Morgunblaðið - 28.10.2015, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu fyrst og fremst sannur í sam-
skiptum þínum við aðra og gættu þess að lofa
ekki upp í ermina á þér. En í dag er það lykill-
inn að velgengni, það er að segja ef þú punkt-
ar hjá þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Sköpunarkraftur þinn er mikill um þess-
ar mundir jafnvel svo að þú átt erfitt með að
velja og hafna. Við þessu er ekkert að gera, en
kannski er best að fresta mikilvægum fram-
kvæmdum í bili.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er komið að því að vinur þinn
verður að endurgjalda þér greiða og þitt að
koma honum í skilning um það. Ekki afskrifa
neina drauma án umhugsunar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Engar fleiri afsakanir. Skrifaðu niður
hugmyndir þínar en bíddu með ákvarð-
anatökur til morguns. Njóttu stöðu þinnar
sem er til eftirbreytni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir þurft að sitja undir harðri gagn-
rýni maka eða vinar í dag. Notaðu svo tímann
til þess að ljúka þeim meginverkefnum sem
fyrir liggja. Sýndu lipurð og þraukaðu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú kynnist nýjum einstaklingi sem
mun hafa mikil áhrif á líf þitt seinna meir.
Hann mætir sanngirni og er að sama skapi
rausnarlegur við aðra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gagnger skoðun á trygglyndi innan fjöl-
skyldunnar leiðir ójafnvægi í ljós. Ekki loka
óttann inni, talaðu um áhyggjur þínar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er svo margt skemmtilegt í
boði núna að þér reynist ófært að taka þátt í
því öllu. Ef hún heldur að sér verði kalt passar
hún upp á að hafa með sér aukajakka.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert jákvæð/ur og bjartsýn/n í
dag. Reyndu að skynja þetta augnablik og
nýta þér vitneskjuna. Til allrar hamingju er
ekki alltaf nóg að óska sér einhvers.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Með réttri skipulagningu vinnst þér
svo vel að það er engu líkara en verkin fljúgi
hjá. Of margt getur farið úrskeiðis þessa dag-
ana.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Græskulaust gaman er þér að
skapi og það er sjálfsagt að lífga upp á til-
veruna með þeim hætti. Og auðvitað færð þú
alltaf að ráða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki auðvelt að halda ró sinni í
þeim hamagangi sem er í kringum þig. Bestu
peningaráðin koma frá móður þinni.
Sigrún Haraldsdóttir segir áBoðnarmiði: „Ég var að góna til
himins og hugsa til betri helmingsins
sem er á heimleið að norðan.
Nú vona ég þú gjörla gáir
greitt sem ekur veg;
hvort að þú í suðri sjáir
sama tungl og ég.“
Björn Ingólfsson er með á nót-
unum:
Þegar kona þráir mann
á þeysireið um akveginn
gálaust er að ginna hann
að góna upp í himininn.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
bætir við:
Að aka veginn, veit ég víst,
vandi, er naumt að líta.
Þá hef ég, af mána misst
mín er þörf, að síta.
Þegar ég las vísu Björns rifjaðist
upp fyrir mér vísa frá mennta-
skólaárum mínum, sem ég sendi í
heillaóskaskeyti til Guðrúnar Karls-
dóttur og Benedikts bróður míns
þegar þau trúlofuðu sig:
Alltaf þráir meyjan mest
í mann að ná og reynir flest –
manninn hrjáir aftur að
aldrei má hann standast það.
Páll Imsland heilsaði leirliði á veð-
urdegi – sagði „mikil pólitík á Leir“
en sjálfur kynni hann ekki að
klambra saman pólitískum vísum –
„ekki heldur veðurvísum“ bætti
hann við, „þó veður séu í uppáhaldi
hjá mér og ég hafi fengist við að
kenna ungmennum á veður og veð-
urkerfi.“ Þetta sagði hann sönnun
fyrir fullyrðingunni:
Hér er veður sleikt og slétt,
slabb ei sést hér móa.
– Víst er þetta veðurfrétt: –
Vætulaust án snjóa.
Hafsteinn Reykjalín segir í net-
pósti að fólki finnist stöðug rigning í
september og október leiðingjörn:
Rigningin virðist nú ráða hér mestu,
hún rennur í straumum hér niður á veg.
