Morgunblaðið - 27.10.2015, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015
Smáauglýsingar
Húsnæði íboði
Til leigu fjögra herbergja íbúð í
Hólmgarði, 75,8 fm, leiga 185 þús. á
mánuði. Þriggja mánaða trygging
Áhugasamir sendið póst: box@
mbl.is merktan ,,L–25980”.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Viðhaldslítil
ferðaþjónustuhús
og sumarhús til sölu
halliparket@gmail.com
sími 894 0048
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Þjónusta
GM Smiðir eru að bæta við sig
verkefnum fyrir næstu misseri.
Gips. Gluggar. Innréttingar.
Parketlagnir. Hurðar. Kerfisloft
og fleira sem snýr að bygginga-
starfsemi.
Uppl. gmsmidir@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Eldri sjálfstæðismenn hittast á morgun,
miðvikudaginn 28. október, kl. 12:00, í stóra
salnum í Valhöll.
Húsið verður opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi, 750 krónur.
Gestur fundarins: Bjarni
Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, gönguhópur 1 kl. 10.15 og
vatnsleikfimi í Vesturbæjarlauginni kl. 10.50. Eftir hádegi er tálgað í
tré og postulínsmálun 1 kl. 13 og jóga kl. 18. Skráning hjá Signýju
jógakennara í síma 894 0383.
Árskógar 4 Þriðjudagur: 8.september Opið frá kl.08:00 - 16:00
Smíðastofa/útskurður með leiðbeinanda kl.09:00. Leikfimi með Mariu
kl.9:20-10:00. Handavinna með leiðbeinanda kl.12:30. MS – félagsstarf
kl.14:00 Útivellir, Pútt- og boccia opnir fyrir alla.
Árskógar 4 Opið 8-16, smíðar /útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16.
Leikfimi með Mariu kl. 9.20-10. Handavinna með leiðbeinanda.kl.
12.30-16. MS-fræðslu- og félafsstarf kl. 14-16.
Áskirkja Spiluð verður félagsvist í NEÐRI SAL kirkjunnar kl 20 Allir
velkomnir
Boðinn Handavinna kl. 9-15, botsía kl. 10.30-11.30, brids / kanasta kl.
13-15, pennasaumur kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10:40, útskurður kl. 13:00, dans kl.
13:30, og leshópurinn kl. 13:00
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.14.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, bænastund kl.9.30, samveru-
stund kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Við fögnum vetrinum með kjarngóðri kjötsúpu
eftir kyrrðarstundina sem er kl. 12 að venju. Gestur dagsins er Halldór
Skarphéðinsson tónlistamaður. Við spilum, prjónum og spjöllum
saman í notarlegri samveru. Framhaldssagan og fyrirbænastund á
sínum stað. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Félagsmiðstöðin Gjábakki Handavinna kl. 9. tréskurður k.l 9,
stólaleikfimi kl. 9.10, silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, handavinna kl.
13, alkort kl. 13.30, jafnvægisþjálfun kl. 14, létt hreyfing kl. 15,
línudans kl. 18 og samkvæmisdans k.l 19.
Furugerði 1 Morgunmatur kl.08:10, handavinna með leiðbeinanda
kl.08-16 (prjón, hekl, saumur af ýmsu tagi, harðangur og klaustur),
hádegismatur kl.11:30, ganga kl. 13, Botsía kl. 14, síðdegiskaffi kl.
14:30 og kvöldmatur kl. 18-19. Nánari upplýsingar í síma 411-2740
Garðabæ Qi gong í Sjálandi kl.9.40, vatsleikfimi í Sjálandi kl.7.30 og
15, bútasaumur kl.13, opiðhús í kirkjunni kl.13, Bónusrúta frá
Jónshúsi kl.14.45, trésmíði í Kirkjuhvoli kl.9 og 13.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Perlusaumur kl. 9-12.Tiffany
glervinna m/leiðb. kl. 12.30-15.30. Leikfimi gönguhóps kl. 10,
Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Leikfimi Milan og Maríu kl. 10.30.
Starf Félags heyrnalausra kl. 11.30-15.30.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.15. Hefst með
samsöng við undirleik organista. Helgistund, handavinna, spilað og
spjallað. Kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Jóga kl. 9.30, myndlist kl. 9, ganga kl. 10, kanasta og
tréskurður kl. 13, jóga kl. 17.15.
Hallgrímskirkja Starf fyrir eldri borgara í Hallgrímskirkju þriðudaga
og föstudaga kl. 11-13. Leikfimi, súpa og spjall.
