Morgunblaðið - 28.10.2015, Page 36

Morgunblaðið - 28.10.2015, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Hætt að flagga í hálfa stöng 2. Varð ekki var við slysið 3. Nánast hætt að taka til heima 4. Brotist inn á vef Útvarps sögu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst 4. nóvember nk. og verður tón- listarráðstefna haldin á henni í fyrsta sinn á vegum Útflutningsmiðstöðvar íslenskrar tónlistar. Boðið verður upp á fyrirlestra og pallborðsdagskrá á meðan á hátíðinni stendur í Peder- sen-svítunni á efstu hæð Gamla bíós, m.a. spjall við umboðsmenn Of Mon- sters and Men og Ásgeir um vel- gengni þeirra síðustu misseri. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónlistarráðstefna haldin á Airwaves  Draugabærinn Hafnarfjörður nefnist hrekkja- vökugleði sem boðið verður upp á í miðbæ Hafn- arfjarðar 29. okt.-1. nóv. Dag- skráin er hræðileg og má á henni m.a. finna draugasögur og -göngur og uppistand með Hugleiki Dagssyni. Miðbær Hafnarfjarð- ar verður draugabær  Fimmtu og síðustu kvik- myndatónleikar Gunnars Tynes og Örvars Smárasonar úr hljómsveitinni múm fara fram í kvöld kl. 21 í Mengi. Gunnar og Örvar munu spinna tónlist við þöglu myndina Menchen am Sonntag frá árinu 1930 og vinna úr þeim tilraunum og kveikjum sem átt hafa sér stað undanfarna mánuði. Lokatónleikar Gunn- ars og Örvars í Mengi Á fimmtudag Austan 13-20 m/s og vætusamt, talsverð rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 5 til 11 stig. Á föstudag Suð- austanátt, allvíða 10-18 m/s en yfirleitt hægari fyrir norðan. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-18 m/s, hvassast með suður- ströndinni. Súld eða rigning en úrkomulítið fyrir norðan. Úrkomu- meira á Suðausturlandi. Hiti 5 til 12 stig. VEÐUR Sex leikir fóru fram í Olís- deild kvenna í handknatt- leik í gærkvöld en 8. um- ferðinni lýkur í Eyjum í kvöld þar sem toppliðin tvö, ÍBV og Grótta, eigast við. Fram, Haukar og Valur fögn- uðu öll sigri og eru liðin í 3.-5. sæti deildarinnar. Þá hrósaði Afturelding sínum fyrsta sigri í deildinni á tímabilinu þegar liðið lagði Fjölni að Varmá. »2-3 Fyrsti sigurinn hjá Aftureldingu Keppni í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik hófst í nótt. Að venju spáir Gunnar Valgeirsson, NBA- sérfræðingur Morgunblaðsins í Los Angeles, í spilin fyrir tímabilið, en hann hefur fylgst náið með deild- inni í fjölda ára og veit svo sannarlega sínu viti. »2-3 Spáð í spilin í NBA- deildinni „Þetta var lið sem ég vildi fara til og þegar forráðamenn félagsins settu sig í samband við mig varð ekki aft- ur snúið. Ég er gríðarlega spennt fyrir þessu og fæ gott tækifæri til að bæta mig sem leikmaður,“ segir landsliðskonan Dagný Brynjars- dóttir, sem hefur samið til tveggja ára við bandaríska atvinnu- mannaliðið Portland Thorns. »1 Þetta var lið sem ég vildi fara til ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Ég var mjög lítill þegar ég vildi fá að hjálpa ömmu við sperðlagerðina á haustin og fimm ára fékk ég að vera með garnið og hnýta,“ segir Óttar Jósefsson frá Stafni í Þing- eyjarsveit. „Ég hafði strax mjög gaman af þessu og mér fannst ótrú- legt hvernig hakkið gat orðið að svona miklum og góðum mat. Síðan þá hef ég verið með í þessu og í dag sé ég næstum alfarið um þetta.“ Um helgina var Óttar önnum kafinn við að gera sperðla svo hægt væri að koma þeim í reykinn sem fyrst. Fjölskylduverkefni „Haustmaturinn er fjölskyldu- verkefni í Stafni og maturinn er fyrir fimm fjölskyldur,“ segir hann. „Þetta er aðallega föðurfólk mitt og það hjálpast allir að í heimaskurð- inum og síðan er kjötið unnið. Það kemur í minn hlut að hakka í sperðlana og ég nota aðallega huppa og slög í þá. Áður voru notuð hjörtu og þindar og fleira sem féll til en nú var nóg til af slögum og í þeim er mátulega mikil fita fyrir svona matargerð,“ segir Óttar, sem var með nærri 50 kg af sperðlaefni í þetta skipti. Hann segist hafa notað 80 metra af garnaplasti og úr því hafi orðið til rúmlega 200 sperðlar. Hann seg- ir að það komi sér vel fyrir fólkið að eiga sperðla í frysti yfir veturinn og oftast endist þeir árið. Maturinn skiptist á fjölskylduna og öllum finnist þetta mjög góður matur. Það geti verið gott að hafa góðan mat sem ekki þurfi langa suðu, en sperðlana þarf bara að sjóða í rúm- an hálftíma rétt eins og kartöflur. Heimavinnsla og haustmatur Sperðlarnir í Stafni eru gerðir eftir gamalli uppskrift. Stórfjöl- skyldan vill halda í hefðir og allir eru sammála um að breyta ekki gömlu uppskriftunum þegar verið er að undirbúa reykmeti og fleira sem tilheyrir þessum árstíma. Óttar hefur mikinn áhuga á haustmatnum og hlakkar alltaf til að vinna í kjötinu. Hann segist vera áhugasamur um heimavinnslu af- urða en tíminn verði að leiða í ljós hvort hann taki sér hana einhvern tímann fyrir hendur. Eitt er þó víst, að mörgum finnst afurðir sem þessar hafa ákveðna sérstöðu hvað varðar gæði og heimagerðir sperðl- ar eru að sjálfsögðu herramanns- matur. Best að reykja í þurru veðri  Býr til rúmlega 200 sperðla úr um 50 kg Morgunblaðið/Atli Vigfússon Matargerð Óttar Jósefsson frá Stafni í Þingeyjarsveit önnum kafinn við að gera sperðla sem eru víst gómsætir. Það er nokkuð algengt að fólk geri sperðla í Þingeyjar- sýslum, en þó er það frekar á sauðfjárbúum þar sem mikið fellur til af kjöti sem ekki fer í afurðastöðvar. Áður en garnaplastið kom til sögunnar var sett í alvöru garnir og var mikið verk að hreinsa þær og þvo áður en troðið var í. Lengi var brytjað í sperðlana og það er ennþá gert á nokkrum bæjum. Flestir hakka sperðla- efnið í dag og nota þar til gerð tæki til þess að koma efninu í plastið. Reykurinn tekur svo við og sperðlarnir eru hengdir á rær sem eru settar upp í loftið á reykhúsinu. Óttar seg- ir að ekki sé ráðlegt að hafa rærnar alveg beint yfir reyknum frá eldstæðinu, heldur til hliðar við hann uppi í rjáfrinu. Hann segir að í Stafni sé kveikt upp tvisvar á dag og vel þurrt tað gefi sperðlunum það bragð sem skiptir máli. Reyktíminn fari nokkuð eftir veðri og geti verið alveg vika og rúmlega það. Best sé að reykja í þurrviðri, en stundum þurfi að reykja í hríðum og kulda. Sperðlarnir að minnsta kosti viku í reykkofanum ALGENG VINNA Í ÞINGEYJARSÝSLUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.