Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
✝ Ásdís Helga-dóttir fæddist
í Seglbúðum í
Landbroti 6. sept-
ember 1929. Hún
lést á Cape Cod
Massachusetts 20.
október 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Helgi
Jónsson, bóndi í
Seglbúðum, f.
29.4. 1894, d. 22.5.
1949, og Gyðríður Pálsdóttir
frá Þykkvabæ í Landbroti, f.
12.3. 1897, d. 15.5. 1994.
Systkini Ásdísar eru Margrét
húsmóðir, f. 13.8. 1922, d. 2.8.
2010, gift Erlendi Einarssyni,
f. 30.3. 1921, d. 18.3. 2002,
Ólöf hjúkrunarfræðingur, f.
21.11. 1924, d. 8.9. 1990, gift
Birni Bergsteini Björnssyni, f.
2.10. 2018, d. 26.11. 1986, og
Jón fv. ráðherra og alþing-
ismaður, f. 4.10. 1931, kvænt-
ur Guðrúnu Þorkelsdóttur, f.
21.4. 1929.
Ásdís giftist Einari Hauki
Ásgrímssyni vélaverkfræð-
ingi, f. 20.9. 1928, d. 18.1.
1989, í Birmingham Englandi
hafa starfað nokkur ár við
kennslu hóf hún nám við
Sjúkraliðaskóla Íslands og út-
skrifaðist þaðan árið 1982.
Bætti hún við sig menntun
tengdri hjúkrun og kláraði
State-próf í Boston 1994. Ás-
dís starfaði frá árinu 1982-
1987 á Vífilsstöðum, 1987-
1989 á Borgarspítalanum og
1989-1993 á Landspítalanum.
Ásdís og Einar Haukur
bjuggu fyrst í Reykjavík eftir
heimkomu frá Englandi. Á
síldarárunum fluttu þau fyrst
til Raufarhafnar og síðan til
Siglufjarðar, þar sem Einar
Haukur var framkvæmda-
stjóri hjá Tunnuverksmiðjum
ríkisins. Árið 1965 fluttu þau
til Reykjavíkur þar sem Ein-
ari Hauki bauðst staða deild-
arverkfræðings hjá Varn-
arliðinu og bjuggu þau til
dauðadags Einars Hauks í
Garðabænum. Ásdís dvaldi
mikið á Cape Cod í Banda-
ríkjunum frá 1993 þar sem
hún lést. Þar eignaðist hún
marga vini sem syrgja hana
og þá sérstaklega Lee Davis
vinur hennar til margra ára.
Útför Ásdísar fer fram frá
Garðakirkju í dag, 28. októ-
ber 2015, og hefst athöfnin
kl. 14.
30. desember
1953 þar sem þau
bjuggu þegar
Einar Haukur var
þar við nám. For-
eldrar hans voru
Ásgrímur Magnús
Sigfússon útgerð-
armaður og fram-
kvæmdastjóri, f.
10.8. 1897, d.
15.2. 1944, og
Guðrún Ágústa
Þórðardóttir húsmóðir, f.
16.12. 1903, d. 16.12. 1980.
Börn Ásdísar og Einars
Hauks eru: 1) Ásgrímur Helgi
sölustjóri, f. 30.7. 1969, giftur
Sirrý Hrönn Haraldsdóttur
viðskiptafræðingi og kennara,
f. 8.8. 1971. Börn þeirra eru
Haraldur Einar, f. 16.6. 2000,
Helgi Snær, f. 17.11. 2001, og
Birgir Heiðar, f. 9.10. 2009. 2)
Gyða Sigríður fram-
kvæmdastjóri, f. 22.7. 1971.
Börn hennar eru Einar Hauk-
ur, f. 27.2. 1995, og Guð-
mundur Tómas, f. 18.3. 2008.
Ásdís lauk gagnfræðaprófi
árið 1966 og prófi frá Kenn-
araskólanum 1971. Eftir að
Elsku mamma, ég hef alls
ekki verið nógu duglegur að
vera í sambandi síðustu ár.
Fjarlægðin gerir þetta stund-
um. Nú þegar þú hefur loksins
fengið hvíldina eftir þessa
löngu baráttu þá ætla ég að
skrifa þér síðasta bréfið.
