Morgunblaðið - 28.10.2015, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á ÍslandiFæst í öllum helstu raftækjaverslunum
Allt í eldhúsið frá
Nei, hér þarf engu að ljúga.Það er engin skylda aðljúga í skáldsögum. Hérfær veruleikinn vængi og
flýgur um heiminn.“ (26) Þannig
skýrir sögumaður Hundadaga,
nýrrrar skáld-
sögu Einars Más
Guðmundssonar,
fyrir lesendum
hvað hann sé að
gera. Það er eins
og hann standi
fyrir framan okk-
ur og segi frá; nei,
hann skáldar ekki
heldur rifjar upp
löngu liðna atburði og persónur, síð-
an seint á 18. öldinni og fyrri hluta
þeirrar 19.; vísað er í ýmsar áttir,
sumt er útskýrt, jafnvel borið saman
við samtíma okkar, annað skilur les-
endinn sínum skilningi því eins og
segir neðar á sömu síðu, með vinki til
Megasar, þá fer sagan „fram og aft-
ur blindgötuna“.
Einar Már er hér í miklu frásagn-
arstuði og afraksturinn bráð-
skemmtilegur. Hundadagar hverfast
um lífshlaup Jörgens Jörgensen sem
tók völdin á Íslandi eitt sumar,
hundadagana. Bækur hafa verið
skrifaðar um sögu Jörgens, ævintýri
hans hér og annars staðar, og hann
skrifaði líka sjálfsævisögu; sögumað-
urinn hér vísar í þær eins og hentar,
upplýsir og túlkar atburði. Þetta var
líka ótrúlegt lífshlaup. Baldinn nem-
andinn sem var í bekk með þjóð-
skáldi varð heimsferðalangur, stýri-
maður, konungur, stríðsfréttaritari,
spilasjúklingur, njósnari, fangi, rit-
höfundur og lögregluþjónn. Svo eitt-
hvað sé nefnt. Sögumaður lýsir Jörg-
en fallega, reynir jafnvel að bæta
hans hlut: „Við getum allavega slegið
því föstu að Jörgen Jörgensen var
ekki sá skýjaglópur sem flestir segja
hann hafa verið …“ (149) Og sagt er,
í þeim flæðandi talmálsstíl sem ein-
kennir verkið, að í Jörgen „fóru sam-
an snilligáfa, fráleit fífldirfska og
gleði, konungleg gleði, einhver
skringileg kímnigáfa sem helst má
finna í bókmenntum, í því hvernig
strákur úr Kaupmannahöfn sem
flækist um höfin er allt í einu orðinn
Snilligáfa, fráleit
fífldirfska og gleði
Skáldsaga
Hundadagar bbbbn
Eftir Einar Má Guðmundsson.
Mál og menning, 2015.
Innbundin, 341 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Kvikmynd Dags Kára Péturssonar,
Fúsi, hreppti í gærkvöldi hin eftir-
sóttu kvikmyndaverðlaun Norður-
landaráðs þegar fimm verðlaun
ráðsins voru afhent við hátíðlega at-
höfn í Eldborgarsal Hörpu. Tók
hann við verðlaununum úr hendi
Benedikts Erlingssonar, sem hlaut
þau fyrir ári fyrir kvikmyndina
Hross í oss.
Norski rithöfundurinn Jon Fosse
hreppti Bókmenntaverðlaunin, elstu
verðlaun Norðurlandaráðs, en þau
hafa verið veitt frá árinu 1962.
Fosse, sem er víðkunnur fyrir leikrit
sín, hlaut verðlaunin fyrir þríleik
prósaverka: Andvake, Olavs
draumer og Kvelsværd.
Sænskir listamenn tóku við tvenn-
um verðlaunum í Hörpu; bassa-
leikarinn og tónskáldið Svante
Henryson hlaut Tónlistarverðlaunin
og Jakob Wegelius hreppti yngstu
verðlaunin, Barna- og unglinga-
bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs, fyrir skáldsöguna Mördarens
apa. Þá fékk færeyska orkufyrir-
tækið SEV Umhverfis- og náttúru-
verðlaunin og tóku forsvarsmenn
þess við þeim úr höndum Dags B.
Eggertssonar borgarstjóra og Ólaf-
ar Örvarsdóttur, sviðsstjóra hjá
Reykjavíkurborg, en borgin hlaut
verðlaunin í fyrra. Allir verðlauna-
hafar hlutu 350.000 sænskar krónur
í verðlaun, tæplega 6,7 milljónir
króna.
Sjónvarpsverðlaun?
Mikið var um dýrðir við verð-
launaafhendinguna þar sem þátttak-
endur á þingi Norðurlandaráðs voru
viðstaddir, hátt í eitt þúsund manns,
auk annarra gesta. Þá voru flestir
hinna tilnefndu listamanna á staðn-
um, en síðustu ár hefur ekki verið
tilkynnt fyrir fram hver hreppir
verðlaunin í hinum ýmsu flokkum,
heldur á það að koma þeim öllum á
óvart þegar nafn sigurvegarans er
lesið upp. Sitt sýnist hverjum um
þessa breytingu en kynning á þeim
listamönnum sem verða fyrir valinu
þykir þó minni en var áður, þegar
fjölmiðlar gátu kynnt sér verk
þeirra útvöldu fyrir afhendinguna.
