Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.10.2015, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015 Það var alltaf svo gaman að koma til ykkar Rögnu í Veghúsin, manni leið alltaf svo vel hjá ykk- ur, það var alltaf svo gaman að fá að fylgjast með þér, Halli. Þú fórst oft með okkur niður í bíl- skúr þar sem þú hafðir alltaf eitt- hvað sniðugt til að sýna okkur krökkunum, varst mikill bílakall og alltaf á flottasta bílnum, það var aðalsportið að fá að vera í bíl með Halla því þú keyrðir alltaf svo hratt. Við eigum svo margar skemmtilegar minningar saman, útileguna í Galtalæk, sumarbú- staðarferðirnar, skemmtilegu út- landaferðirnar til Spánar og margar fleiri ferðir út suður um landið. Þú varst alltaf svo kær, Halli okkar, svo barngóður og hlýr. Áttir alltaf erfitt með að skamma okkur, fíflaðist frekar bara með okkur og tókst frekar þátt í leikn- um með okkur. Munum við halda fast í minningarnar úr Veghúsum og alla þá vináttu sem myndaðist þar, Dísu og Lúlla, Gunna og Ca- millu og krökkunum. Þú varst alltaf tilbúinn að rétta fram hjálpar höndina og kunnir hina ýmsu hluti, varst svo hand- laginn og duglegur. Settir öll önnur verk fram fyrir þig sjálfan. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljóð þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær. aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Svo stutt síðan við dönsuðum saman niður Laugaveginn á menningarnótt og við fjölskyldan eyddum nóttinni á Skúlagötu 20, í síðasta sinn. Við héldum aldrei að við mynd- um kveðja strax annan hlekk úr fjölskyldunni, þú varst svo mikill stuðningur í gegnum missinn á afa. Varst alltaf mættur, fínn í tauinu og vel til hafður og ekki mátti gleyma derhúfunni heima. Við áttum góðar stundir sam- an á svölunum hjá afa um daginn, það var mikið hlegið og pælt í bíl- unum sem stóð út á plani, hver væri aðalbíllinn í dag og hver ætti að eiga hvern ef við mættum velja. Skemmtileg sagan frá því þeg- ar þú komst og hjálpaðir til við ganga frá í kirkjugarðinum hjá afa og hlógum við mikið að fal- legu ljótu blómunum sem þú ákvaðst að setja á leiðið hjá næsta manni, svo hann myndi hafa eitthvað hjá sér líka. Munum við kveðja þig með söknuði í hjarta, þín verður sárt saknað, Halli. Við munum sjá til þess að halda fjölskyldunni sam- an og vitum að þú munt vaka yfir okkur, verður með okkur á góð- um og erfiðum tímum. Þangað til næst, kæri vinur. Þín, Aldís Eik Arnarsdóttir og Vilhjálmur Ragnar Eyþórsson (Villi). Haraldur, ég veit ekki hvar ég á að byrja, elsku vinur. Minningarnar um þig, okkur og fjölskyldur okkar hafa streymt fram síðustu vikuna. Ég gæti byrjað frá byrjun og talað um það þegar við fjölskyld- an komum heim frá Svíþjóð og fluttum í Veghúsin. Ákvörðun sem átti eftir að verða eitthvert mesta gæfuspor sem við Camilla höfum tekið. Þarna urðu til tengsl sem ekki hafa rofnað síð- an. Ekki bara hjá okkur, heldur líka fjölskyldum okkar og vinum. Emil og Þorsteinn tveggja ára og þar myndaðist vinskapur og síðar vinahópur sem varla á sér hlið- stæðu í dag. Edda fjögurra ára, ásamt fylkingu af foreldrum og krökkum sem á næstu árum urðu eins og ein stór fjölskylda. Fjöl- skylda sem stækkaði síðan yfir allt Húsahverfið og í raun Graf- arvoginn allan. Í framhaldinu mættu Inga og Ragna á svæðið og