Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 NÝTTMERKI! Skoðið laxdal.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 Peysuúrval Buxnaúrval Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 44 ára gamla konu í tveggja ára fangelsi, þar af 22 mánuði skil- orðsbundið, fyrir að draga sér rúm- lega 60 milljónir króna þegar hún starfaði við bakvinnslu hjá MP banka. Fram kemur í dómnum, að kon- an, Guðlaug Sigríður Arnórsdóttir, framdi brotin á tímabilinu frá des- ember 2012 til febrúar á þessu ári. Alls millifærði hún nærri 60,7 millj- ónir króna af fé bankans inn á bankareikninga, sem hún hafði að- gang að, og til að greiða upp skuldabréf í öðrum fjármálastofn- unum. Stórfellt brot í langan tíma Konan hefur ekki brotið af sér áður og tók dómurinn tillit til þess og einnig þess að hún játaði brot sín og hefur greitt til baka 545 þús- und krónur. Einnig kom fram að konan hafði átt við veikindi að stríða. Á móti kom, að mati dóms- ins, að um var að ræða stórfellt brot sem stóð yfir í langan tíma. Því þótti ekki fært að skilorðsbinda refsidóminn allan. Konan var einnig dæmd til að greiða MP banka það fé sem hún dró sér og 1,8 milljónir að auki í málskostnað. Þá var hún dæmd til að greiða annan sakarkostnað. Dró sér rúm- lega 60 milljón- ir frá MP banka  Tveggja ára fang- elsisdómur að mestu skilorðsbundinn Morgunblaðið/Ómar Dómstóll Hús Héraðsdóms Reykja- ness í Hafnarfirði. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Búast má við hlýrra veðri á Íslandi næstu daga en verið hefur síðustu daga. Mjög kalt var í veðri í gær- morgun en upp úr hádegi hlýnaði um allt land og fór hitinn upp fyrir frost- mark víðast hvar um landið. Búast má við því að hlýindin haldi áfram allt fram í næstu viku ef marka má langtímaspá veðurstofu Íslands. Í Reykjavík má t.a.m. búast við því að hitastig verði 4-10 gráður fram á sunnudag þó að því muni fylgja væta og nokkur vindur. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að vet- urinn hafi verið með mildasta móti það sem af er. „Eins og spárnar draga má segja að það sé varla að maður sjái frost í spám, þó að ein- hvers staðar gæti gert næturfrost. En yfir daginn verður meira og minna frostlaust næstu tíu daga sam- kvæmt spálíkönunum,“ segir Óli Þór. Nákvæmari en norskir Hann gerir þó þann fyrirvara að á þessum árstíma séu spár alla jafna óstöðugar umfram 4-7 daga. „Ég vil meina að það sé vegna fellibylja. Þegar þeir koma inn í veðrakerfin fara líkönin svolítið á hliðina og ráða illa við að fá svona orkumikil kerfi inn í líkanakerfið. Þau verða því óstöðug eftir nokkra daga,“ segir Óli Þór. Hann segir að spákerfi fari þó batn- andi með auknum reiknikrafti ofur- tölva. „Fyrir 20 árum reiknuðu menn ekki allar breytur sem hægt væri að reikna því menn töldu sumar hafa það lítil áhrif að þeir eyddu ekki reiknikrafti í þær,“ segir Óli Þór. Á stundum eru ólíkar spár sem koma frá norsku veðurstofunni, sem hægt er að nálgast á vefnum yr.no, og Veðurstofu Íslands. Óli Þór segir það helgast af því að spár Veðurstofu Íslands séu nákvæmari og taki fleiri þætti inn í reikninginn. „Í grunninn er þetta nákvæmlega sama líkanið en fyrstu tvo til þrjá dagana erum við að keyra háupplausnarlíkön. Þar erum við að reikna staðalfrávik í kringum fjöll og annað slíkt sem móðurlíkanið, sem kemur fram frá Samevrópsku reiknistofunni í veðurfræði, gerir ekki. Það reiknar allan hnöttinn og er tiltölulega gróft líkan en svo erum við að keyra fíngerðara líkan ofan í það. Þar liggur stóri munurinn og við fáum meira af smáatriðum sem týn- ast í stóra líkaninu,“ segir Óli Þór. Hann segist hafa lesið það í norskum miðlum að samkvæmt Samevrópsku reiknistofunni hafi verið búist við kaldara vetri en á meðalári fyrir mánuði. Nú hefur það hins vegar breyst og búist er við hlýrra veðri á norðlægari slóðum en á meðalári. „Nýjustu spárnar benda til þess að veturinn verði í mildari kantinum. Svo verður bara að bíða og sjá en hann byrjar á mildu veðri,“ segir Óli Þór. Búist við mildum vetri á norðlægum slóðum  Tíu daga spá gerir ráð fyrir hlýindum um allt land Morgunblaðið/Birkir Fanndal Fraus saman Mývatn fraus saman á mánudag í froststillu og bjartviðri. Frostið losaði 10°C í fyrradag og í gær, sem nægði til að loka vatninu. - með morgunkaffinu Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.