Víkurfréttir - 16.01.1986, Síða 6
6 Fimmtudagur 16. janúar 1986
VIKUR-fréttir
icyWatStofari
íistHíinn
Brekkustig 37 • simi 3688
Njardvík
Ávallt í leiðinni.
Leggjum áherslu á heimilismat
í hverju hádegi.
Kaffi og kökur
Kaffi og brauðtertur
Sjáum einnig um veislur
Þorramatur - Þorrabakkar
Opið frá kl. 8.30-20 alla daga.
Slðnnemar,
pípulögnum
Sérgreinar pípulagna verða kenndará vor-
önn '86, ef næg þátttaka fæst. Þeir sem
áhuga hafa, mæti á fund í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, mánudaginn 20. jan. kl. 20.30.
Aðstoðarskólameistari
Námsflokkar FS verða auglýstir í næstu
Víkur-fréttum.
Mtomnmr i svbdknesJdm
T
Þroskaþjálfi eða fóstra
Þroskahjálp á Suðurnesjum óskar eftir að
ráða forstöðumann leikfangasafns að Suð-
urvöllum 9, Keflavík. Um er að ræða 60%
starf.
Ráðningartími er frá 1. mars 1986.
Laun samkvæmt samningum BSRB og
fjármálaráðherra.
Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 30.
janúar 1986.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður
Daníelsdóttir, forstöðumaður leikfanga-
safns, í síma 3330, og formaður félagsins,
Ellert Eiríksson, í síma 7108.
Stjórn Þroskahjálpar á Suðurnesjum
Tek að mér skattaframtöl
Tek að mér að telja fram fyrir einsaklinga.
Jóhannes Ágústsson, kennari í skattarétti,
sími 1123, Óðinsvellir 5, 230 Keflavík
Orðvar skrifar:
Framboðsmál í Keflavík og Njarðvík
stórt spurningamerki
Nú um helgina mun
ráðast hverjir skipa efstu
sætin á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Keflavík
við næstu bæjarstjórnar-
kosningar. Milli manna er
rætt um að baráttan í tvö
efstu sætin verði milli
Hjartar Zakaríassonar,
Ingólfs Falssonar og Krist-
ins Guðmundssonar, en um
það þriðja berjist þær
stöllur Stella Baldvinsdótt-
ir og Jónína Guðmunds-
dóttir.
Þó þetta leysist nú um
helgina eru framboðsmál-
in eitt stórt spurninga-
merki, því í Keflavík er
vitað að Tómas Tómasson,
Helgi Hólm, Hilmar Pét-
ursson, Guðjón Stefáns-
son, Birgir Guðnason,
Olafur Björnsson og Guð-
finnur Sigurvinsson muni
allir hætta. Og í Njarðvík er
sama uppi^ á teningnum
varðandi Aka Granz og
Olaf I. Hannesson.
Eftir að Guðjón Stefáns-
son ákvað að hætta hjá
Framsókn er mikil óvissa
þar að öðru leyti en því, að
Drífa Sigfúsdóttir verður
sjálfsagt með í baráttunni.
Hjá krötum er í farvatninu
barátta milli Vilhjálms
Ketilssonar og Hannesar
Einarssonar um fyrsta sæt-
ið og eins hvort prófkjör
verði eða ekki.
Ekki er ólíklegt að Jó-
hann Geirdal skjálfi nú eins
og hrísla vegna þeirrar
óvissu, hvort Gylfi Guð-
mundsson muni bjóða fram
óháð framboð eða ekki.
En í hugum margra fylgis-
manna hans er hann fall-
andi stjarna, eftir að hann
komst sem áheyrnarfulltrúi
í bæjarráð, því síðan hefur
lítið sem ekkert heyrst frá
honum.
I Njarðvík er ljóst að Áki
Granz muni ekki gefa kost
á sér, en lítið er vitað um
aðra frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins, nema það
að sjálfur Patton verður
trúlega foringi þeirra. Frá
krötum hefur lítið frést, þó
er vitað að Ragnar Hall-
dórsson hyggur á áfram-
haldandi setu í bæjarstjórn.
Framsóknarmenn stefna
helst á Steindór Sigurðs-
son sem arftaka Ólafs í.
Hannessonar, og ljóst
liggur fyrir að Sólveig Þórð-
ardóttir ætlar sér sæti Odd-
bergs Eiríkssonar á lista Al-
þýðubandalagsins.
