hún. „Einu gilti hvort konurnar í rannsókninni voru ekkjur eða frá- skildar, lýsingar þeirra á líðan sinni eftir makamissi voru samhljóma. Þær notuðu meira að segja sömu orðin yfir líkamlega vanlíðan sem oft fylgir mikilli sorg.“ Guðnýju finnst vanta einhvers konar formlegt kveðjuritúal fyrir þá sem ganga í gegnum skilnað. „Oftast skilur leiðir vegna óhamingju, ósætt- is eða framhjáhalds. Fólk er í tilfinn- ingalegu uppnámi og á erfitt með að hugsa á skynsamlegum nótum. Sér- stök kveðjustund að undangengnum viðtölum hjá presti gæti verið góð leið til að kveðjast sátt, þakka fyrir þann tíma sem parið átti saman og biðja fyrir hvort öðru. Með slíku móti er ég viss um að fólk geti skilið með meiri sæmd og sóma en ella.“ Spurð hvort bókin sé með trúar- legu ívafi svarar Guðný því til að þar sem hún sé prestur og sem kristin manneskja hafi hún verið alveg óhrædd að blanda guði í málin. Les- andanum sé síðan í lófa lagið að skil- greina með sínum hætti þann æðri mátt sem hún fjallar um. „Meiningin er að bókin tali til þín sem mann- eskju í djúpum dal, sem hún leiðir þig í gegnum og í átt að öðruvísi lífi og vonandi betra. Þá er bókin ekki síður fyrir vini og vandamenn sem upplifa sig vanmáttuga gagnvart óhamingju sinna nánustu vegna skilnaðar.“ Brostnar vonir Rétt eins og þegar syrgjandi ekkjur eða ekklar eiga í hlut bendir Guðný á að mikilvægt sé að sýna þeim sem eru að skilja sömu virð- ingu, skilning og nærgætni. Ekki saki heldur að bjóðast til að passa börnin, elda fyrir þá eða sinna ein- hverjum viðvikum til að létta þeim álagið á erfiðum stundum. „Við erum að syrgja brostnar vonir, bæði mak- inn sem er yfirgefinn og sá sem yf- irgefur. Enginn hefur í hyggju að skilja þegar þeir standa við altarið og sverja hjúskapareiðinn eða skrifa Sorgin sem samfélagið viðurkennir ekki Í bókinni, Skilnaður – en hvað svo? Leiðsögn á vegi til betra lífs, fjallar Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, m.a. um sorgina sem fylgir skilnaði; sorg þess yfirgefna og þess sem yfirgefur. Hún segir sorg beggja ekki ósvipaða því að sjá á eftir maka sínum í gröfina, þótt fráskildum sé yfirleitt hvorki sýnd samúð, boðin aðstoð né færð blóm og kökur. Þeir eru að syrgja brostnar vonir. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sálgæslumaðurinn Guðný Hallgrímsdóttir prestur kveðst hafa orðið betri sálgæslumaður eftir að hún gekk sjálf í gegnum skilnað. Brosnar vonir Miðað við háa skilnaðartíðni hafa margir Íslendingar syrgt brosnar vonir síðustu áratugina. Hið árlega Töfrakvöld HÍT, Hins ís- lenska töframannagildis, verður haldið í Salnum í Kópavogi, annað kvöld, 28. október og hefst kl. 20.00. Húsið verður opnað kl. 19.30. Töfrakvöld er ætlað allri fjölskyld- unni og er aðalgestur sýningarinnar enski töframaðurinn Chris Wood, sem hefur sýnt einstök töfrabrögð víða um heim í yfir þrjátíu ár. Einnig taka sjö íslenskir töframenn þátt í sýningunni, Einar einstaki, Jón Víðis, Kristinn Gauti, Arnúlfur og Kristinn & Sindri. Kynnir verður Lalli töframaður. Töframennirnir í HÍT munu ekki unna sér hvíldar í hléinu því þá fara þeir um húsið og leika listir sínar fyr- ir gesti. Töfrakvöld hafa verið árviss viðburður hjá HÍT frá því félagið var stofnað árið 2007. Íslenskir töfra- menn hafa eins og kollegar þeirra hvarvetna í heiminum undirgengist hinn alþjóðlega töframannaeið sem hljómar svona: „Sem töframaður, heiti ég því að afhjúpa aldrei leynd- armál fyrir áhorfanda, nema viðkom- andi sverji að hafa eið töframanna í hávegum. Ég lofa að sýna almenningi aldrei töfrabrögð án þess að hafa æft mig fullkomlega, svo leyndardóm- urinn varðveitist.“ Hið íslenska töframannagildi leikur listir sínar Töfrandi sýning fyrir alla fjöl- skylduna í Salnum í Kópavogi Töfrar Einvala lið töframanna kemur fram á hinni árlegu töfrasýningu HÍT.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.