ekki minnkaði fjörið í blokk- inni við það. Í Veghúsum þurfti ekki að læsa hurðum og þegar haldin voru boð eða afmæli var öllum boðið. Ég gæti talað um gamlárs- kvöldin, þá stóðu íbúðirnar bara opnar og íbúar og gestir voru bara þar sem þá langaði til að vera. Þá gæti ég líka talað um sprengjukeppnina og árið sem við tveir komumst yfir slatta af tí- volíbombum á kostakjörum. Ástæðan fyrir verðinu kom síðan í ljós þegar flugeldasýningin hófst. Púff púff heyrðist í þeim og þó svo þær hafi skilið eftir sig falleg hvít strik, þá var þetta ekki flott- asta sýningin okkar. Ég gæti talað um NBA-næt- urnar með popp og kók. Ég gæti talað um veiði og já ef það var eitthvað sem kveikti í okkur þá var það veiði. Ég nýliði í faginu og þú hokinn af reynslu og miðlaðir því svo vel að ég varð al- veg heltekinn af þessu sporti. Fundina í bílskúrnum kvöldið áð- ur en farið var, pakka saman dótinu og hnýta eina og eina flugu sem gæti bara ekki klikkað! Ég gæti talað um túrinn okkar í Veiðivötn á Hilux-inum, þegar við sváfum í framsætunum í 3 nætur. „Það er alltaf laust pláss í Veiðivötnum,“ sagði einhver. Ég gæti talað um orðatiltæki sem urðu til, eins og á Pepsi-mótinu uppi á Skaga þegar við fjölskyld- urnar komum okkur vel fyrir á tjaldstæðinu, ásamt Smára og Ingu. Smári sendur til að kaupa eitthvað á grillið og mætti með 10 kg af kótelettum fyrir 8 manns. „Ég þoli ekki þegar það vantar,“ sagði hann. Þetta varð setning sem við notuðum oft. Ég gæti talað um vinnuna sem við áttum sameiginlega í mörg ár, ég gæti talað um þekkingu þína á öllu mögulegu og ómögulegu, þú varst alltaf með svör. Halli, ég gæti talað um svo margt, en það eina sem ég í raun þarf að segja er að ég og fjöl- skyldan erum þakklát fyrir að hafa þekkt þig, verið vinir þínir, tengt saman fjölskyldur okkar og að eiga þessar minningar um þig. Halli, ég þoli ekki þegar það vantar og nú vantar þig, minn kæri vinur. Hvíl í friði. Elsku Ragna, Þorsteinn Andri, Inga Björk og Ragna Björg, sendum ykkur styrk og hlýju á þessum erfiðu tímum. Gunnar, Camilla, Edda Lína og Emil Gunnar. Gunnar Gunnarsson. Fyrir 25 árum flutti hópur af ungu fólki með börnin sín í blokk í Grafarvogi. Á annarri hæð myndaðist strax skemmtileg stemning þar sem grunnur var lagður að ævilöngum vinskap. Þegar við minnumst hans Halla okkar, sem alltaf var kall- aður Halli granni okkar á milli, er margt sem kemur upp í hugann. Oft höfum við gert góðlátlegt grín að því hvernig það er Gerði Önnu annaðhvort að þakka eða kenna að Ragna og Halli drifu í að gifta sig. Stelpan skildi ekki al- veg muninn á trúlofun og gift- ingu, skellti sér yfir ganginn og spurði: „Halli, af hverju ert þú ekki búinn að giftast henni Rögnu?“ Brúðkaup var haldið næsta sumar með pomp og prakt. Það var ekki forgangsatriði í lífi Halla að kunna á klukku en þótt hann væri á öðrum tíma en aðrir bætti hann það upp með hlýju viðmóti, notalegri nærveru og góðum húmor. Nokkrum gamlárskvöldum eyddum við saman þar sem eld- aður var ljúffengur matur að hætti þeirra hjóna, þó svo að ein- hverjir hafi frekar kosið Knorr- béarnaisesósu fram yfir Halla special-sósu. Það var líka alveg nýtt fyrir okkur að hægt væri að meta gæði kjöts með því að smakka það hrátt í búðinni en mikið svakalega var steikin góð. Flórídaferðin sem farin var er