Ákveðin slettist með frekju og festu,
finnst hún þá vera svo andstyggileg.
Hún leggst á sálarlíf saklausra manna
og svekkir þær konur sem hengja út þvott,
orðbragð þá viðhaft sem allflestir banna,
endum svo saman í vel heitum pott.
Sumum finnst rigningin seðjandi drykkur
og seytlandi lækir sem heilsubót fín.
Setjist nú niður og sannfærið ykkur !
Sjálfum mér finnst hún sem tærasta vín.
Ármann Þorgrímsson veltir lífs-
hlaupinu fyrir sér:
Leiðir flestra langs og þvers
liggja, samt skal áfram haldið
þó bilið milli báru og skers
broti geti stundum valdið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Undir fullu tungli í rigningu
Í klípu
RÓBERT VAR OF UPPTEKINN
AF SJÁLFUM SÉR.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
HVERNIG GET ÉG HAFA VERIÐ AÐ KEYRA Á 115
KÍLÓMETRA HRAÐA Á KLUKKUSTUND, ÞEGAR
ÉG ER BARA BÚIN AÐ KEYRA Í TÍU MÍNÚTUR?
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bera ástarbréfin
hans í töskunni þinni.
FLEST MISTÖK
ERU ÓHEPPILEG
HINS VEGAR ERU SUM
ÞEIRRA FREKAR FYNDIN
STANS! ERTU GÓÐUR
GAUR EÐA
VONDUR?
ÞAÐ VELTUR
Á ÝMSU...
...HVERJA
VILJIÐ ÞIÐ
EKKI FÁ?
SNIÐUGA
GAURA!
ENDUR-
PAKKAÐ
Víkverji hefur unun af því aðborða. Hann borðar nánast allt,
en finnst þó betra ef maturinn er
góður. Víkverji borðar heima hjá
sér. Hann borðar í vinnunni. Og
hann fer út að borða. Hann borðar
jafnvel á víðavangi.
x x x
Þegar Víkverji var lítill mátti teljaveitingastaði í Reykjavík á
fingrum annarrar handar. Nú eru
þeir legíó. Það segir sína sögu að á
Akureyri eru nú margfalt fleiri veit-
ingastaðir en voru í höfuðborginni í
æsku Víkverja.
x x x
Þótt Víkverji sé síborðandi seturhann sig þó ekki á háan hest í
þeim efnum. Hann veit hvað honum
finnst gott, en verður við það ekki að
óskeikulum matgæðingi eða mæli-
stiku bekkjarins.
x x x
Víkverji er sérlega ginnkeypturfyrir mat, sem hann hefur ekki
smakkað áður. Sjái hann krókódíl á
matseðli stenst hann ekki mátið.
x x x
Hið óvenjulega freistar, oft reynd-ar aðeins einu sinni. Hann veit
að stundum ganga matreiðslumenn
of langt og að stundum mætti halda
að hið svokallaða bræðingseldhús
væri útibú tónlistarútgáfunnar
Smekkleysu, en hann fellur aftur og
aftur fyrir nýjabruminu.
x x x
Nýlega sá Víkverji klausu um veit-ingastaðinn Boragó í Santiago í
Chile. Hann er í eigu Rodolfos
Guzmáns, sem var hlutskarpastur í
kjöri starfssystkina sinna þegar 50
bestu veitingastaðirnir í rómönsku
Ameríku árið 2015 voru valdir. Á
matseðlinum í Boragó er súpa úr
rigningarvatni frá Patagóníu borið
fram á mosa. Víkverji sér fyrir sér
að hann geti leikið þetta eftir. Í
blettinum hjá honum dafnar mosinn
sem aldrei fyrr og nóg er rigningin í
Vesturbænum. Hann getur borið
fram rigningarsúpu upp á hvern
dag, ugglaust við ómældar vinsældir
á heimilinu.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús segir þeim: „Ég er brauð lífsins.
Þann mun ekki hungra sem til mín
kemur og þann aldrei þyrsta sem á
mig trúir.“ Jh. 6.35
JólablaðMorgunblaðisins kemur út
fimmtudaginn 19. nóvember
Fullt af spennandi
efni fyrir alla aldurshópa
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
til kl. 12 mánudaginn
16. nóvember.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is