Víkurfréttir - 06.03.1986, Page 6
6 Fimmtudagur 6. mars 198fi
VIKUR-fréttir
Háseti óskast á netabát er rær frá Keflavík. Upp- lýsingar gefur Hilmar í síma 3450.
Mánafélagar \MÁNl/ Vetrarnámskeið verður haldið á vegum fé- lagsins og hefst í kvöld, fimmtudaginn 6. mars, með fundi í Framsóknarhúsinu kl. 20.30. Kennari verður Erling Sigurðsson. Kennt verður eingöngu um helgar. Fræðslunefnd og íþróttadeild Mána
a4| Aðalfundur Sálarrannsóknarfélags ■ Suðurnesja 1 verður haldinn mánudag- \inn 17. mars kl. 20.30 í húsi B ■ / félagsins, Túngötu 22, Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar, fjölmennið! Stjórnin
NAMSKEIÐ I
SÖLUSÁLFRÆÐI OG
SAMSKIPTATÆKNl
HAGRÆÐING hf heldur námskeið í sölusál-
fræði og samskiptatækni í Keflavík dagana
15. og 16. mars 1986 kl. 9-16 báða
dagana ef næg þátttaka fæst.
Efni:
Opin og leynd samskipti og mikilvægi þeirra við kaup
og sölu.
Atferlisgerðir og áhrif þeirra á kaup og sölu.
Samtalstækni.
Ákvarðanataka og sölumennska.
Tilboðsgerð.
Samningar og hin ýmsu stig þeirra.
Skipulagning söluferðar.
Sölubinding og sálfræðileg binding sölu.
Persónuleikaþættir og samskiptagerðir, nýting þeirra til
áhrifa í sölu.
hátttakendur:
Námskeiðið er ætlað sölufólki, innkaupastjórum, versl-
unarstjórum, afgreiðslufólki og „andlitum fyrirtækja
útávið".
• Orðvar skrifar: —~
Leikarahæfileikar nauðsynlegir
hjá Kananum
Við höfum búió vió er-
lenda hersetu í landinu í nær
hálfa öld. Vegna mikilvægr-
ar hnattstöðu landsins og
fámennis, verðum við að
sætta okkur við aðild að
hernaðarbandalagi. En við
verðum að gæta okkur á að
sitja ekki uppi með ein-
hvern rumpulýð, sem við-
hefur einhverja nýlendu-
stefnu í samskiptum við
okkur.
Bandaríkin hafa haft
Varnarsamninginn síðan
1951. Samskipti þjóðanna
hafa oft verið með ágætum á
yfirborðinu. En hefur sam-
búðin verið svona góð hjá
þeim sem mest hafa um-
gengist þá, þ.e.a.s. 1000 ís-
lenska starfsmenn varnar-
liðsins? Dæmi eru um hinar
furðulegustu uppákomur í
ráðningum og brottrekstri.
Það þarf mikla leikarahæfi-
leika til að vinna hjá Kan-
anum, íslensku verkstjór-
arnir þarna eru toppleikar-
ar, annars eru þeir ekki
verkstjórar lengi. Þessir
menn eru í erfiðri stöðu, þeir
verða að halda friðinn við
sína yfirmenn, kanann, og
undirmcnn sína, landann.
Dagskipunin í dag getur
verið í algjörri mótsögn við
þá sem kom í gær. Verkstjór-
inn verður að láta sem hann
skilji þetta allt fullkomlega,
liann má ekki gera neinar
athugasemdir, enda er hon-
um ekki borgað fyrir að
liugsa, síðan verður hann að
finna einhverja gáfulega
skýringu fyrir þrælana, sem
vinna upp verkið frá því í
gær með heimspekilegri ró
og æðruleysi. Það má ekki
hamast og enn síður sofna
við vinnuna. Þetta verður
allt að vera mitt á milli.
Eitt sinn réði sig harð-
duglegur íslenskur strákur í
vöruskemmu, hann var
skorpumaður og kunni ekki
á ameríska kerfið. Verk-
stjórinn var í þessu tilfelli
kani. Svo iila tókst til að
stráksi lauk dagsverkinu
fyrir hádegi og eigraði svo
um í reiðileysi það sem eftir
var dags, verkstjóranum til
stórvandræða og hrellingar.
