Morgunblaðið - 28.10.2015, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 253. tölublað 103. árgangur
HLÝTUR ALÞJÓÐ-
LEG VERÐLAUN Í
VERKFRÆÐI
HUNDADAGAR EINARS
UPPLESTUR ÚR
DÚKKU OG PARTÍ
Á HREKKJAVÖKU
BÓKADÓMUR 31 GERÐUR KRISTNÝ 10ANNA HULDA DOKTORSNEMI 4
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, seg-
ir undirritun samkomulags á milli
aðila vinnumarkaðarins vera mikil-
vægt skref. Samkomulagið felur í sér
sameiginlega launastefnu til ársloka
2018 og nær það til 70% launafólks í
stéttarfélögum.
Aðilar vinnumarkaðarins kynntu á
sameiginlegum blaðamannafundi í
Iðnó í gær samkomulag sem
SALEK-hópurinn svonefndi hefur
undanfarið unnið hörðum höndum að
með það fyrir augum að skapa sátt á
vinnumarkaði. Hópurinn hefur í þrjú
ár unnið að því að innleiða bætt
vinnubrögð við gerð kjarasamninga.
Samkomulagið kveður m.a. á um
að lífeyrisréttindi á opinberum og al-
mennum markaði verði jöfnuð.
Aukin lífeyrisréttindi verða reiknuð
inn í kostnaðaráhrif kjarasamninga.
Þá verður þróað nýtt samninga-
líkan við gerð kjarasamninga að nor-
rænni fyrirmynd og er reiknað með
að þeirri vinnu ljúki eigi síðar en í
árslok 2017.
Hugmyndir um líkanið gera ráð
fyrir því að opinberum starfsmönn-
um verði tryggð hlutdeild í launa-
skriði á almenna markaðnum en
svigrúm til launabreytinga verði
mótað af fyrirtækjum sem framleiða
vöru og þjónustu til útflutnings eða í
samkeppni við innflutning.
Nær til 70% launþega
Aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu samkomulag í Iðnó í gær Sameiginleg
launastefna út 2018 Vinnu við gerð nýs samningalíkans verði lokið fyrir 2017
MHorft til framtíðar… »6
Heildarsátt
» Lífeyrisréttindi á opinbera
og almenna vinnumarkaðinum
verða jöfnuð.
» Unnið hefur verið að innleið-
ingu bættra vinnubragða við
gerð kjarasamninga undan-
farin þrjú ár.
Seðlabankinn
hefur samkvæmt
heimildum
Morgunblaðsins
fallist á tillögur
slitabúa föllnu
bankanna um
nauðasamninga.
Mat bankans var
kynnt á fundi
ríkisstjórnarinnar í gær. Það verður
rætt á fundi efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis eftir hádegi í dag.
Framkvæmdanefnd um afnám hafta
kynnir síðan þingflokkunum stöðu
mála.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, sagði í gær að
hann hefði rætt þann möguleika við
efnahags- og viðskiptanefnd Alþing-
is að veita slitastjórnum föllnu við-
skiptabankanna lengri frest en til
áramóta, eins og lög kveða á um.
agnes@mbl.is, ses@mbl.is »16
Seðlabank-
inn féllst á
tillögurnar
Slitabúin fá hugs-
anlega lengri frest
Fúsi, kvikmynd Dags Kára Péturssonar, leikstjóra
og handritshöfundar, hreppti Kvikmyndaverðlaun
Norðurlandaráðs þegar fimm verðlaun ráðsins
voru afhent við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal
Hörpu í gærkvöldi. Var þetta annað árið í röð sem
íslensk kvikmynd hlýtur þessa viðurkenningu. Í
ávarpi sínu kvaðst Dagur Kári vera djúpt snortinn
yfir heiðrinum og sagðist hafa skrifað handritið
sérstaklega fyrir leikarann Gunnar Jónsson. »30
Kvikmynd Dags Kára hreppti verðlaunin
Morgunblaðið/Eggert
Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR, sagði í samtali við Morgun-
blaðið á tólfta tímanum í gær-
kvöldi að hann ætti von á því að
skrifað yrði undir nýja kjarasamn-
inga í nótt, þó með þeim fyrirvara
að engin snurða hlypi á þráðinn.
