Morgunblaðið - 28.10.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eignir peningamarkaðssjóða hafa
nærri þrefaldast frá ársbyrjun 2014.
Þær voru þannig 28.367 milljónir í
janúar 2014 en voru til samanburðar
77.076 milljónir í september í ár.
Þar af hefur eign heimila í sjóð-
unum aukist úr 6.442 milljónum í
18.114 milljónir á þessu ári. Hún var
10 milljarðar í september 2014.
Á sama tímabili hefur eign fjár-
málafyrirtækja í peningamarkaðs-
sjóðum aukist úr 7.107 milljónum í
17.126 milljónir og eign annarra
fyrirtækja aukist úr 6.325 milljónum
í 27.940 milljónir. Samanlagt eiga
heimili og fyrirtæki í þessum tveim-
ur flokkum nú 63.180 milljónir í pen-
ingamarkaðssjóðum.
Þessa þróun má lesa úr uppfærð-
um og nýbirtum hagtölum Seðla-
banka Íslands um verðbréfa- og fjár-
festingasjóði og lánafyrirtæki. Eign
sjóðanna er ekki sundurgreind eftir
fjármálafyrirtækjum.
Peningamarkaðssjóðir lúta sér-
stökum skilyrðum sem eru útskýrð í
hnotskurninni hér til hliðar.
Peningamagnið að aukast
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, tengir vöxt sjóð-
anna við „mjög umfangsmikil gjald-
eyrisinngrip Seðlabankans síðustu
misseri“. Þau hafi aukið peninga-
magn í umferð og komi m.a. fram
sem stækkun peningamarkaðssjóða
sem séu stórir innlánahafar.
Á hinn bóginn sé fyrirséð að bank-
arnir muni missa töluvert af lausafé
til Seðlabankans vegna stöðugleika-
framlags slitabúana. Þannig þurfi
kröfuhafarnir sem eigi Arion banka
og Íslandsbanka að greiða ríkissjóði
mikið af krónum við uppgjör slitabúa
með svonefndu stöðugleikaframlagi.
Þessi aðgerð skapi lausafjárþörf hjá
bönkunum, sem bregðist við henni
með sölu innlána til skamms tíma til
peningamarkaðssjóða.
„Stærstu fjármögnunaraðilar nýju
bankanna eru í raun gömlu bankarn-
ir. Bankarnir eru þegar farnir að
undirbúa sig [fyrir greiðslu stöðug-
leikaframlagsins] með sölu bæði
víxla og bundinna innlána sem hafa
aukið ávöxtunarmöguleika skamm-
tímasjóða. Þá eru einnig stýrivaxta-
hækkanir í farvatninu en á sama
tíma hafa erlendir fjárfestar leitað út
á svonefndan langa enda skulda-
bréfamarkaðarins. Allt hefur þetta
skapað óvissu
meðal fjárfesta
sem hefur aukið
ásókn í skamm-
tímasjóði,“ segir
Ásgeir um stöð-
una.
Stefán Broddi
Guðjónsson, for-
stöðumaður
greiningardeildar
Arion banka,
segir að þegar skammtímavextir fari
hækkandi með stýrivaxtahækkunum
Seðlabankans kjósi margir að fjár-
festa í innlánum og skammtímaeign-
um fremur en að fjárfesta til lengri
tíma. „Vextir á innlánum taka t.d.
mið af vöxtum Seðlabankans. Þegar
frekari hækkun á vöxtum er í spil-
unum er eðlilegt að ýmsir kjósi pen-
ingamarkaðssjóði fremur en ýmsa
langtímafjárfestingu, ekki síst þegar
langtímavextir hafa lækkað jafn
mikið og raun ber vitni.“
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, segir að við fyrstu sýn
vitni þessar tölur um efnahagsbata.
Þær rími við þá niðurstöðu í nýjasta
Fjármálastöðugleika, riti Seðlabank-
ans, að svigrúm heimila og fyrir-
tækja til fjárfestinga sé að aukast.
Spurður um þátttöku heimila í
hlutabréfamarkaðnum um þessar
mundir segir Páll að ekki séu til
nýrri gögn en frá árslokum 2014 um
beint eignarhald heimila í hlutabréf-
um. Þá hafi það numið um 40 millj-
örðum króna en verið um 14 millj-
arðar króna þegar það var sem lægst
2010. Hann telur ekki óvarlegt að
ætla að það sé nú 55-60 milljarðar
króna.
