Morgunblaðið - 28.10.2015, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
KYNNINGARFUNDUR - MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM
Nauthóll við Nauthólsveg
Föstudagur 30. október kl.8:30-10:00
Morgunkaffi frá kl.8:00
Fundarstjóri: Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Rafrænt umhverfismat: Ný leið til samskipta við hagsmunaaðila
Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorku hjá Landsvirkjun
Hvaða áhrif hafa vindmyllurnar á umhverfið?
Rúnar Dýrmundur Bjarnason, verkefnastjóri hjá Mannviti
Hvernig getur þú komið að málum?
Jóna Bjarnadóttir, verkefnastjóri umhverfismála hjá Landsvirkjun
Búrfellslundur
Frummatsskýrsla Búrfellslundar, vindmyllusvæðis ofan við Búrfell,
liggur nú fyrir. Á fundinum verða helstu niðurstöður kynntar og
rætt um möguleg áhrif á umhverfi lundarins.
Skráning á landsvirkjun.is.
Rafræn frummatsskýrsla sýnir framkvæmdina og áhrif hennar
á myndrænan hátt. Hægt er að skila inn athugasemdum til
Skipulagsstofnunar til 26. nóvember nk.
Skýrsluna má nálgast á
burfellslundur.landsvirkjun.is
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það væri til bóta að breyta vinnu-
löggjöfinni þannig hjá opinberum
starfsmönnum að frestunarheim-
ildin sé til staðar,“ segir Gylfi Dal-
mann Aðalsteinsson, dósent á Fé-
lagsvísindasviði Háskóla Íslands, en
þegar verkfall er hafið hjá opinber-
um starfsmönnum er ekki hægt að
fresta því. En slíka heimild er ekki
að finna í lögum um kjarasamninga
opinberra starfsmanna. „Því er
bara undirritaður samningur af öll-
um aðilum sem stoppar verkfall eða
ef stjórnvöld setja lög á verkfallið,“
segir Gylfi.
Slíka frestunarheimild er þó að
finna í lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur sem taka til starfs-
manna á almennum markaði og var
lögfest árið 1996. Þar er samn-
inganefnd veitt heimild til að fresta
boðaðri vinnustöðvun einu sinni eða
oftar um allt að 28 sólarhringa án
samþykkis gagnaðila.
Liðkar fyrir samningum
„Í aðdraganda síðustu kjara-
samninga á almenna vinnumark-
aðnum var heimildin notuð oft af til
dæmis Eflingu og VR,“ segir Gylfi
sem telur jafnframt að frest-
unarheimild til handa starfs-
mönnum sem stefna í verkfall sé til
þess fallin að liðka jafnvel fyrir
samningaviðræðunum, sérstaklega
ef samkomulag er innan seilingar.
„Það er svo mikið mál að læsast inni
í verkfalli og meiriháttar mál að
fara í verkfall með stóra hópa. Í síð-
asta verkfalli grunnskólakennara
var til að mynda farið að sjást til
lands í samningaviðræðum en ekki
lagalega mögulegt að fresta verk-
fallinu,“ segir Gylfi en því þurfi að
breyta regluverkinu fyrir opinbera
starfsmenn til jafns við starfsmenn
á almennum markaði.
Meðferð og beiting verkfallsrétt-
arins sé viðkvæmt mál, enda geti
vinnustöðvanir falið í sér lömun
heillar starfsgreinar eða samfélags,
en á síðustu árum hefur löggjafinn í
fjölmörg skipti samþykkt lög sem
banna vinnustöðvanir. Frá árinu
1985 hefur löggjafinn stöðvað 14
vinnudeilur með lagasetningu.
Áhrif verkfalla
Verkföll á almennum markaði
bitna á eigendum atvinnutækjanna.
Þeir hafa að sama skapi heimild til
verkbanns til að lágmarka tjón sitt
af vinnustöðvun ákveðinna hópa
starfsmanna. Hins vegar bitnar
verkfallsvopn opinberra starfs-
manna oftast á þriðja aðila sem nýt-
ur þjónustu hins opinbera. Stjórn-
völd hafa engan verkbannsrétt.
Mega ekki fresta
verkfallsaðgerðum
Ólíkar heimildir fyrir opinbera og almenna starfsmenn
Morgunblaðið/Golli
Frestun Veita þyrfti opinberum
starfsmönnum frestunarheimild
» Opinberir starfsmenn hafa
ekki heimild til frestunar verk-
fallsaðgerða undir neinum
kringumstæðum.
» Slíka heimild hafa starfs-
menn almenna vinnumark-
aðarins og hefur hún oft verið
notuð þegar samkomulag er
innan seilingar.
» Ástæða er því til að sam-
ræma regluverk um vinnu-
stöðvanir opinberra og al-
mennra starfsmanna að mati
Gylfa Dalmanns Aðalsteins-
sonar.
» Heimildin er líkleg til að
liðka fyrir samningaviðræðum.
Verkfall sjúkraliða hefur haft mikil
áhrif á starfsemi Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands og þá sérstaklega
á heimahjúkrun í umdæmi stofn-
unarinnar. „Þetta er vissulega að
bitna á þjónustu við skjólstæðinga
og aðstandendur þeirra,“ sagði Emil
Sigurjónsson, mannauðsstjóri HSA,
í samtali við mbl.is í gær.
„Við erum að vinna eftir undan-
þágulistum og það er ákveðin
öryggismönnun sem sinnir brýnustu
þörfum. Þar sem við höfum óskað
eftir undanþágu hefur SLFÍ veitt
hana í öllum tilvikum nema einu,“
segir Emil.
Verkfallið hefur einnig haft mikil
áhrif á stærsta hjúkrunarheimili
HSA, sem er á Egilsstöðum. Þar eru
tæplega 30 rúm á hverri deild „Það
setur smá kvíða að fólki þegar svona
gerist og auðvitað gerir það starf-
semina þyngri og eykur mikið álag á
aðra starfsmenn á deildum og deild-
arstjóra þeirra,“ segir hann.
Verkfallið hafi einnig áhrif á aðrar
hjúkrunardeildir stofnunarinnar í
Neskaupstað og á Seyðisfirði, en
einu sinni hefur þurft að kalla til að-
standendur að kvöldlagi til að vera
hjá fólki vegna skorts á sjúkraliðum.
60 aðgerðum þegar frestað
Aðeins bráðum og brýnum skurð-
aðgerðum var sinnt á Landspítal-
anum í gær vegna verkfallsins.
Öðrum aðgerðum, sem geta beðið,
er frestað.
Um 60 aðgerðum var frestað í síð-
ustu viku vegna verkfallanna. Gerir
spítalinn ráð fyrir svipaðri tölu í
þessari viku. laufey@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Verkfall Aðeins brýnum skurðaðgerðum er nú sinnt á Landspítalanum.
Hafa þurft að kalla
út aðstandendur
Verkfall SLFÍ hefur víðtæk áhrif