„Hér er unnið hörðum höndum að
því að klára þetta í nótt. Mér finnst
komið nokkuð gott hljóð í menn og
að samningar gætu tekist þó að
alltaf geti strandað á einhverju,“
sagði Árni og bætti við: „Mér sýn-
ist sem svo að búið sé að landa
flestum erfiðustu málunum. Það
eru líklega enn tveir til þrír
klukkutímar eftir en við stefnum
að samningum í nótt.“ Höfðu
samninganefndir SFR, sjúkraliða
og lögreglumanna annars vegar og
ríkisins hins vegar setið að fundi
frá því í gærmorgun.
Stefnt var að
samningum í nótt
Framkvæmdastjóri Bænda-
samtaka Íslands telur að það komi
til álita að breyta reglum og heim-
ila bændum að verja akra sína með
veiðum á álft. Segir Sigurður Ey-
þórsson að það komi einkum til
álita að heimila takmarkaðar veið-
ar á geldfugli á sumrin, eftir að
pörin eru farin á óðul sín til að
verpa og koma upp ungum.
Álftin hefur verið alfriðuð í rúma
öld og gerir Sigurður sér grein fyr-
ir því að það geti verið viðkvæmt
mál að aflétta þeirri friðun. „Þetta
er mikið tjón. Menn verða að spyrja
sig: Er sanngjarnt að bændur beri
það einir, án þess að geta varið
sig?“ segir Sigurður.
Unnið er að aðgerðaáætlun um
varnir gegn fugli sem sækir í rækt-
un. Þar verður meðal annars rætt
hvort rétt sé að leyfa takmarkaðar
veiðar á friðuðum fuglum eða utan
hefðbundins veiðitíma. »14
Telur koma til greina að bændur fái heim-
ild til að verja akra sína með veiðum á álft
Morgunblaðið/Ómar
Aðgangsharka Bændur vilja geta
varið kornakra sína og tún.
Eignir peningamarkaðssjóða
nema nú tæpum 80 milljörðum
króna og hafa því næstum þrefald-
ast frá janúar 2014, þegar eignir
sjóðanna voru 28,4 milljarðar.
Þessi þróun kemur fram í því að
eign heimila í sjóðunum hefur auk-
ist úr 6.442 milljónum í janúar 2014
í 18.114 milljónir í september sl.
Ásgeir Jónsson, dósent í hag-
fræði við Háskóla Íslands, tengir
þessa þróun m.a. við fyrirhugað af-
nám hafta. Þannig þurfi kröfuhafar
sem eigi Arion banka og Íslands-
banka að greiða ríkissjóði mikið af
krónum við uppgjör slitabúa með
svonefndu stöðugleikaframlagi.
Aðgerðin skapi lausafjárþörf hjá
bönkunum, sem bregðist við henni
með sölu innlána til skamms tíma til
peningamarkaðssjóða. Þá hafi
gjaldeyrisinngrip Seðlabankans
aukið peningamagn í umferð. »12
Eign heimila í peningamarkaðssjóðum
hefur þrefaldast frá ársbyrjun 2014
Morgunblaðið/Golli
Samtals hefur
ellefu ákæru-
málum vegna
skattsvika verið
frestað fyrir
héraðsdómi á
undanförnum
mánuðum meðan
beðið er niður-
stöðu Mannrétt-
indadómsstóls
Evrópu í máli
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
fleiri gegn íslenskra ríkinu. Kæran
lýtur að því að brotið sé á mannrétt-
indum með því að refsa tvisvar fyrir
sama brot. Niðurstaða Mannrétt-
indadómstólsins hefur dregist og er
ekki vitað hvenær hún kemur. »2
Ellefu skattsvika-
mál eru í biðstöðu
Ólafur Þór
Hauksson