ógleymanleg. Skemmtigarðar, verslunarferðir, hangs við sund- laugina og endalaus hlátur og gleði. Nægjusemi Halla er ágætlega lýst þegar við rifjum upp gamla derhúfu sem honum fannst óþarfi að endurnýja þrátt fyrir slit, það mátti skella henni í þvottavél og þá yrði hún eins og ný. Krakkarnir leituðu til Halla þegar fótboltinn eða eitthvað annað braut ljósið í kerinu fyrir utan húsið, hann var pabbinn sem reddaði því án frekari spurninga og skammaði þá aldrei. Halli vildi allt fyrir alla gera og sagði sjaldan nei en hans mottó var „við reddum þessu“. Ekki fannst okkur tími Halla vera kominn en skemmtilegar minn- ingar um góðan vin lifa með okk- ur. Elsku Ragna okkar, Þor- steinn, Inga og Ragna Björg, það kemur að því að þegar þið minn- ist hans Halla þá kemur brosið á undan tárunum. Ásdís, Lúðvík, Gerður Anna, Birgir og Helga Hjördís. Mikið er það skrýtið að ég skuli vera að skrifa minningar- grein um Harald Gunnarsson vin minn. Enn og aftur er manni kippt inn í raunveruleikann og minntur á hvað þetta líf er hverf- ult. Það er erfitt að kveðja starfs- félaga og vin á þessu aldurs- skeiði. Ég kynntist Halla, eins og hann var alltaf kallaður, þegar ég sóttist eftir samstarfsmanni við uppgjör á tjónum fyrir Lloyd‘s- bílatryggingar rétt fyrir alda- mótin. Þá var mér sagt að hann væri reynslubolti á þessu sviði og væri að leita sér að vinnu. Við náðum saman á fyrsta degi og stóðum við saman í þessu verkefni þar til ég hætti störfum og fór í það að stofna Íslandstryggingu, sem núna heitir Vörður. Að sjálfsögðu náði ég í Halla þegar pláss mynd- aðist hjá því fyrirtæki. Halli var hjálpsamur og dug- legur í sínu starfi og hafði mikinn áhuga á að gera sem flestum til geðs. Hann kunni illa við að neita fólki um eitthvað, var alltaf tilbú- inn að aðstoða fólk í hvers kyns vandræðum. Þetta gat oft leitt til þess að erfitt var að klára mál og fyrir Halla var það erfiðast því hann vildi ekki að það hallaði á neinn. Hann var mikill verkmaður og hafði gaman af því að sinna verk- þætti tjóna og stunda sölu á tjónavarningi. Halli var stangveiðimaður og kenndi mér til verka í þeirri íþrótt. Að hlusta á hann segja veiði- sögur var algjör unun. Hann lifði sig inn í sögurnar og elskaði að segja frá. Maðkaholur í ám þar sem Halli vissi að fiskurinn faldi sig voru ótaldar. Árlega fórum við ásamt Einari Baldvinssyni, fyrrverandi samstarfsmanni hjá Íslandstryggingu, og Guðmundi Jóhannessyni ljósmyndara í veiðitúr í Eldvatnsbotna og þá notuðum við tímann á kvöldin til að spila brids. Húmorinn var aldrei langt undan og við félagarnir höfðum fyrir reglu að grínast með hlutina þegar því var við komið. Okkar leiðir skildu þegar ég hætti að starfa hjá vátrygginga- félaginu og hélt á vit annarra verkefna en Halli hélt starfi sínu áfram á þeim vígstöðvum. Á ein- hverjum tíma hætti hann þar störfum líka. Ég missti því sjónar á félaga og vini í allt of langan tíma. Ég sakna Halla, sem var þúsund- þjalasmiður, strákur sem kunni að gera við hluti sem ekki var hægt að gera við. Hjálpsamur og hlýr, þannig minnist ég Halla vin- ar míns. Blessuð sé minning hans. Rögnu og börnunum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Smári Ríkarðsson. Yndislegur vinur er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Halla kynntist ég þegar við Ragna