Víkurfréttir - 16.01.1986, Síða 13
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 16. janúar 1986 13
Sjúkrahús - Keflavíkurbær - Atvinnumál:
Spurningar - Svör óskast
Sjúkrahúsið
Það kemur fram í blöð-
um öðru hverju, að við Suð-
urnesjamenn þurfum að
byggja langlegudeild við
Sjúkrahúsið. Víst er það
bráðnauðsynlegt. Þótt fyrr
hefði verið.
Er ekki eðlilegasta og
ódýrasta lausnin, að lyfta
þaki nýja Sjúkrahússins og
byggja þriðju hæðjna sem
langlegudeild? Ég veit að í
undirstöðum hússins var
gert ráð fyrir þeim mögu-
leika. Þannig leystu þeir í
Hrafnistu í Hafnarfirði sín
húsnæðismál.
Einhver segir víst að ekki
sé gert ráð fyrir lyftu í nýja
Sjúkrahúsinu, en þann
vanda má leysa með því að
byggja lyftuhús við austur-
enda hússins. Það er ekki
nauðsynlegt að byrja alltaf
upp á nýtt, í öllum peninga-
vandræðunum, og byggja
jafnvel aðeins eina hæð,
sbr. nýju Heilsugæsluna.
Keflavíkurbær
Svo eru það húsnæðis-
vandræði Keflavíkurbæjar.
Ef Arni Samúelsson eign-
ast aftur áður seldan hlut
sinn í Víkurbæjarhúsinu,
væri þá ekki ráð fyrir
Keflavíkurbæ að leita eftir
kaupum á öllu húsinu, fyrir
skrifstofur og stofnanir og
ef til vill fleira á vegum bæj-
arins, enda húsnæðið fjórar
hæðir?
Sérleyfisstöðin gamla
gæti áreiðanlega fengið eitt-
hvert gott hlutverk í þágu
bæjarbúa, t.d. æskulýðs-
hús?
Selja á hlut Keflavíkur-
bæjar í KK-húsinu, enda
nýtist sú eign ekki bæjar-
búum sem skyldi. Það sölu-
verð gengi upp í kaupin á
Víkurbæjarhúsinu. Einnig
þeir peningar sem nú eru
greiddir fyrir leigu á skrif-
stofuhæð Hákonar Krist-
inssonar í Stapafelli, að
Hafnargötu 32.
Hvað var sú leiga há á ár-
inu 1985? - Svar óskast. Þær
hugmyndir, að leigja hús-
næði fyrir skrifstofur í fyrir-
huguðu húsi Keflavíkur-
verktaka við Vatnsnestorg,
eru fáránlegar. Að gera
okkur að leiguliðum til
frambúðar, er nú ekki
merki um stórhug ráða-
manna, enda ákaflega mik-
il deyfð, svo ekki sé meira
sagt, yfir bæjarmálum, -
utan íþróttanna.
Þurfum við ekki að
breyta einhverju og bæta í
okkar stjórnsýslu? Athuga
málin á skrifstofum, fyrir-
tækjum og stofnunum bæj-
arins. Það má ef til vill
fækka starfsmönnum og
hagræða hlutunum til
sparnaðar, eins og víða er
verið að gera annars
staðar. Sem sagt, halda
„Væri ekki ráð fyrir Keflavíkurbæ að leita eftir kaupum á öllu
húsinu fyrir stofnanir og ef til vill eitthvað fleira... ?“ segir grein-
arhöfundur.
Tvö innbrot í íbúðarhús
í Keflavík
Sl. fimmtudag var
brotist inn í íbúð að Há-
teig 21 í Keflavík og
stolið þaðan um 12 þús-
und í peningum. Ertalið
aðeinhver kunnugurhafi
verið þar að verki. Áður
en innbrotið var framið
var hringt nokkrum sinn-
um í síma íbúðarinnarog
spurt eftir ókunnugu
nafni, og er talið að þar
hafi þjófurinn verið að
verki, og hafi hann með
þessu verið að kanna
hvort einhver væri
heima.
Sama dag var brotist
inn í mannlausa íbúð að
Aðalgötu 10 og stolið
þaðan ýmsum húsmun-
um, auk þess sem
skemmdir voru unnar.
Bæði þessi mál eru í
rannsókn og eru allar
upplýsingar vel þegnar
hjá lögreglunni. - eþj.
betur um fjármunina, til
þess að bærinn geti eignast
þak yfír höfuðið, eins og
sagt er, o.fl. sem okkur van-
hagar um.
Atvinnumálin
A þessum árstíma ganga
margir um atvinnulausir.
Öll frystihús lokuð - skipin
sigla með aflann og sum
fara í ,,klössun“. - Þetta er
orðið staðbundið ástand.
Ekkert breytist frá ári til árs
- engin ný atvinnuuppbygg-
ing.
Er það satt að bæjaryfir-
völd hér hafi ekkert viljað
ræða við forráðamenn
Henson-fataverksmiðjunn-
ar, þegar þeir komu hingað
til Keflavíkur til þess að at-
huga aðstöðu og mögu-
leika á stofnun fataverk-
smiðju hér? - Svar óskast.
Þeir hjá Henson fóru síðan
upp á Akranes og stofnuðu
sína verksmiðju þar, -
bæjarbúum þar til mikillar
ánægju og hagsbóta.
Ekkert er gert hér af
hálfu bæjaryfirvalda til
þess að efla atvinnulífið eða
stuðla að stofnun iðnfyrir-
tækja. Mættu ráðamenn
taka þá á Akranesi til fyrir-
myndar, sem vinna mark-
visst að iðnaðaruppbygg-
ingu þar.
Ég skora á bæjarbúa að
láta frá sér heyra um þau
mál sem imprað hefur verið
á hér, svo og önnur málefni
bæjarins.
Rétta aðila bið ég góðfús-
lega um svör. Einnig skora
ég á alla stjórnmálaflokka
hér að hafa sameiginlegan
borgarafund um alla mála-
flokka sem varðar kefla-
víkurbæ og íbúana.
Lifið heil.
Erna Gunarsdóttir
Skrifstofur okkar
eru fluttar að Vesturbraut 10A,
Keflavík.
sss
Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja
Iðnþróunarfélag Suðurnesja
Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja tilkynnin
Skrifstofur okkar eru fluttar að
Vesturbraut 10A, Keflavík.
Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja
hefst föstudaginn 17. janúar.
SKÓBÚÐIN KEFLAVÍK
NYTT A ÞRISTINUM
ÓDÝR MATUR í HÁDEGI
til að taka með heim eða borða á staðnum.
TILBOÐSRÉTTIR VIKUNA 20.- 25. JANÚAR:
Mánudagur 20. jan.: Pönnusteiktur fiskur. kr. 240
Þriðjudagur 21. jan.: Kálbögglar ........ kr. 250
Miðvikudagur 22. jan.. Fiskibollur . kr. 250
Fimmtudagur 23. jan.. Sviðasulta ........ kr. 270
Föstudagur 24. jan.. Pottréttur ......... kr. 295
Laugardagur 25. jan.. Kjötbollur . kr. 280
icTMatStofaii
ÍÍSfHÍÍHH
Brehhustíg 37 • sími 3688
Njardvih
ÁVALLTí
LEIÐINNI.
sssssssssssssssssssssss