Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.1986, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 16.01.1986, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 16. janúar 1986 17 l-X-2 l-X-2 Bræður berjast. Sigurður Ingimundar skorar hér þrátt fyrir varnar- tilburði Vals stóra bróður. ÚRVALSDEILD: - UMFN-ÍBK 77:75 NAUMT VAR ÞAÐ Njarðvíkingar sigruðu Keflvíkinga í nágrannaleik Iiðanna í úrvalsdeildinni í körfuknattleik i Ijónagryíj- unni, með 77 stigum gegn 75. Islandsmeistararnir virt- ust öllu hressari í byrjun og tóku forystuna strax á fyrstu mínútunum. Aftur á móti áttu Keflvíkingar í erfiðleikum með að koma þeim hnöttótta ofan í körf- una og var það ekki fyrr en 4 mín. voru liðnar af leikn- um, að boltinn rataði rétta leið. Þetta notfærðu Njarð- víkingar sér og náðu strax góðu forskoti. Keflvíkingar vöknuðu þá og söxuðu á forskot Njarðvíkinga, og náðu síðan að jafna með hreint ótrúlegu 3ja stiga skoti Hreins. Leikurinn var síðan allur í járnum til hálf- leiks, en þá var staðan 33:32 Njarðvíkingum í vil.. Njarðvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn með miklum látum og breyttu stöðunni í 41:32 og virtist allt loft farið úr Keflvíking- um. En Keflavíkurstrák- arnir hresstu sig við og náðu að jafna leikinn og sá vart mun á liðunum síðustu mínútur leiksins. Njarðvík- ingar reyndust þó sterkari á endasprettinum og sigruðu með 77 stigum gegn 75 eins og áður sagði. Lið Njarðvíkinga var mjög jafngott, en þó stóð Isak Tómasson upp úr, en hann spilaði mjög vel í síð- ari hálfleik og skoraði margar fallegar körfur. Lið Keflvíkinga var einnig mjögjafnt, baráttan góð en illa farið með margar sóknir. Einnig var áberandi hve léleg dómgæsla leiksins fór í taugarnar á leikmönn- um liðsins og bitnaði það á leik þeirra. Er vonandi að slíkt endurtaki sig ekki. Það er víst óhætt að segja að slæm dómgæsla hafi sett svip sinn á leikinn. Dóm- gæslan var í höndum Jóns Otta og Bergs. Stig UMFN: ísak 23, Valur 15, Jóhannes og Helgi 10 stig hvor, aðrir minna. Stig ÍBK: Hreinn 19, Siggi I. og Guðjón 16 hvor, Jón Kr. 12 , aðrir minna. ghj. 1. deild kvenna: UMFN-ÍS 17:38 Aðeins fimm stig í seinni hálfleik „Spila grimmt“ „Ég er eyðilagður maður ef ég sleppi úr helgi í getraun- unum, því ég spila grimmt - er með svona fjóra, fimm seðla á viku af öllum gerðum“, segir næsti spámaður okkar, Sigurður Jóhannsson, formaður knattspyrnuráðs Reynis í Sandgerði. „Tíu réttir lágu um síðustu helgi - þetta er allt að koma. Ég hef nokkrum sinnum fengið smávinninga á undan- förnum árum, hver veit nema sá stóri fari að láta sjá sig. Uppáhaldslið? Toppurinn, auðvitað, Manchester United. Ég hef haldið með þeim frá því ég byrjaði að fylgjast með ensku knattspyrnunni. Vinni? engin spurning. Við munum hampa titlinum í ár. Það er skemmtilegra að hafa smá spennu í deildinni og þess vegna leyfðum við Liver- pool að klóra aðeins í bakkann. Veldi þeirra er lokið. Það er annað lið sem hefur tekið við“, sagði Sigurður Jóhanns- son. ________________________ Valur Ingimundarson, Njarðvík: „Erum í lægð“ „Ég reikna með að við höfum verið heppnir að vinna þennan Ieik, sigurinn hefði getað lent hvorum megin sem var. Njarðvík- urliðið er í talsverðri lægð sem stendur. Það sem skóp sigurinn að mínu mati var að við vorum mun sterkari í fráköstunum ogátti Helgi Rafns stóran þátt í þeirri deild. Isak var maður leiksins að mínu áliti. Ann- ars var leikurinn mjög skemmtilegur, en ekki vel leikinn af leikmönnum Iið- SIGURÐUR INGIMUNDARSON' ÍBK: „Köflótt“ „Það mætti segja að þetta haft verið nokkuð „köflóttur leikur" af okkar hálfu. Við byrjuðum mjög illa og skoruðum ekki körfu fyrr en rúmar 4 mín. voru liðnar af leiknum. Vörnin var nokkuð góð, en sóknirnar voru mistækar á köílum. Annars var þetta ágætur leikur hjá okkur. Engin stórmistök, en heldur engin stórafrek". Heildarspá Sigurðar: Leikir 18. janúar 1986 Birmingham - Everton 2 Coventry - Watford 1 Leicester - Arsenal______ 2 Liverpool - West Ham 1 Luton - Aston Villa 1 Man. United - Nott'm Forest 1 Q.P.R. - Newcastle X Sheffield Wed. - Oxford 1 Southampton - Ipswich 1 Tottenham - Man. City 1 W.B.A. - Chelsea 2 Norwich - Portsmouth X Studeo-spekingar með sjö Það er loks að komast einhver skriður á toppbaráttuna. Þeir Studeo-spekingar Gísli og Björn fengu sjö rétta og eru í efsta sæti ásamt Ragnari Marinós og Finnbirni Agn- arssyni. - pket. l-X-2 l-X-2 Í.S. sigraði Njarðvík með 38 stigum gegn 17 í íþrótta- húsi Njarðvíkur sl. laugar- dag. Leikurinn var nokkuð jafn framan af þangað til um 2 mín. voru eftir af fyrri hálfleik. Þá tóku ÍS-stúlk- urnar leikinn í sínar hendur. I hálfleik var staðan 16:12 ÍS-stúlkunum í hag. Seinni hálfleikinn átti IS. Röð mistaka hjá Njarðvík orsakaði það að IS gekk á lagið og gengu í raun frá Njarðvík í seinni hálfleik. Sóknarleikur Njarðvík- urstúlknanna var í molum, sem sést best á þvi að Njarð- vík skoraði aðeins 5 stig í seinni hálfleik gegn 22 stig- um ÍS. Leikurinn endaði því meðstórsigri ÍS, 38:17. Ekkert gefið eftir í leik UMFN og ÍS. Hafnamenn í Reyni Reynismenn í Sand- gerði hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi knattspyrnuvertíð. 2 af bestu leikmönnum Hafna- liðsins hafa gengið yfir í herbúðir Reynis. Það eru þeir Gunnar Björns- son, sóknarmaðurinn snjalli, og hinn eitilharði Annel Þorkelsson. Auk þeirra munu tveir gamlir Reynismenn leika með liðinu á ný. Það eru þeir Hjörtur Jóhannsson, sem við greindum frá fyrr í haust, og Omar Björnsson, sem lék með Víkingum á siðasta keppnistímabili. Nú, og svo mun hinn nýi þjálfari liðsins, Snorri Rútsson, Vest- mannaeyingur, einnig leika með liðinu, þannig að Reynismenn þurfa ekki að kvíða neinu og verða án efa áfram í toppbaráttunni í 3. deild. - pket.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.