Af okkur er allt gott að
frétta. Ömmustrákarnir þínir
þrír standa sig vel. Ég man það
svo vel þegar Haraldur Einar
var skírður og þú sagðir að
þarna færi strákur sem ætti
eftir að gera það gott, berandi
nöfn afa sinna. Sama sagðir þú
um Helga Snæ þegar þú hélst
honum undir skírn, varst þetta
líka litla ánægð með nafnið
hans pabba þíns sem hann
fékk. Eins og svo oft áður hafð-
ir þú rétt fyrir þér. Sjúkdóm-
urinn var farinn að hafa áhrif á
þig þegar Birgir Heiðar fædd-
ist og því miður fékkstu lítið að
kynnast þeim fjörkálfi.
Ég man líka svo vel þegar
við fluttum í Garðabæinn. Þú
gerðir okkur Gyðu svo auðvelt
fyrir að eignast vini, bauðst öll-
um inn og bauðst upp á kakó
og kex þannig að ásókn var í.
Þetta lýsir þér svo vel, alltaf
varst þú tilbúin að halda veisl-
ur, hvort sem það var fyrir
okkur fjölskylduna eða vini
ykkar pabba. Alltaf stóð heimili
þitt opið fyrir vini og kunn-
ingja.
Enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur. Þegar ég
hugsa til baka þá á ég erfitt
með að skilja hvernig þú gast
umborið allt það sem við systk-
inin gerðum á okkar yngri ár-
um. Alltaf stóðstu við bakið á
okkur og aðstoðaðir. Alltaf gát-
um við leitað til þín með okkar
vandamál og fengið góð ráð.
Ég settist niður núna eftir að
þú fékkst friðinn og las yfir
nokkrar minningargreinar um
elsku pabba. Allar þær greinar
áttu það sameiginlegt að lýsa
þér sem duglegri og samvisku-
samri eiginkonu og móður. Ég
get 100% tekið undir þau orð.
Alveg sama hvað þú tókst þér
fyrir hendur, hvort sem það
var sjúkraliðanámið sem þú
fórst í, vinna eða starfið í
Lions, allt kláraðir þú með því-
líkum sóma.
Fá því stuttu eftir að pabbi
dó hefur þú verið með annan
fótinn á Cape Cod. Þangað var
alltaf gaman að koma að hitta
þig. Þér leið vel þar og það var
fyrir öllu þó svo að við höfum
saknað að hafa þig ekki nær
okkur.
Elsku mamma, nú ertu kom-
in á betri stað. Komin til pabba
og þið eigið örugglega eftir að
horfa niður til okkar og vernda
eins og þið gerðuð alltaf þegar
þið voruð hér hjá okkur. Minn-
ingin um þig mun alltaf lifa í
hjörtum okkar Sirrýjar og
strákanna. Farðu í friði,
mamma mín, og njóttu þeirra
stunda sem framundan eru.
Þinn sonur,
Ásgrímur Helgi.
Ásdís Helgadóttir Húsnæði íboði
Til leigu fjögrra herbergja íbúð í
Hólmgarði, 75,8 fm, leiga 185 þús. á
mánuði. Þriggja mánaða trygging
Áhugasamir sendið póst: box@
mbl.is merktan ,,L–25980”.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Viðhaldslítil
ferðaþjónustuhús
og sumarhús til sölu
halliparket@gmail.com
sími 894 0048
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Hitaveituskel 1850 L.
Hitaveituskel 1650 L.
margar stærðir.
Íslenskar handsmíðaðar
barnaskeiðar
Silfur táknar velsæld og góða heilsu
enda er silfur verðmætt og sótt-
hreinsandi efni. Silfurborðbúnaður,
skart og fl.
ERNA, Skipholti 3,
sími 552 0775,
www.erna.is
Bílar
Til sölu Ford Escape Limited
Glæsilegur lítið ekinn Ford Escape
Limited með ljósri innréttingu og
leður áklæði á sætum, nýleg Nokian
heilsársdekk. Árgerð 2008, nýskráður
07/2008, sjálfskiptur,vél 3.0 lítrar,
akstur 82.000 km
Upplýsingar í síma 892 2830,
Möguleiki á að taka nýlegan
smábíl uppí.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Matador heilsárs- og vetrardekk
215/70 R 16 kr. 25.900
235/60 R 18 kr. 37.500
255/55 R 18 kr. 39.900
255/50 R 19 kr. 45.700
275/40 R 20 kr. 58.900
Framleidd af Continental
Matador Rubber í Slóvakíu
Frábær dekk á góðu verði
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur,
s. 5444333
Bílaleiga
Ódýru dekkin
185/65x14 kr. 10.990,-
185/65x15 kr. 11.990.-
205/55x16 kr. 13.900,-
Hágæða sterk dekk. Allar stærðir.
Sendum hvert á land sem er.