Langstærsti hlutinn innlán
Samkvæmt tölum Seðlabankans
er langstærstur hluti eigna peninga-
markaðssjóða nú bundinn í innlán-
um; tæpir 69 milljarðar af samtals
um 77 milljarða króna eignum.
Peningamarkaðssjóðirnir nú
verða því ekki bornir saman við pen-
ingamarkaðssjóðina fyrir hrun,
þegar hluti eigna var víxlar gefnir út
af félögum sem tengdust bönkunum í
gegnum eignarhald.
Réttarstaða lífeyrissjóða og fag-
fjárfesta er sú sama hvort heldur
þeir festa fé í svona lausafjársjóðum
eða milliliðalaust í gegnum innlán.
Jón Finnbogason er forstöðu-
maður skuldabréfa hjá Stefni.
Hann bendir aðspurður á að eignir
Stefnis lausafjársjóðs skiptist þann-
ig að 80-85% séu bundin við peninga-
markaðsinnlán bankanna þriggja og
10-15% í Kviku banka.
Morgunblaðið/Golli
Seðlabúnt Eignir peningamarkaðssjóðanna samsvara nú um 4% af landsframleiðslu, sem er um 2.000 milljarðar.
Peningasjóðir gildna
Eign heimila í peningamarkaðssjóðum er nú yfir 18 milljörðum Hefur tvöfaldast á tólf mánuðum
Dósent í hagfræði tengir aukna eign sjóðanna við lausafjárþörf banka vegna uppgjörs slitabúanna
Efnahagsyfirlit peningamarkaðssjóða
Frá febrúar 2011 til september 2015
● Eignir
● Sala hlutdeildarskírteina
● Innlausn hlutdeildarskírteina
2012 2013 2014 2015
80.000
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Einingar: Milljónir króna. Heimild: Seðlabanki Íslands
Eignir peninga-
markaðssjóða í
september
Fjárfestingar í innlánum
Skuldabréf
innlánsstofnana
Óverð-
tryggð
ríkisbréf
Ríkisvíxlar
Aðrar eignir
Alls í milljónum: 77.076
68.850
3.980
2.277
1.420
549
Skilgreiningin
» Samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabanka Íslands er pen-
ingamarkaðssjóður sjóður sem
samkvæmt fjárfestingarstefnu
sinni fjárfestir í peningamark-
aðsgerningum.
» Peningamarkaðsgerningar
eru þeir flokkar auðseljanlegra
gerninga sem viðskipti fara
venjulega fram með á skamm-
tímamarkaði (peningamark-
aði), svo sem víxlar ríkis- og
sveitarfélaga, innlánsskírteini
og viðskiptabréf að undan-
skildum greiðsluskjölum.
» Með greiðsluskjölum er m.a.
átt við ávísanir, víxla og önnur
sambærileg greiðsluskjöl.
» Hámarkslíftími einstakra
verðbréfa má ekki vera lengri
en 397 dagar.
Ásgeir
Jónsson
Páll
Harðarson
Stefán Broddi
Guðjónsson
Illugi Gunn-
arsson, mennta-
og menningar-
málaráðherra,
hefur ráðið Jó-
hannes Stef-
ánsson sem að-
stoðarmann sinn.
Jóhannes er hér-
aðsdóms-
lögmaður og er
með meistara-
gráðu í lögfræði frá Háskólanum í
Reykjavík, en hann stundaði einnig
skiptinám við Kaupmannahafnarhá-
skóla.
Jóhannes hefur starfað sem blaða-
maður á Viðskiptablaðinu og Frétta-
blaðinu en einnig sem fréttamaður á
fréttastofu Stöðvar 2. Hann hefur að
auki starfað fyrir sendiráð Banda-
ríkjanna í Reykjavík, Arion banka
og LEX lögmannsstofu.
Sigríður Hallgrímsdóttir starfar
einnig sem aðstoðarmaður mennta-
og menningarmálaráðherra.
Ráðinn aðstoðar-
maður mennta-
málaráðherra
Jóhannes
Stefánsson