Morgunblaðið - 27.10.2015, Side 36

Morgunblaðið - 27.10.2015, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 300. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Nafn stúlkunnar sem lést 2. Fatlaður maður skreið frá borði 3. Jólageitin brunnin 4. Ólafía Hrönn selur hæðina »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Söngvarinn og lagahöfundurinn Chris Cornell heldur tónleika í Eld- borg 23. mars á næsta ári og mun á þeim flytja lög af nýrri plötu sinni, Higher Truth, auk helstu laga af ferli sínum. Tónleikarnir eru þeir fyrstu í tónleikaferð Cornells um Evrópu. Cornell er með þekktari rokksöngv- urum sögunnar og gerði garðinn frægan með hljómsveitunum Sound- garden, Audioslave og Temple of the Dog. Hann hefur hlotið fjölda Grammy-verðlauna og verið til- nefndur til Golden Globe-verðlauna sem söngvari, lagahöfundur, texta- smiður og gítarleikari. Cornell í Eldborg  Tónlistarkonan Edda Borg leikur í kvöld ásamt hljómsveit á djasskvöldi Kex hostels og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Leikin verða lög af plötu Eddu, No Words Needed, auk nýrra laga sem hún vinnur að nú um stundir. Edda Borg og hljóm- sveit á Kex hosteli  Sinfóníuhljómsveit Íslands er á tónleikaferð um landið og í kvöld leik- ur hún í Hofi á Akureyri og á fimmtu- daginn í Íþróttamiðstöðinni á Egils- stöðum. Daníel Bjarnason stjórnar m.a. flutningi SÍ á eigin verki, Blow Bright, og er ferðin stærsta verkefni vetrarins hjá hljóm- sveitinni. Sinfó leikur fyrir norðan og austan Á miðvikudag Austan og suðaustan 10-18 m/s. Súld eða rigning, en úrkomulítið norðanlands. Hiti 4 til 9 stig. Á fimmtudag Austan 10-18 m/s og vætusamt, einkum suðaustan- og austanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægt vaxandi suðaustanátt með súld eða rigningu sunnantil og hlýnar í veðri, hiti að 8 stigum sunnantil seinnipartinn, en vægt frost fyrir norðan fram á kvöld. VEÐUR Íslenska landsliðið í knatt- spyrnu kvenna vann stóran sigur á Slóvenum, 6:0, í síð- asta leik sínum í undan- keppni EM á þessu ári í Lendava í gærkvöldi. Ís- lenska landsliðið er efst í riðlinum með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og markatöl- una 12:0. Góður undirbún- ingur skilaði sér, sagði Freyr Alexandersson landsliðs- þjálfari eftir sigurinn í Lendava. »4 Stórsigur og fullt hús stiga „Landsliðssætið er stærsta viðurkenn- ingin og heldur honum enn frekar á tán- um. Hann er fullur sjálfstrausts og það er ekki annað hægt en að gefa honum gott klapp á bakið fyrir það hvernig hann hefur tæklað þessi mál,“ segir Sverre Björnsson, þjálfari Akureyrar, um markvörðinn Hreiðar Levý Guðmunds- son sem er leikmaður 10. umferðar í Olís-deild karla í handknattleik. »2 Landsliðssætið er stærsta viðurkenningin ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Daði Örn Jónsson tryggði sér um helgina sigur á Evrópumeistaramóti einstaklinga í bréfskák. Þetta er besti árangur íslensks bréfskák- manns og jafnframt einn besti ár- angur sem íslenskur skákmaður hef- ur náð. Mótið hefur staðið yfir í tæp tvö ár og því er ekki lokið en titillinn veitir Daða þátttökurétt í svokölluðu kandídatamóti heimsmeistara- keppninnar, sem er þegar hafið, og tveir efstu í því móti fara á sjálft heimsmeistaramótið. „Lengsta skákin hjá mér tók um eitt