Byssuglaðir Bandaríkjamenn
Þó herstöðin hér, meðá
þriðja þús. hermenn, sé
nánast orðin sambyggð
Njarðvík og Keflavík, þá
erum við íslendingar svo
fádæma heppnir að standa
utan við allan styrjaldar-
rekstur og annað þess
háttar vopnaskak, að
undanskildri Landhelgis-
gæslunni auðvitað.
Við kunnum alls ekki
að umgangast byssur og
önnur morðtól með sömu
lotningu og aðrar þjóðir.
Þess vegna veldur það
alltaf þó nokkru fjaðra-
foki þegar fólk stendur
allt í einu andspænis al-
vopnuðum hermönnum,
með brjálæðisglampa í
augunum, mundandi
byssurnar. Fólk er ekki
almennilega búið að átta
sig á því eftir 35 ára her-
setu, að það eru til alvöru
hermenn í herstöðinni.
Sumir trúa því jafnvel að
það séu bara geymdar
púðurkerlingar og kín-
verjar i sprengjugeymsl-
unum þarna efra.
Þó menn séu ekki sam-
mála um hvort_herinn sé
hér til að verja Island eða
Bandaríkin, þá er það
staðreynd að þeir eru hér.
Njarðvíkingar horfa á þá
daglega út um stofuglugg-
ana, akandi, gangandi og
skríðandi í fullum stríðs-
múnderingu. Einn ljóður
er þó á ráði þeirra í þessu
prógrammi, sem margir
kunna ekki að meta, en
það er hvað byssuglaðir
þeir eru utan í landanum.
Islendingar sem starfa á
flugvellinum, standa iðu-
lega frammi fyrir byssu-
hlaupum hermannanna,
sumir álíta þetta hluta af
vinnunni, en aðrir
bregðast ókvæða við.
Menn jafna sig furðu
fljótt á einni og einni
æfingu innan vallar, en
öllu verra er þegar
venjulegt fjölskyldufólk á
sunnudagsrúntinum eða i
líkamsrækt við eggjatöku
úti í móa er allt í einu um-
kringt af öskrandi her-
mannalýð með alvæpni.
Fólkinu er oftast skipað
að rétta upp hendur og
byssum miðað á það,
þangað til íslenska lög-
reglan kemur á staðinn og
losar það úr umsátrinu, -
eftir að hafa sannfært her-
flokkinn um að hér séu
ekki rússneskir njósnarar
á ferðinni. Meira er aldrei
gert í þessum málum.
Flugvallarlögreglan er
sérstaklega þjálfuð í að
taka rólega á hlutunum,
og gera sem minnst úr
árekstrum Islendinga og
varnarliðsins. í Banda-
ríkjunum er mönnum
refsað með háum fjár-
sektum og allt að 5 ára
fangelsi, fyrir að ógna
saklausu fólki með skot-
vopnum.
Ef horft er framhjá
þessu leiðinlega tóm-
stundagamni varnarliðs-
manna, má segja að aldrei
hafí verið prúðara lið hér
á vellinum en núna sl. 2
ár. Orðvar
Iðnþróunarfélag Suöurnesja:
Ráðstefna um nýtingu og
rannsóknir í fiskiðnaði
N.k. sunnudag kl. 13
hefst á Glóðinni ráðstefna
sem Iðnþróunarfélag Suð-
urnesja boðar til um nýt-
ingu og rannsóknir í fisk-
iðnaði. Meðal umræðuefnis
verða veiðar og vinnsla
kúskeljar, nýting á slógi,
fiskfóðursrannsóknir, nýti-
legar fisktegundir og
möguleikar á frekari nýt-
ingu ýmissa skel- og
krabbadýra við ísland.
Frummælendur verða
Finnur Ingólfsson, aðstoð-
armaður sjávarútvegsráð-
herra, Sigurjón Arason,
deildarverkfræðingur hjá
Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins, dr. Jónas
Bjarnason, deildarverk-
fræðingur Rannsóknar-
sjofnunar fiskiðnaðarins,
Ólafur V. Einarsson, úti-
bússtjóri Hafrannsóknar-
stofnunarinnar í Ólafsvík,
og Hrafnkell Eiríksson,
fiskifræðingur hjá Haf-
rannsóknarstofnun. - epj.
VÍKUR-fréttir
vikulega.