Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sinfóníuhljómsveit Íslands er á ferð og flugi um landið. Hélt hún fjölmenna tónleika á Ísafirði í fyrrakvöld, lék fyrir fullu húsi í Hofi á Akureyri í gærkvöldi og treður upp á Egilsstöðum í kvöld. Arngunnur Árnadóttir er einleikari á klarínett í konsert Mozarts, einnig er flutt þekkt sinfónía Tsjajkovskís og verk eftir stjórnandann, Daníel Bjarnason, sem Fílharmóníusveitin í Los Angel- es frumflutti 2013. Myndin er frá æfingu í gær. Sinfóníunni tekið fagnandi á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sinfóníuhljómsveit Íslands landshorna á milli Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ákæru sérstaks saksóknara á hendur manni fyrir eins milljarðs króna skattsvik var frestað í vor í héraðs- dómi, vegna þess að bíða ætti niður- stöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fleiri gegn íslenska ríkinu. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þó nokkrum ákærumálum vegna skattsvika hefði af sömu sökum verið frestað fyrir héraðsdómi, þar sem beðið væri niðurstöðu Mannréttindadómstóls- ins. „Mér telst til að þetta séu ellefu mál sem eru í fresti hjá dómstólum vegna þess að verið er að bíða eftir og horfa til þess hver niðurstaða Mann- réttindadómstóls Evrópu verður,“ sagði Ólafur Þór. Auk Jón Ás- geirs stóðu Tryggvi Jónsson og Fjárfestingar- félagið Gaumur að kærunni gegn ís- lenska ríkinu, en þeir töldu að brotið hefði verið á mannréttindum sínum með þeim hætti að þeim hefði verið refsað tvisv- ar sinnum fyrir sama brotið. Þannig hefðu ríkisskattstjóri og yfirskatta- nefnd, eftir rannsókn skattayfirvalda, lagt 25% álag á skatta þeirra fyrir ár- in 1998 til 2002 en síðar hefði Hæsti- réttur dæmt þá í skilorðsbundið fang- elsi og gert þeim að greiða sektir fyrir brotin. Frestur á frest ofan Mannréttindadómstóllinn leitaði sumarið 2013 eftir afstöðu ríkisins til þess hvort málsmeðferðin hefði sam- rýmst banni við því að sami aðili sætti tvöfaldri refsimeðferð fyrir sama brot, samanber 1. málsgrein 4. grein- ar 5. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Dregist hefur úr hömlu að Mann- réttindadómstóll Evrópu dæmdi í máli Jóns Ásgeirs, en dómstóllinn ákvað 2013 að taka kæru hans til efn- islegrar meðferðar. Yfirlýsingar Mannréttindadómstólsins um það hvenær dómur í máli Jóns Ásgeirs Jónssonar ætti að koma hafa ekki gengið eftir. Fyrst lýsti dómstóllinn því yfir að hann myndi dæma í málinu um síðustu áramót, sem ekki gerðist. Síðan var það gefið út að dómur yrði kveðinn upp í mars eða apríl á þessu ári. Nú er kominn 28. október og enn bólar ekkert á dómnum. Lítil ánægja með frestun Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins ríkir lítil ánægja með það hjá embætti sérstaks saksóknara að þessum málafjölda í kærðum skatt- svikamálum hafi verið frestað. Dómur féll í Hæstarétti í sumar þar sem dæmt var eftir sömu línum og áður. Eftir að sá dómur féll munu starfsmenn embættisins hafa verið að ganga eftir því að málin væru tekin fyrir hjá dómstólum og einhver hreyf- ing mun vera komin á það, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ellefu málum verið frestað  Beðið eftir dómi Mannréttindadómstólsins í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fleiri gegn íslenska ríkinu  Allt skattsvikamál frá sérstökum saksóknara Ólafur Þór Hauksson Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) bárust þrír spánarsniglar 22. októ- ber sl. Þeir höfðu fundist daginn áður á óræktarbletti á mótum Sæ- brautar og Héðinsgötu í Reykjavík. Þetta voru fyrstu spánarsniglarnir sem stofnuninni bárust á þessu ári. Það að þrír sniglar hafi fundist samtímis bendir til þess að þeir séu ekki einir á ferð, að mati Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá NÍ. Hann vill engu spá um gengi spánarsnigilsins hér næsta sumar. Í frétt stofnunarinnar segir að spánarsniglarnir hafi ekkert látið á sér kræla í sumar, ólíkt því sem bú- ist hafði verið við. „Gengi þeirra hefur heldur þokast upp á við undanfarin sumur en í ár var ör- vænting farin að hreiðra um sig, því ekkert bólaði á sniglunum. En loksins er það komið í ljós, þeir höfðu það af!