og hálft ár,“ segir Daði, en menn hafa 50 daga fyrir hverja 10 leiki. „Þetta getur tekið langan tíma,“ segir Daði, sem lauk keppni í byrjun júní og fékk 10,5 vinninga af 16 mögulegum, vann fimm skákir og gerði 11 jafntefli. Tveir skákmenn eru með 9,5 vinninga og hafa þeir einnig lokið keppni. Daði segir að til þess að sigra megi menn helst ekki tapa skák, en þrír efstu á mótinu eru taplausir. Daði var fjórði stigahæsti maður mótsins með 2.519 Eló-stig. Hann segir að út frá því hafi sigurinn kom- ið á óvart. „Það eru þarna mjög öfl- ugir menn og þar á meðal Spánverji, sem varð Evrópumeistari á tveimur undangengnum mótum, en hann og rússneskur skákmaður gerðu jafn- tefli um helgina og þar með geta þeir ekki náð mér.“ Bréfskák hentar vel Bréfskák nýtur töluverðra vin- sælda, en Daði byrjaði ekki að tefla hana fyrr en 2013 eftir að hafa verið skákáhugamaður um árabil. Hann segir að bréfskák hafi hentað sér betur, því auðveldara sé að stunda hana með vinnu. Menn geti tekið sér þann tíma sem best henti, leikið þeg- ar þeir vilja, farið í frí á milli leikja og svo framvegis. Samskiptin séu mjög örugg og öll deilumál í bréf- skák hafi horfið með tölvuvæðing- unni. „Skák er skemmtileg, hvort sem um er að ræða hefðbundna skák eða bréfskák,“ segir Daði. Hann bendir á að þetta séu mjög ólík form og ekki sé víst að góður bréfskákmaður sé góður í hefðbundinni skák og öfugt, þó meiri líkur séu á því að sterkur skákmaður verði góður bréfskák- maður. „Bréfskákin líkist meira skákrannsóknum og menn hafa tíma til þess að liggja yfir hverjum ein- asta leik. Slæmir afleikir eiga því að vera mjög sjaldgæfir, en eitt af því skemmtilega við venjulega skák er að þar getur eiginlega allt gerst. Þar geta mjög sterkir skákmenn leikið af sér og tapað fyrir veikari skák- mönnum.“ Ein skák tók um 18 mánuði  Daði Örn Jóns- son Evrópumeist- ari í bréfskák Morgunblaðið/Styrmir Kári Bréfskák Daði Örn Jónsson notar tæknina, sendir leikina á netinu og er nýr Evrópumeistari í bréfskák. Félag íslenskra bréfskákmanna var stofnað 1991. Á heimsíðu félagsins kemur fram að elstu óstaðfestu heimildir um bréfskák séu frá 9. öld. „Fyrstu staðfestu bréfskákirnar fóru fram árið 1804 þegar Þjóðverjinn Friedrich Wilhelm von Mauvillon atti kappi við ónefndan andstæðing í þremur skákum,“ segir þar og bent á að talið sé að Þorvaldur Jónsson (1837–1916), héraðslæknir á Ísafirði, hafi orðið fyrstur Íslendinga til að tefla bréfskák rétt fyrir aldamótin 1900. Fram á níunda áratug liðinnar aldar voru leikir í bréfskák skrifaðir á póstkort eða sem bréf og sendir með pósti, en nú orðið er teflt í gegnum internetið. Í venjulegu skákmóti er fyrst tefld 1. umferð, síðan 2. umferð og svo framvegis, en í bréfskák fara allar skákir mótsins af stað á sama tíma. Þannig hófst Evrópumótið 15. desember 2013 og því lýkur fljótlega, en nú eru fimm skákir eftir. Allar skákir byrja á sama tíma BRÉFSKÁK VERIÐ TEFLD UM ALDIR „Hann er búinn að vera ofsalega góð- ur í þessum fyrstu þremur leikjum okkar og ég myndi segja að það væri honum að þakka að við erum búnir að vinna þá alla,“ segir Magnús Þór Gunnarsson um Val Orra Vals- son sem er leikmaður 3. umferðar í Dominos- deildinni. »3 Valur Orri búinn að vera ofsalega góður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.