Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.10.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2015 kóngur á Íslandi og hvernig hjal um viðskipti með tólg og sápu á krá í London […] endar með því að allir fangar í Reykjavík eru látnir lausir og skipanir gefnar um ótrúlegustu umbætur sem fáir skildu fyrr en löngu seinna.“ (73) Líf Jörgens og persóna fá þannig goðsagnalega vídd, hann er sagður „eins og per- sóna í skáldsögu sem hann samdi sjálfur“ (92) og þessi breyski maður er upphafinn í ljóðrænum lýsingum: „Í lífi Jörgens Jörgensen var heim- urinn bara eitt risastórt herbergi án veggja og lofts nema þegar hann sat í fangaklefum eða kannski einmitt þá. Þegar hann reis upp úr nóttinni snerti hann himininn, eilífðina og tímann en í dagsbirtunni læddist hann stundum eins og skuggi, sljór farandskuggi.“ (87) Önnur aðalpersóna Hundadaga er séra Jón Steingrímsson, kallaður eldklerkur, einnig persóna sem hef- ur lifað með þjóðinni, og ritaði end- urminningar sem Einar Már nýtir sér; „eini presturinn í heiminum sem stöðvað hefur eldgos í miðri messu og er þannig á heimsmælikvarða hvaða mælikvarði sem það nú er. Það er ekki gott að segja hvort ein- hver prestur í nútímanum myndi duga jafn vel í eldgosi og hann gerði.“ (12) Hér má glögglega sjá eitt einkennið á frásagnaraðferð höfund- arins, sem ber atburði fortíðar iðu- lega saman við samtímann í þessum flæðandi texta. Sir Joseph Banks er til dæmis sagður hafa verið Inspired by Iceland, og bætt við: „Nú er allt mælt í tekjum, ekki síst gjaldeyr- istekjum. Það er einsog allt heyri undir gjaldeyrisdeild Seðlabankans: menningin, náttúran og landið.“ (103) Og séra Jón, sem söguhöf- undur hefur ekki síðri samkennd með en Jörgen, er sagður brenna fyrir málstað sinn, „öfugt við presta nútímans sem tala frekar um bygg- ingaframkvæmdir en guð og kvarta yfir vinnutíma og álagi þó að guð sé aldrei í fríi.“ (50) Sögusviðið sveiflast lengi fram- anaf milli Jörgens og séra Jóns og rýnir beið alla bókina spenntur eftir að sjá hvernig höfundur léti líflínur þeirra mætast, eftir að fram kemur snemma að Jón hafi því miður ekki hitt Jörgen þegar hann kom hingað og varð kóngur, því þá „var séra Jón dauður þó hann lifi sem heilagur maður í minningu okkar hér á Ís- landi einsog raunar Jörundur hunda- dagakonungur líka…“ (27) Sögu- maður tengir þá saman með allskyns samanburði, eins og því að Jörgen hafi tvítugur verið í þremur heims- álfum og var þá á leið til þeirrar fjórðu, meðan klerkurinn komst ekki einu sinni til Kaupmannahafnar. En það er galli hve veik hún er, teng- ingin á milli þessarra manna, sem eru þó afar athyglisverðir, hvor á sinn hátt, þótt ekki takist að láta þá standa saman í sögunni. Stundum hvarflaði að þessum lesanda að þeir Jörgen og séra Jón hefðu verð- skuldað sína bókina hvor. En þeir eiga þó skurðpunkta í auka- persónum, sem einnig eru áhuga- verðar, eins og Finni Magnússyni og Guðrúnu Johnsen, fylgiskonu Jör- undar sem kölluð er „hundadaga- drottning“ sem „ferðaðist til útlanda til að verða hefðarmey en endaði sem beiningakona í Kaupmannahöfn“. (232) Af henni hafi allir heillast og „hefði verið fróðlegt að kynnast henni,“ segir höfundur. Flæðandi og prédikandi frásagn- artæknin byggist á ákveðinni klifun, eins og sögumanna er oft háttur, og gengur það oftast vel upp. Stöku endurtekningum er þó ofaukið, eins og þegar Jörgen er oftar en einu sinni líkt við James Bond. Þá hefur yfirlestur brugðist hér, þar sem orð- ið það fær að vaða uppi: „… að það sé eitthvert mikið leyndarmál sem hann vilji trúa honum fyrir en það kemur aldrei fram hvað það er. Það lítur út fyrir að sá hluti bréfsins sé ekki til. Það er eitthvað mjög per- sónulegt …“ (90) – skáletur er rýnis. En hvað sem því líður eru Hunda- dagar Einars Más lifandi, litrík og skemmtileg frásögn af afskaplega áhugaverðu fólki. Morgunblaðið/Kristinn Einar Már Hundadagar eru „lifandi, litrík og skemmtileg frásögn af af- skaplega áhugaverðu fólki“. hafa tekið við Tónlistarverðlaun- unum, þar sem hann benti á skort á fyrirmyndum fyrir karlmenn sem hafa verið í hans stöðu og ákveðið að vera heimavinnandi og annast upp- eldi barnanna. Dómnefnd sagði hann hafa á ferli sínum sýnt einstaka sköpunar- og snilligáfu á mörgum sviðum. Fjórtán verk voru tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverð- launanna og afhenti Hakon Øvreås, sem hreppti verðlaunin í fyrra fyrir söguna Brune, sænska höfundinum og myndskreytinum Jakob