“ Oftast hefur spánarsnigla orðið vart síðsumars. Nú brá svo við að engir spánarsniglar sýndu sig með vissu í ágúst eða september. „Lang- dregnum kuldum þetta vorið var um kennt, eða þakkað, því ekkert er svo slæmt að ekki fylgi því eitt- hvað gott. Gælt var við þá hugmynd að óhagstætt árferðið framan af sumri hefði riðið sniglunum að fullu,“ segir í frétt á vef NÍ. Þar segir enn fremur: „Kalda vorið hafði vissulega áhrif á margt í líf- ríkinu þetta sumarið og urðu um- talsverðar tafir á margri framvind- unni. Allt hefur samt skilað sér seint um síðir. Sem sagt, köld veðr- áttan síðastliðið vor dugði ekki til að koma spánarsniglunum út af kortinu en varð þeim augljóslega ekki til framdráttar. Verra þarf til ef duga skal.“ Spánarsniglar hafa fundist á nokkrum stöðum hér á landi, það er í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Akranesi, Hnífsdal, Hofsósi, Ólafsfirði, Hveragerði, Heimaey og Höfn í Hornafirði. gudni@mbl.is Spánarsnigill ekki horfinn Ljósmynd/Erling Ólafsson Spánarsnigill Þeir fyrstu fundust í Reykjavík og Kópavogi 2003.  Þrír Spánar- sniglar fundust þann 21. október „Forsætisráðuneytið lagði fram hugmyndir að lausnum. Viðræð- urnar eru jákvæðar en á viðkvæmu stigi,“ sagði Sigurður Örn Guð- leifsson, settur skrifstofustjóri yfir skrifstofu menningararfs í forsætis- ráðuneytinu. Hann átti í gær fund með Gísla Steinari Gíslasyni, for- manni stjórnar Landsteina þróunar- félags, um gamla hafnargarðinn sem kom í ljós á lóðinni að Austurbakka 2. Sigurður sagði að reynt yrði að komast að niðurstöðu í málinu sem allra fyrst. Aðspurður kvaðst hann vera bjartsýnn á að lausn fyndist. „Þeir lögðu upp tillögu að því hvernig þeir sæju fyrir sér að vernda vegginn. Nú tökum við ein- hverja daga í að meta hver áhrif sú tillaga hefur og hvort hún sé að- gengileg eða ekki. Þar af leiðandi er- um við allavega ekki að fara að taka niður vegginn á næstunni, við mun- um setja þetta á smá bið núna,“ sagði Gísli Steinar að loknum fund- inum í gær. gudni@mbl.is, audura@mbl.is Veggur- inn stend- ur um sinn  Viðræður sagðar á viðkvæmu stigi Norðurlandaráðsþing var sett í Hörpu í gær. Á fyrsta degi þingsins var farið yfir þingsköp áður en þemaumræður með norrænu for- sætisráðherrunum um möguleikann á auknu og nánara Norðurlanda- samstarfi hófust. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mun taka þátt í störfum þingsins og ráðherra- fundum því tengdum meðan á því stendur. Forsætisráðherrar Norðurlanda- ríkjanna munu funda í eigin ranni á morgun og í framhaldi með leiðtog- um Grænlands, Færeyja og Álands- eyja. Einnig munu forsætisráðherr- arnir funda með forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Þá er hefð fyrir því að forsætisráðherrar Norður- landa- og Eystrasaltsríkja fundi í tengslum við fund Norðurlandaráðs. Norðurlandaráð var stofnað 1952. Í ráðinu sitja 87 fulltrúar frá Dan- mörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð ásamt fulltrúum Fær- eyja, Grænlands og Álandseyja. Þemaum- ræður hófust Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í fyrradag tilkynning um inn- brot. Málsatvik væru með þeim hætti að drengur búsettur á Álftanesi hefði verið einn heima fyrir og að honum hefði verið ógnað þegar innbrotið átti sér stað en þá hefði hann flúið af heimilinu og hringt í foreldra sína. Samkvæmt upplýsingum frá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu er málið skoðað með þeim hætti að efast er um sannleiksgildi frásagnarinnar og verður það unnið með foreldrum barnsins og barnaverndaryfirvöldum. Skólastjórnendur í Álftanesskóla, sem drengurinn sækir, sendu foreldr- um barna í 5. bekk í skólanum bréf eftir að skólinn fékk tilkynningu um málið frá foreldrum drengsins í gær- morgun. Á þeim tímapunkti höfðu skólastjórnendur enga ástæðu til að efast um frásögnina og upplýstu for- eldra um málið. Ræddu um áföll Sveinbjörn Markús Njálsson, skólastjóri í Álftanesskóla, sagði í samtali við Morgunblaðið að rætt hefði verið við nemendur í gær, m.a. um hvernig styrkja mætti hvert ann- að þegar slík áföll ættu sér stað. Efast um sannleiks- gildi frásagnar  Foreldrum barna í 5. bekk sent bréf vegna meints innbrots á Álftanesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.