fór- um að vinna saman í bankanum. Það var mikið brallað á þessum árum þegar maður var bara tutt- ugu og eitthvað. Útilegur, ótal margar sumarbústaðaferðir og ekki má gleyma öllum partíun- um. Skemmtilegar minningarnar hrannast upp þessi 28 ár. Svo þegar við vinkonurnar í bankan- um vorum orðin svolítið settlegri stofnuðum við matarklúbbinn Borgþór, eða Bogga. Yfirmat- reiðslumaðurinn í þeim klúbbi var Halli enda var hann lista- kokkur og gat töfrað fram hinar ýmsu kræsingar. Matarklúbbur- inn endaði svo oft með danssnún- ingi á stofugólfinu við góða mús- ík. Saman fórum við matarklúbb- urinn til Kúbu 2006, það var frá- bær ferð og var Halli aðalmað- urinn í þeirri ferð, alltaf hress og kátur. Allir kunnu vel við Halla, hvort sem það var gamla eða unga fólk- ið, Halli gat haldið uppi samræð- um við alla. Já, Halli var alltaf hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom og sannur vinur. Minning um góðan mann lifir í hjörtum okkar. Elsku Ragna, Þorsteinn Andri, Inga Björk og Ragna Björg, mikill er missir ykkar. Við fjölskyldan vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Svandís og Sveinn. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Elskulegur faðir minn, afi okkar og langafi, BALDUR SIGURJÓNSSON, Hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum, áður Austurbrún 25, lést að morgni fimmtudagsins 22. október. Útförin fer fram í kyrrþey. . Ólöf Sigríður Baldursdóttir og fjölskylda. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRÍÐA KRISTJÁNSDÓTTIR fyrrv. bankastarfsmaður, Strandvegi 20, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi þann 24. október 2015. Útför hennar verður auglýst síðar. . Ragnheiður V. Rögnvaldsdóttir Hallgrímur A. Viktorsson Regína Rögnvaldsdóttir Helgi Már Halldórsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN ÁSGEIR HENRYSSON, Hundkærvej 13, 8530 Hjortshöj, lést á Háskólasjúkrahúsi Aarhus 28. september síðastliðinn. Bálför fór fram í Aarhus og minningarathöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík. . Lára Erlingsdóttir, Henry Ásgeir Thorsteinsson, Veronica Thorsteinsson og barnabörn. Eiginmaður minn, BJARNI EINARSSON húsgagnasmiður, Teigagerði 10, lést 18. október sl. á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 30. október klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, . Ragnheiður Eyjólfsdóttir. Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNINNA GUÐNÝ STEINGRÍMSDÓTTIR, Flúðabakka 2, Blönduósi, lést þann 21. október á Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju 4. nóvember klukkan 13. . Steingrímur Þormóðsson, Guðbjörg Egilsdóttir, Helga Þormóðsdóttir, Ingibergur Sigurðsson, Pétur Þormóðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓR HEIMIR VILHJÁLMSSON, fyrrum dómari og prófessor, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 20. október. Hann verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 29. október klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ástusjóð (banki 301-13-302339, kt. 630714-0440) og minningarsjóði Landspítalans. . Ragnhildur Helgadóttir, Þórunn Þórsdóttir, Kristín Þórsdóttir, Þórir Óskarsson, Inga Þórsdóttir, Stefán Einarsson, Helgi Þórsson, Guðrún Eyjólfsdóttir, barnabörn og börn þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.