Wegelius verðlaunagripinn. Saga hans nefnist Mördarens apa og í umfjöllun um til- nefndu verkin í Morgunblaðinu í vik- unni segir Silja Björk Huldudóttir að bókin, sem gerist á fyrri hluta 20. aldar, sé allt í senn, sjómannssaga, glæpasaga og ævintýri. Sagan sé á yfirborðinu morðgáta en fjalli „í raun um vináttu, einmanaleika og samkennd. Þrátt fyrir umfangið, en bókin er 618 bls., er sagan þétt og spennandi. Höfundur glæðir bókina lífi með nákvæmum svart/hvítum teikningum sínum“. Bætir rýnir við að þetta sé saga sem ætti að höfða til íslenskra lesenda. Hákun Djurhuus, stjórnandi fær- eyska orkufyrirtækisins SEV, veitti Umhverfis- og náttúruverðlaun- unum viðtöku. Verðlaunin hlaut fyrirtækið fyrir metnaðarfull mark- mið og skapandi nálgun við verk- efnin sem það tekst á við. Starfsemi SEV sé ekki aðeins mikilvæg fyrir þróun endurnýjanlegrar orku í Fær- eyjum heldur einnig fyrir þróunina á meginlandi Evrópu. Morgunblaðið/Eggert Leikskáldið Jon Fosse er vanari því að vera hampað sem leikskáldi en prósahöfundi og kvaðst afar þakklátur. Morgunblaðið/Eggert Norðurljós Sigtryggur Baldursson, Eivör Pálsdóttir og Páll frá Húsafelli voru meðal þeirra sem komu fram með Kammerkór Suðurlands í lokin. Morgunblaðið/Eggert Gamanmál Kynnarnir Charlotte Bøving og Ólafur Egill Egilsson brugðu á leik og endursköpuðu meðal annars fræga senu í kvikmynd eftir Bergman. Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 6/11 kl. 19:00 Fös 20/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fim 12/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00 Fim 3/12 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Sun 1/11 kl. 20:00 Sun 8/11 kl. 20:30 Allra síðustu sýningar! Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Fös 11/12 kl. 20:00 Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k Fös 18/12 kl. 20:00 Fim 12/11 kl. 20:00 aukasýning Lau 5/12 kl. 20:00 Kenneth Máni stelur senunni Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 15/11 kl. 13:00 Sun 29/11 kl. 13:00 Sun 8/11 kl. 13:00 9.k Sun 22/11 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur Öldin okkar (Nýja sviðið) Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k. Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k. Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Hundur í óskilum snúa aftur Sókrates (Litla sviðið) Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Fös 4/12 kl. 20:00 Þri 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Lau 12/12 kl. 20:00 Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Mið 25/11 kl. 20:00 Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Lau 28/11 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Mið 28/10 kl. 20:00 7.k. Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Fim 19/11 kl. 20:00 Fim 29/10 kl. 20:00 8.k. Sun 8/11 kl. 20:00 12.k Fim 26/11 kl. 20:00 Sun 1/11 kl. 20:00 9.k Sun 15/11 kl. 20:00 13.k Fös 27/11 kl. 20:00 Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Mið 18/11 kl. 20:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Mávurinn (Stóra sviðið) Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 26/11 kl. 20:00 Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Sun 29/11 kl. 20:00 Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Fim 19/11 kl. 20:00 Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Allra síðustu sýningar! Og himinninn kristallast (Stóra sviðið) Fim 5/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00 Sun 15/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00 Inniflugeldasýning frá Dansflokknum Dúkkuheimili, allra síðustu sýningar! 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 18.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Mið 25/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Mið 2/12 kl. 19:30 9.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Heimkoman (Stóra sviðið) Fim 29/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn Mið 4/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters. Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan) Lau 31/10 kl. 15:00 Lau 7/11 kl. 13:30 Lau 7/11 kl. 15:00 Síðustu sýningar. (90)210 Garðabær (Kassinn) Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 14:00 Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 16:00 Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Lau 28/11 kl. 17:00 Sun 29/11 kl. 17:00 DAVID FARR HARÐINDIN Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.