Í ávarpi Höskuldar Þórhallssonar,
forseta Norðurlandaráðs, við upphaf
athafnarinnar sem sjónvarpað var
um öll Norðurlöndin, viðraði hann
þá hugmynd að sjötta verðlauna-
flokknum yrði bætt við, fyrir sjón-
varpsefni. Tónlistarmenn og dans-
arar tróðu upp á hátíðinni, þar á
meðal kammerhópurinn Elektra,
Gus Gus, Eivör Pálsdóttir og
Kammerkór Suðurlands ásamt
steinhörpusmiðnum og -leikaranum
Páli Guðmundssyni frá Húsafelli.
Charlotte Böving og Ólafur Egill
Egilsson voru kynnar á sviðinu og
fóru snöfurmannlega með sín hlut-
verk.
Skrifuð fyrir Gunnar
Verðlaunahafar síðasta árs af-
hentu verðlaunin í öllum flokkum og
kom það í hlut Benedikts Erlings-
sonar að lesa úrskurð dómnefndar
um hver tæki við af honum sem
verðlaunahafi. Kom í ljós að það var
Dagur Kári, ásamt framleiðend-
unum Agnesi Johansen og Baltasar
Kormáki, sem hreppti þau fyrir
Fúsa en fimm kvikmyndir voru til-
nefndar. Í umsögn dómnefndar seg-
ir að þetta sé einföld en sjónrænt
hugmyndarík saga um að halda í
gæskuna og sakleysið í sýnilega
harðneskjulegum heimi. Listræn
nálgun Dags Kára við stórvaxna
aðalpersónuna skapi hrífandi og
heillandi kvikmynd, þar sem gæf-
lyndur risinn sé sýndur á virðingar-
verðan hátt en jafnframt er hrósað
áhrifaríkum lýsingum á konunum í
kringum aðalpersónuna, Fúsa, sem
Gunnar Jónsson leikur.
Dagur Kári steig á svið ásamt
Agnesi og Gunnari og var fagnað
hraustlega. Hann kvaðst djúpt
snortinn yfir heiðrinum sem að-
standendum kvikmyndarinnar væri
sýndur. „Þá er ég ánægður með að
fá verðlaunaféð því ég skulda mjög
mikið í skatta!“ bætti hann síðan
kíminn við.
„Ég skrifaði handritið sérstaklega
fyrir aðalleikarann, Gunnar Jóns-
son, og án hans hefði ég ekki gert
þessa kvikmynd. Heiðarleiki hans og
einstök nálgun í leiknum leiddi okk-
ur áfram; þegar tökur hófust og ég
sá hvernig hann stóð sig vissi ég að
það yrði mikil áskorun fyrir alla aðra
sem komu að kvikmyndagerðinni að
ná viðlíka frammistöðu,“ sagði leik-
stjórinn. Hann bætti við: „Mér
finnst að Gunnar Jónsson eigi að
minnsta kosti hálf verðlaunin skilið –
jafnvel þótt ég hafi ekki efni á að láta
honum helming verðlaunafjárins
eftir.“ Og þá var hlegið dátt í salnum
áður en Dagur Kári færði þakkir
öðrum þeim sem komu að gerð kvik-
myndarinnar.
Ljóðrænn prósi Fosse
Menningarblaðamenn sem rætt
var við fyrir afhendinguna töldu
slaginn um Bókmenntaverðlaunin
standa milli hins norska Jons Fosse,
sem var tilnefndur fyrir þríleik, og
Jóns Kalmans Stefánssonar, en
hann var tilnefndur fyrir fyrri hluta
nýjasta verks síns, Fiskarnir hafa
enga fætur. Var þetta í fjórða skipti
sem Jón Kalman var tilnefndur til
verðlaunanna, en Þorsteinn frá
Hamri var einnig tilnefndur. Svo fór
að Fosse tók við verðlaununum úr
hendi verðlaunahafa síðasta árs,
Kjell Westö. Í umsögn dómnefndar
segir að Fosse sameini á fágætan
hátt frumlegan stíl og hæfileika til
að tengjast lesendum handan tíma
og rúms. Prósi hans sé afar ljóðrænn
og afstaðan til frásagnarinnar leik-
andi létt.
Einmanaleiki og samkennd
Sænski bassaleikarinn og tón-
skáldið Svante Henryson flutti at-
hyglisverða þakkarræðu, eftir að
Fúsi hreppti verðlaunin
Kvikmynd Dags Kára hlaut Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs Annað árið í röð sem íslensk
kvikmynd hreppir þau Norski rithöfundurinn Jon Fosse fékk Bókmenntaverðlaunin fyrir þríleik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægður „Mér finnst að Gunnar Jónsson eigi að minnsta kosti hálf verðlaunin skilið,“ sagði Dagur Kári í ávarpi.