Morgunblaðið - 27.10.2015, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinnan er verðlaun velmegunnar.
Hugsaðu málið vel áður en þú lætur það eftir
þér að eyða peningum í þetta og vegðu og
mettu hvort þeim væri kannski betur varið í
annað.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er tilvalið að kenna börnum nýja
hluti. Til að mynda í erfðamálum, tryggingum
o.þ.h. Sýndu þolinmæði því tiltektir þeirra
munu hitta þá sjálfa fyrir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er tíminn til að hlusta á þína
innri rödd og hvert hún vill leiða þig. Til þín
kann að verða leitað sem sáttasemjara og þá
hefur þú þitt á tæru.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hægðu ferðina á leiðinni til vinnu í
dag. Ef þú tekur hlutina of bókstaflega fer
brandarinn fyrir ofan garð og neðan. Kímni
fer um vandrataðan veg.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er úthlutað verkefni sem allir hafa
gefist upp á. Vertu fyrri til að rétta fram
sáttahönd, því sjaldan veldur einn þá tveir
deila.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Skilgreiningin á mörkum kemur upp á
yfirborðið. Rannsóknir bera góðan árangur
og þér lukkast að koma umbótum og nýjum
aðferðum til leiðar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Maki þinn eða náinn vinur vill gera breyt-
ingar á sambandi ykkar. Hættu að reyna að
ganga í augun á fólki – láttu það koma til þín.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það eru þrjár plánetur í merkinu
þínu sem veita þér aukinn kraft. Sinntu hon-
um eins og þér frekast er unnt og leggðu
annað til hliðar á meðan.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ekki allt gull sem glóir og
margt reynist eftirsókn eftir vindi. Stundum
er í lagi að leyfa öðrum að njóta sín líka.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það eru ýmsir möguleikar í stöð-
unni en farðu þér hægt því að flas er ekki til
fagnaðar. Farðu út og gerðu eitthvað upp-
byggilegt þér til dægrastyttingar!
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ekkert hlaupið að því að
raða lífsbrotunum saman svo vel fari til fram-
tíðar. Ekki vera hissa þótt þú finnir þig
knúna/knúinn til þess að vera í samkeppni
við einhvern.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu bara nógu ákveðin/n í því sem
þú tekur þér fyrir hendur og láttu ekki slá
vopnin úr höndum þínum. Bjóddu þeim sem
kunna að meta verkið og munu segja ná-
kvæmlega það sem þú vilt heyra.
Þetta skemmtilega ljóð eftir Þor-stein Stanya Magnússon var á
Boðnarmiði í gær og heitir Kona.
Í veröld minna vona,
ég veit það elsku kona;
þú miklar mig …
Fölan prýðir fingur
fagurgylltur hringur;
ég þrái þig …
Það að elska þig ég vil,
en þú ert bara hvergi til …
Páll Imsland heilsar leirliði á
svölum morgni með sögunni af
henni Þorgerði þrímálga
Hún Þorgerður þrímálga’ á Teigi
var þrautseig við svolgrið á legi.
Hún alla tíð sló
í ölræður þó
á hverjum einasta degi.
Sigrún Haraldsdóttir er á öðrum
slóðum:
Þegar hann Þór upp við foss
þóttist sjá Kate litlu Moss
blússu að þvo
brá honum svo
að augu hans ætluðu í kross.
Hallmundur Kristinsson í Limru-
bókinni:
Vesalings litla Lóa
laumaðist út í móa.
Eignaðist ást
sem óðara brást.
Úti er alltaf að snjóa.
„Hausttregi,“ segir Eðvarð Tay-
lor Jónsson á Boðnarmiði og setur í
sviga (enn ein haustvísa – inn-
antökuháttur):
Foldin gránar, fjúka lauf af trjám
fölva haustsins slær á hæð og laut
Fuglar vorsins flognir eru á braut
falla höfug tár af ýta brám.
Já, nú er haust og heilög nálgast jól
húmsins dökka blæja sveipar tind.
Úr haga og túni horfin sérhver kind
hægt og rótt til viðar gengur sól.
Höskuldur Búi er á sömu nótum:
Blómið kæfir kafaldsglýja
klessist snæviþakin jurt.
