Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 21

Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is FALLEGT LEIRTAU FULLKOMNAR BORÐHALDIÐ Mikið úrval af fallegu leirtaui fyrir fyrirtæki og einstaklinga BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Félag eldri borgara í Reykjavík Fimmtudaginn 22. október var spilað á 12 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S. Jón Þór Karlss. – Björgvin Kjartanss. 249 Sigurður Tómass. – Guðjón Eyjólfsson 244 Helgi Hallgrss. – Ægir Ferdinandss. 238 Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 234 A/V Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 264 Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 263 Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 243 Sturla Snæbjss. – Ormarr Snæbjörnss. 234 Mánudaginn 26. okt. var spilað á 14 borðum. Efstu pör í N/S Jón Þór Karlsson – Björgvin Kjartanss. 386 Auðunn R. Guðmss. – Guðm. Pétursson 376 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 359 Sigurður Láruss. – Logi Þormóðss. 334 A/V Guðm. Sigursteinss. – Jón H. Jónsson 400 Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 371 Margrét Gunnarsd. – Ólöf Hansen 355 Valgerður Eiríksd. – Ásta Sigurðard. 347 Leiðtogar frá Norður-Evrópu munu hittast seinna í dag í Reykjavík, höfuðborg Íslands. Það verður ekki aðeins fjallað um nýsköpun og samvinnu í viðskiptum á North- ern Future Forum, heldur almennt um samvinnu á þessu heimssvæði á vettvangi Norðurlandaráðs. Því miður mun nyrsti nágranni norrænu þjóðanna ekki eiga þar fulltrúa á eigin for- sendum. Ákvörðun bresku ríkis- stjórnarinnar um að senda ekki ráð- herra skosku ríkisstjórnarinnar til Íslands dregur ekki einungis úr vægi þess sem breska ríkisstjórnin færir á borð á ráðstefnunni heldur einnig þess sem aðrir geta fengið út úr þátt- töku hennar. Það er að sjálfsögðu ánægjuefni að forsætisráðherra Stóra-Bretlands, David Cameron, skuli koma til Ís- lands. Ef tilgangur hans er að bæta nágrannasambandið og taka sam- vinnu í þessum heimshluta alvarlega er koma hans af hinu góða. Án efa ætti hann að byrja á því að biðja ís- lensku þjóðina afsökunar á því að for- veri hans í embætti, Gordon Brown, skyldi beita hryðjuverkalöggjöf gegn staðföstu bandalagsríki í banka- kreppunni. Einnig gæti hann dregið til baka hina sérkennilegu ákvörðun bresku ríkisstjórnarinnar um að neita að taka þátt í loftferðaeftirliti NATO á norðurslóðum og að senda ekki eitt einasta skip flota hennar hátignar til að taka þátt í eftirlitsferðum þar á undanförnum árum. Skotar eru Norður-Evrópuþjóð, með Atlantshafið í vestri, Norðursjó til austurs og Íslandshaf til norðurs. Við erum það land sem teygir sig nyrst af þeim sem ekki hafa neitt yfir- ráðasvæði norðan heimskautsbaugs. Sundurlaus nálgun Lundúna- stjórnarinnar kemur í veg fyrir eðli- legt samband við nágranna okkar. Sambandið við Bretland útilokar Skotland frá þátttöku í alþjóðastjórn- málum. Þetta er mjög ólíkt því sem myndi tíðkast í bandalagi norrænna þjóða, en Skotland yrði í stærra meðallagi þjóða í slíku bandalagi. Því voru það mistök að norræna víddin skyldi ekki einu sinni nefnd í nýjustu skýrslu um endurskoðun varnar- og öryggismála (SDSR). Við sem búum í Skotlandi skiljum hernaðarlegt mikil- vægi okkar heimshluta, þótt stjórn- völd í London virðist hafa gleymt því. Íbúar í þessum heimshluta deila margvíslegum tækifærum og áskor- unum sem varða breytingar á um- hverfinu, hagvöxt og nýsköpun, sam- göngubætur og málefni jaðarsvæða. Ef David Cameron er alvara með að vilja leggja þessum málefnum lið er það vel þegið. Ég sótti á dög- unum þing um málefni norðurslóða í Reykjavík þar sem Hollande Frakklandsforseti flutti ræðu. Það var augljóst að hægt er að draga margvíslegan lærdóm af sameiginlegri reynslu okkar af dreif- býli og jaðarbyggðum í okkar heimshluta. Ef við leggjum saman þá sem búa í vestanverðum Noregi, Skotlandi, Íslandi, Færeyjum, Græn- landi, Nýfundnalandi og Maine í Bandaríkjunum fáum við út nokkurn veginn saman fjölda og í London. Þess vegna getur raunveruleg áhersla á samvinnu til norðurs skap- að meiri félagslegan, menningarlegan og efnahagslegan auð, byggðan á sameiginlegri reynslu okkar. En ef tilgangur hans með því að láta sjá sig með fulltrúum norrænu nágranna okkar er einvörðungu sá að draga athyglina að þjóðaratkvæða- greiðslunni um ESB sem í vændum er í Bretlandi mun það vekja nei- kvæða athygli. Fréttamenn í London hafa verið uppfræddir um að til- gangur heimsóknar Cameron verði að undirstrika „takmarkanir“ Íslands og Noregs, sem ekki eiga aðild að Evrópusambandinu. Sjálfur er ég Evrópusinni en mér þykir það móðg- andi við nágranna okkar að blanda okkur í innri málefni þeirra. Íslendingar og íslenskir stjórn- málamenn eru vanir þess konar fram- komu hjá stjórnmálamönnum í West- minster. Ég man vel eftir heim- sóknum ráðherra úr ríkisstjórn Verkamannaflokksins til Íslands þar sem þeir töluðu vinsamlega. Þegar þeir komu aftur til Lundúna var kom- ið annað hljóð í strokkinn, því þá hreyktu þeir sér af því í fjölmiðlum að þeir hefðu krafist þess að Íslendingar endurgreiddu innistæðurnar. Eng- lendingar skilja fæstir önnur tungu- mál en ensku en Íslendingar skilja ensku og tóku eftir misræminu. Þetta varð til þess að prentaðir voru frægir t-bolir með myndum af þeim Brown og Darling. Svo fór að lokum að Ísland vann málið fyrir EFTA-dómstólnum. Nú vona ég að framkoma Lundúna- stjórnarinnar verði betri. Sá dagur kemur að Skotland mun reynast Ís- lendingum betri nágranni. Tökum norrænt nágrenni alvarlega Eftir Angus Brendan MacNeil »Nú vona ég að fram- koma Lundúna- stjórnarinnar verði betri. Sá dagur kemur að Skot- land mun reynast Íslend- ingum betri nágranni. Angus MacNeil Höfundur er þingmaður skoska Þjóðarflokksins á breska þinginu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.