Víkurfréttir - 16.01.1986, Blaðsíða 1
Grindavík:
Betri þjónusta
og aukið öryggi
- segir bæjarfógeti um
breytingar þær sem gerðar
hafa verið varðandi
lögregluna f Grindavík
Sl. mánudag tók
Rúnar Lúðvíksson við
stöðu aðalvarðstjóra í
lögreglunni íGrindavík.
Gegnir hann stöðu
þessari alla virka daga
frá kl. 9-17. Að sögn
Jóns Eysteinssonar bæj-
arfógeta í Grindavík, er
hann ráðinn í þessa
stöðu til þriggja mán-
aða, en eftir þann tíma
verður staðan auglýst
laus til umsóknar ef sú
niðurstaða verður að
það sé talin þörf.
Þá hefur verið ákveðið
að tengja síma lögregl-
unnar við lögreglustöð-
ina í Keflavík, þann
tíma sem enginn er á
stöðinni í Grindavík. En
vegna fámennis í lög-
reglunni þar kemur
stundum fyrir að þeir
sem eru á vakt séu báðir
í útkalli og því næst ekki
á meðan samband við
lögregluna, og eins er
ákveðinn tími á nótt-
unni sem enginn er við.
I þeim tilfellum sem
boð berast til lögregl-
unnar í Keflavík mun
hún alltaf koma þeim til
aðila í Grindavík, ýmist
í gegnum talstöð eða
símann.
Sagði Jón að þessar
breytingar væru til þess
að bæta þjónustu lög-
reglunnar í Grindavík
og til að auka öryggi
bæjarbúa. „Því skil ég
ekki þann misskilning
sem virðist vera á ferð-
inni“ sagði Jón að
lokum, og átti þá við
síðustu skrif Reykja-
nessins um málið. - epj.
Lögreglustöðin í Grindavík er á neðri hæð þessa húss.
Breytingar hjá bátaflotanum í Keflavík: = - ===
Árni Geir skiptir um eigendur
Rán AK og Jón Ágúst bætast í fiotann
Þeir bræður Rúnar og
Sigurður Hallgrímssynir,
sem eiga aflaskipið Happa-
sæl KE, hafa nú fest kaup á
M.s. Árna Geir KE 74, 168
tonna stálskipi, sem Einar
Pálmason átti áður. Mun
Rúnar verða skipstjóri á
bátnum.
Þá hefur Utvegsmiðstöð-
in hf. keypt 58 tonna eikar-
bát, Rán frá Akranesi, og
jafnframt er unnið að því að
fá keypt hús Heimis hf. af
Landsbankanum.
Einnig hefur verið ákveð-
ið að hefja útgerð á m.s.
Jóni Ágústi GK, sem end-
urbyggður hefur verið frá
grunni hjá Dráttarbraut
Keflavíkur, en bátur þessi
skemmdist mikið í eldi út af
Garðskaga 1978. Þar sem
ekki hefur tekist að selja
skipið mun Dráttarbrautin
gera það út í samvinnu við
inn- og útflutningsfyrir-
tækið Seif í Reykjavík. Er
þegar búið að ráða áhöfn á
skipið og verður Omar Ein-
arsson úr Sandgerði skip-
stjóri. - epj.
1«
M.b. Árni Geir KE 74
Grindavík: = ■ ■ --....—
Framkvæmdir hafnar hjá Spari-
sjóðnum og Landsbankanum
Hafnar eru framkvæmd-
ir við nýja Landsbanka-
húsið við Víkurbraut í
Grindavík. í þeim áfanga
sem nú er unnið við á að
steypa, að sögn Bæjarbót-
ar, sökkla og plötu húss-
ins. Buðu alls níu aðilar í
verkið og fékk aðili úr
Kópavogi það fyrir
1.948.693 kr., sem er 91.4%
af kostnaðaráætlun. Hið
nýja hús verður á tveimur
hæðum, alls 665 ferm., en
núverandi húsnæði er 120
ferm. Ráðgert er að bjóða
út uppsteypun hússins í
þessum mánuði.
Að sögn sama blaðs eru
nú hafnarframkvæmdir við
innréttingu húsnæðis
Sparisjóðsins í Verslunar-
miðstöðinni í Grindavík.
Er vonast til að verkinu
ljúki með vorinu, en heima-
menn annast verkið. - epj.
Hér verður útibú Sparisjóðsins til húsa.
Vöknuðu við að maður var að troða
sér inn um svefnherbergisgluggann
Um sl. helgi var brotist
inn í hús við Holtsgötu í
Njarðvík og þaðan stolið
fatnaði, áfengi og ýmsu
fleiru. Eftir að hafa farið
inn í umrætt hús gerði
innbrotsþjófurinn tilraun
til að fara inn i næsta hús,
og vöknuðu húsráðendur
þar við, er hann gerði til-
raun til að troða sér inn um
svefnherbergisgluggann.
1 fyrra húsinu sneri hann
í sundur stormjárn á eld-
húsglugganum og komst
þar inn að sögn lögreglunn-
ar. Hefur náðst í viðkom-
andi og hann viðurkennt
innbrotið og öllu þýfinu
verið skilað.
Húsfreyjan í síðarnefnda
húsinu vill af þessu tilefni
vara alla Njarðvíkinga og
aðra við að fara frá eða
leggjast til svefns við opinn
glugga, þar sem inn má
komast. Eins er varhuga-
vert að fara frá ólæstum
húsum. - epj.
Víkur-fréttir
Blað Suðurnesja-
manna
Á þessu svæði byggir Landsbankinn nýtt húsnæði.