Angur svæfir andlit skýja
er þau þæfast hrakin burt.
Gústi Mar. hlustaði á Sigmund
Davíð í viðtali á Sprengisandi:
Í sessi höfum Framsókn fest
flokkinn vaskra drengja
Íslands gæfa er það mest,
sem enginn þarf að rengja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Um konur, haustljóð
og á Sprengisandi
Í klípu
VIÐHALDIÐ
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„GEFÐU MÉR VIKU VIÐVÖRUN ÁÐUR
EN ÞEIR HLEYPA ÞÉR HÉÐAN ÚT OG
ÉG SKAL ÞRÍFA ELDHÚSIÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... allt saman.
ÉG ÞARF
FAÐMLAG
NEI, ÞAÐ ER
EKKI RÉTT
ÉG ÞARF
ÍS!
ÓVINUR OKKAR ER
HER AF RISAVÖXNUM
STRÍÐSMÖNNUM!!
EN MUNIÐ
MENN…
… VIÐ HÖFUM
HRAÐANN MEÐ
OKKUR Í LIÐI!!
HVENÆR BYRJUM
VIÐ ÞÁ AÐ FLÝJA?
ÞETTA ER FRÁBÆRT HÚS SEM
ÞARFNAST SMÁ VIÐHALDS, OG HÉRNA
ER KALLI, EINHLEYPUR OG FREKAR
HANDLAGINN GAUR.
Til
sölu
Þú
Ég
Skódi ljóti spýtir grjóti, heyrðiVíkverji sagt í gamla daga um
þessa ágætu bíltegund. Mikið vatn
hefur til sjávar runnið síðan. Skód-
inn er í dag eitt vinsælasta ökutæki
í hinum vestræna heimi, og jafnvel
víðar, og á Volkswagen-vélum mikið
að þakka í því efni. Þess vegna var
það rothögg fyrir marga Skoda-
eigendur að heyra að þeirra bílar
væru búnir svindlbúnaði í útblást-
ursprófi líkt og fjölmargir bílar
VW. Skódi ljóti skítur sóti, væri
nær að orða þetta í dag, þó að það
hljómi illa.
x x x
Víkverji er einn þeirra ökumannasem aka um á bíl með þessum
búnaði. Bíllinn gengur eins og
klukka, það er ekki vandamálið. En
þetta mun hafa í för með sér ómælt
óhagræði, jafnt á heimsvísu sem á
heimilisbókhaldið. Ekkert er að
marka tölur um losun gróðurhúsa-
lofttegunda og hlýnun jarðar heldur
áfram sem aldrei fyrr, söluvirði
þessara svindlbíla hrynur og op-
inberar álögur á þá aukast.
x x x
Víkverji ætlar rétt að vona aðVolkswagen, Skoda og aðrir
bílaframleiðendur, sem uppvísir
hafa orðið að svindli, muni gyrða
sig í brók og bæta bíleigendum það
tjón sem þeir hafa orðið fyrir. Bíla-
umboðin hér á landi hafa beðist af-
sökunar á þessu megaklúðri og boð-
að bréf til bíleigenda þegar komið
er að því að innkalla ökutækin og
lagfæra búnaðinn. Víkverji telur
ekki nóg að gert. Hann vill helst fá
nýjan bíl í staðinn en gerir sér
grein fyrir að líklega sé það óraun-
hæf krafa. Frí smurning og þjón-
ustuskoðun til æviloka bíls og bíl-
stjóra er eitthvað sem teldist
sanngjarnt. Einnig hefði Víkverji
ekkert á móti boðsmiða í leikhús,
bensínkortum eða vænum afslætti á
nýjum bíl.
x x x
Eitt er nefnilega alveg á hreinu.Bílaframleiðendur hafa gert
upp á bak og saklausir eigendur
svindlbílanna eiga heimtingu á ein-
hverju öðru og meira en innköllun
og ókeypis viðgerð á búnaðinum.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús sagði: „Komið til mín, allir þér
sem erfiði hafið og þungar byrðar, og
ég mun veita yður hvíld.“ Matt. 11:28