Hraunbær 105 8:30 Kaffihornið – allir velkomnir í kaffi og gott spjall,
9:00 Handavinnustofan hjá Astrid opnar, 11:30 Hádegismatur, 13:15
Félagsvist, 14:30 Kaffi.
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 -16, morgunkaffi
og spjall til kl. 10.30, dagblöðin, púsl og tafl liggja frammi, jóga kl.
8.30, 9.30, 10.30 og 11.30. Morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30.
Helgistund kl. 14, séra Ólafur Jóhannsson, kaffi kl. 14.30, stólaleikfimi
kl. 15, fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl.8.50, myndlistanámskeið
kennari er Margrét Zóphóníasdóttir kl. 9,Thai Chi kl.9, leikfimi kl. 10,
bónusbíll kl. 12.40, brids kl. 13, Kríur myndlistahópur kl. 13, bókabíll
kl.14.15, síðdegiskaffi kl. 14:30, enska kl. 13, spænska kl, 15.00, nánar
í síma 411-2790. U3A kl. 17.00. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri
og búsetu nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Línudans í Kópavogsskóla framh. stig 3 (2 x í
viku) kl.16.00, kl.17.00 framh. stig 2 ( 2x í viku), kl. 18.00 framh. stig 4
(lengst komnir) Uppl. í síma 698-5857 og á www.glod.is
Korpúlfar Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9:30 í dag, helgi-
stund í Borgum kl. 10:30 og Qigong með Þóru Halldórsdóttir kl. 11:00
í Borgum.
Laugarból Nýtt í Ármanni: Leikfimi fyrir 50+ og eldri borgara. Leik-
fimi kl. 11 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Fjölbreyttar æfingar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1 Md: Hreyfing 9.45,Lestur 11,Smíði 13-16,Ganga
14,Djáknastund 13:30,Bíó 15:30. Þd: Hreyfing 9.45,Lestur 11,Smíði
9-12,Lista 9-16,Ganga 14,Boccia 15:30. Mvd: Hreyfing 9.45,Lestur
11,Smíði 9-12,Ganga 14,Félagsvist 14-16,Samvera 15:30. Fd: Hreyfing
9.45,Lestur 11,Smíði 9-12,Lista 9-16,Ganga 14,Tölvur og tæki 15:30.
Föd: Hreyfing 9.45,Lestur 11,Smíði 9-12,Lista 9-12,Ganga 14.
Seljakirkja Menningarvaka eldri borgara verður í Seljakirkju í kvöld
kl. 18. Vilhjálmur Bjarnason flytur erindi í léttum dúr sem ber yfir-
skriftina markaðshyggja Halldórs Laxness. Karlsönghópurinn "einn
tvöfaldur" flytur tónlist. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 07.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Helgistund og hádegisverður í kirkjunni kl. 11.00. Karlakaffi í saf-
naðarheimili kirkjunnar kl. 14.00. Skráning vegna jólahlaðborðs á
Hótel Örk 9. desember stendur yfir og liggja skráningablöð frammi
á Skólabraut og Eiðismýri. Nánari upplýsingar í síma 8939800.
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu Samvera og súpa í dag frá kl
11:30 til 13:00 , súpa brauð og kaffi kl 350,- krónur Allir velkomir
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Qi-gong/námskeið kl. 10.30
leiðbeinandi Inga Björk Sveinsdóttir. Skák kl. 13.00, allir velkomnir.
Sviðaveisla 31. október, verð 3700 skráning í s. 588-2111 eða
feb@feb.is
Vitatorg Bútasaumur og glerbræðsla kl. 9.00, eigum laus pláss í
glerbræðsluna, upplestur, framh.saga 12.30, handavinn kl. 13-15.
Félagsvist kl. 12.30
Félagslíf
Hlín 6015271019 VI
FJÖLNIR 6015102719 I
EDDA 6015102719 III
Í október eru 60
ár frá því að við
hittumst, fyrsti
hópurinn sem
stundaði nám við Samvinnuskól-
ann eftir að hann var fluttur frá
Reykjavík til Bifrastar í Borg-
arfirði. Nemendur voru ólíkir
þetta fyrsta ár, komu víðs vegar
að af landinu og voru á aldrinum
frá 16 ára til 25 ára. En nú er
farið að fækka í hópnum. Við
getum þakkað fyrir hve mörg ár
við höfum átt saman, af 30
manna hópi hafa nú sex horfið á
braut, nú síðast skólasystir okk-
ar, Steinunn Jónína Ólafsdóttir,
sem við minnumst nú.