Bílastofan, Njarðarbraut 11,
sími 421 1251
Húsviðhald
Smáauglýsingar
Atvinnublað alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
„Takk fyrir vas-
ana, amma,“ sagði
lítill hnokki, bros-
hýr, með dökkt,
hrokkið hár. Hann
var alsæll með „alvöru buxurn-
ar“ sem amma hafði saumað á
hann. Nú gat hann gengið um
með hendur í vösum.
Þessi litli drengur var Reyn-
ir Ingi Helgason, bróðir minn,
fjórum árum yngri en ég. Hann
var sonur hjónanna Huldu Dag-
marar Jóhannsdóttur og Helga
Björnssonar. Þegar hann var
nokkurra mánaða gamall urð-
um við að fara í fóstur vegna
veikinda mömmu. Hann fór til
móðursystur okkar, Jóhönnu
Jóhannsdóttur og eiginmanns
hennar, Jónatans Guðjónsson-
ar. Ég fór til fósturforeldra
pabba, Ingibjargar Andrésdótt-
ur og Helga Jónssonar, skó-
smiðs. Við systkinin ólumst því
upp eins og einbirni en eign-
uðumst síðar þrjú systkini, sem
ólust upp hjá foreldrum okkar.
Þau eru Sigrún, Ólafur Donald
(látinn) og Helgi. Það var alltaf
Reynir Ingi
Helgason
✝ Reynir IngiHelgason
fæddist 14. október
1942. Hann lést 1.
október 2015. Útför
hans fór fram 15.
október 2015.
mikill samgangur á
milli okkar systk-
inanna í uppvextin-
um, enda Reykja-
vík lítill bær á
þessum tíma, og
stutt á milli staða.
Því kynntumst við
öll ágætlega, bæði
í jólaboðum, af-
mælum og öðrum
viðburðum.
Við tvö vorum
svo heppin að vera send í sveit
til hjónanna Sigurjónu, móður-
systur okkar og Hannesar sem
bjuggu á Halldórsstöðum á
Vatnsleysuströnd ásamt sex
fjörugum börnum sínum. Þar
var alltaf nóg að gera við bú-
störfin og stundum farið út á
lítinn bát með Hannesi eða við
tíndum skeljar í fjöruborðinu.
Einnig var þarna lítið hús á
landareigninni, sem Jóhanna
móðursystir dvaldi í einhver
sumur. Þar var gist í einni
sæng, minnir mig, allur
krakkaskarinn úr borginni í
einni kös. Í minningunni var
alltaf skemmtilegt þarna og
gott veður.
Á unglingsárunum aðstoðaði
ég Reyni við enskunám.
Hann fór um tíma í milli-
landasiglingar og síðar á tré-
smíðaverkstæði. Þar smíðaði
hann innskotsborð, sem hann
gaf mér í jólagjöf. Það sinnir
enn hlutverki sínu við það að
vera til taks fyrir viðskiptavini
á litla kaffihúsinu að Kárastíg
1. Þar hittumst við systkinin
ásamt fjölskyldum í „bröns“ í
septemer fyrir fjórum árum
eftir ótímabær dauðsföll bróður
og bróðursonar okkar fyrr um
sumarið. Leitt að hafa ekki
endurtekið það á einhvern hátt
til að treysta fjölskylduböndin.
Nú erum við bara eftir þrjú
systkinin til að endurtaka sam-
veruna með okkar nánustu.
Hann lærði dúklagningar og
veggfóðrun hjá frænda sínum,
Rúnari Hannessyni, sem hann
gerði að aðalstarfi. Hann
kvæntist og átti eina dóttur,
Hörpu Jóhönnu. Hjónabandið
slitnaði og í kjölfarið upplifði
hann erfitt tímabil og dvaldi
hjá okkur hjónum um tíma. Þá
áttum við trúnaðarsamtöl sem
ég vona að hafi hjálpað honum.
Síðar hóf hann sambúð með
Sigurlaugu E. Rögnvaldsdóttur
og eignaðist með henni fimm
börn: Hafþór Jónatan, Ragn-
heiði, Sigurjón Ara og Elísabet
Eir. Tvíburasystir Elísabetar
lést við fæðingu.
Hann var hláturmildur og
stríðinn en hann gat líka verið
þrjóskur eins og fleiri í ættinni.
Ég kveð hann með eftirsjá.
Samverustundir eru aldrei of
margar og fyrr en varir er það
orðið of seint. Við hittumst
seinna í “bröns“ og þá verða
hlátrasköll og gleði í Sumar-
landinu og amma verður með
kleinur.
Ingibjörg Jóna.