Steinunn var sterkur per-
sónuleiki, ákveðin og röggsöm.
Hún var mjög félagslynd, enda
þótt hún virkaði hæglát. Hún
hikaði samt ekki við að láta
skoðanir sínar í ljós. Hún tók
verulegan þátt í öllu sem við
tókum okkur fyrir hendur, hún
söng í kvennasveitinni okkar,
hélt ræðu um minni karla á
skemmtun og tók þátt í öllum
„prakkarastrikum“ sem okkur
datt í hug að gera og gat hlegið
og skemmt sér yfir þeim, m.a.
gleymdum við tvær okkur sam-
an eitt sinn að skrifa grein í
blaðið okkar um hvernig fram-
tíðin myndi verða hjá okkur
skólafélögunum að námi loknu
og kom þá ýmislegt fram sem
kannski ekki var sett allt á blað.
Já, það er svo ótal margs að
minnast frá dvöl okkar í Bifröst,
framtíðin beið okkar og allt var
svo létt og jákvætt. Sem fyrsti
hópur er hóf nám í Bifröst var
okkur falið að móta skólalífið
Steinunn Jónína
Ólafsdóttir
✝ Steinunn Jón-ína Ólafsdóttir
fæddist 16. maí
1935. Hún lést 24.
september 2015.
Útför hennar fór
fram 3. október
2015.
með alls kyns
klúbbum og við-
burðum til að vera
sem best fyrirmynd
fyrir komandi
skólastarf.
Fyrstu árin eftir
útskrift hittumst
við á fimm ára
fresti og var alltaf
eins og við hefðum
hist í gær og urðum
aftur sömu ungling-
arnir, en núna seinni árin reyn-
um við að hittast oftar. Ekki lét
Steinunn veður eða langa leið
aftra sér frá því að hitta okkur
og minnist ég þess að hún þurfti
að fara á snjóbíl frá Seyðisfirði
til Egilsstaða í bandvitlausri
snjókomu og þaðan í flugvél til
Reykjavíkur til þess að mæta
svo í Bifröst til okkar félaganna
Síðast hittumst við ótrúlega
mörg á heimili mínu í byrjum
júní þegar ein skólasystir okkar
sem býr í Englandi var stödd
hér á landi og gleymdum okkur
við að rifja upp gamlar minn-
ingar lengi kvölds. Þá var Stein-
unn meðal okkar og var svo
hress og glöð eins og hennar var
von og vísa og þess vegna brá
okkur mjög þegar við fengum
dánarfregn hennar núna. Við
vorum nýbúin að skoða svo fal-
lega mynd af henni með barna-
börnum á „Facebook“ tekna í
tilefni af áttræðisafmæli hennar.
Steinunn fékk sinn hluta af
lífsins mótlæti sem hún mætti
með mikilli hugprýði. Eftir lát
eiginmanns síns flutti hún suður
í skjól barna sinna og átti góð ár
í miklu sjálfboðastarfi í Reykja-
vík, en hún hafði alltaf verið virk
í félagsstarfi á heimaslóðum. Við
skólasystkinin vottum börnum
hennar og fjölskyldum okkar
innilegustu samúð og söknum
hennar úr okkar hópi.
Fyrir hönd útskriftarhóps
Samvinnuskólans í Bifröst 1957,
Magnea K. Sigurðardóttir.
Þið þekkið fold með blíðri brá
og bláum tindi fjalla
og svanahljómi, silungsá
og sælu blómi valla
og bröttum fossi, björtum sjá
og breiðum jökulskalla –
drjúpi’ hana blessun drottins á
um daga heimsins alla.
(Jónas Hallgrímsson)
Takk fyrir samfylgdina.
Blessuð sé minning Péturs.
Valgerður, Haukur,
Sóley Friðrika, Svala
Kristín og Franziska.
Kæri tengdasonur og vinur,
ég á þér óendanlega mikið að
þakka.
Við spyrjum Drottin særð hvers vegna
hann
Pétur K. Maack
✝ Pétur K. Maack fæddist 1.janúar 1946. Hann lést 14.
október 2015. Pétur var jarð-
sunginn 22. október 2015.
hafi það dularfulla verklag
að kalla svona vænan vinnumann
af velli heim á bæ um miðjan dag.
Og þó með trega og sorg skal á það
sæst
að sá með rétti snemma hvílast
megi
í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst
fundið svo til að nægði löngum degi.
(JSH)
Arnfríður.
Að skrifa minningagrein
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.