En verkstjórinn var vanur
maður og kunni ráð við því
að þetta endurtæki sig ekki.
Hann setti strákinn á lyft-
ara. I rúmlega hálft ár var
stráksi að flytja sömu kass-
stæðuna fram og til baka um
alla vörugeymsluna. Hann
vissi ekki lengur hvað stæð-
urnar voru búnar að fara
marga hringi í skemmunni,
en þá hægði hann loksins á
sér.
Það getur tekið tíma að
kenna þessum skrælingjum
að vinna. Ein deildin var í
heilt sumar að færa sama
malarbinginn til og frá um
allan völlinn. í upphafi var
hann um 50 bílhlöss, en um
haustið var bingurinn kom-
inn niður í 3 bílhlöss, hitt
hafði troðist í svaðið við
flutningana. Önnur deild á
vellinum er cingöngu skipuð
íslcndingum. Þarhafatopp-
arnir náð svo góðum tökum
á leikarahættinum, að þeir
þykja amerískari en kaninn
sjálfur, og er þá mikið sagt.
Þar er skyida að tala ein-
göngu ensku í vinnunni,
nema í aksjón, þá gleyma
menn sér í hita vinnunnar og
tala bara venjulega
íslensku. Þrátt fyrir þessa
síendurtcknu yfirsjón, og
eins það að taugaveiklun og
magasár hrjái liðið, er
deildin talin ein sú albesta í
heiminum á sínu sviði.
Fljótasta leiðin upp virð-
ingarstigann innan hersins,
er að kæra náungann nógu
oft, það sýnir að kærandinn
er vel á verði og húsbónda-
hollur. Menn leggja oft ásig
hinar erfiðustu raunir til að
standa þann næsta að ein-
hverju bitastæðu. Þeir fela
sig i sorptunnum, vakta
menn sólarhringum saman,
jafnvel eru dæmi um að þeir
hafi aðstoðað landann við
glæpinn til þess að geta kært
hann á eftir. Eitt sinn kvikn-
aði í olíuofni á vinnustað,
allir þustu út úr bragganum,
en allt í einu hljóp einn kan-
inn inn í reykhafið og kom út
skömmu síðar með kæru-
bókina á Islendingana í
hendinni. Þjófnaður frá
hernum þótti svo sjálfsagð-
ur um tíma, að hann var
flokkaður undir hirðusemi.
A þeim vettvangi standa
þjóðirnar nokkuð jafnar, og
vafamál hvort hermennirnir
eða landinn eru skarpari.
Ameríkaninn hefur frá
upphafí litið niður á okkur
Islendinga, og oft ekki að
ástæðulausu, en hann hefur
farið afskaplega fínt í að
láta það í Ijós. Það má nú
vera að þetta hafí oft verið
gagnkvæmt, en þegar hann
las það svo í íslenskum blöð-
um, að landinn væri letidýr,
svikull og þjófóttur skræl-
ingjalýður, ja, þá varð and-
skotinn laus. Hann stein-
hætti að ráða Islendinga í
vinnu og sagði fjölda manns
upp vinnu, án nokkurra
haldbærra skýringa, -nema.
Af hverju að ausa peningum
í þjóð, sem er svo stolt að
hún vill ekki taka við þeim?
Ameríkaninn rekur engan
Hjálpræðisher eða Vetrar-
hjálp þarna á vellinum, held-
ur fullkomna og afar mikil-
væga varnarstöð í vígbún-
aðarkapphlaupinu, og það
fyrir útsöluprís. Orðvar
Leiðbeinendur:
Bjarni Ingvarsson, skipulags og vinnusálfræðingur.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 91-28480 milli
kl. 13 og 17 alla virka daga til 13. mars 1986.
E
HAGRÆDINGhí
starfsmenn stjórnun skipulag
Rólegt hjá lögreglunni
Síðasta vika:
Að sögn varðstjóra hjá
lögreglunni í Keflavík var
síðasta vika mjög róleg, t.d.
var aðeins tilkynnt um fjög-
ur umferðaróhöpp og var
þar aðeins um eignatjón að
ræða. Jafnmargar tilkynn-
ingar bárust um innbrot og
þjófnaði í þessari sömu
viku. Það fyrsta var næst
síðasta sunnudag, er brotist
var inn í trillu er stóð á
kambinum í Njarðvík, og
úr henni stolið kompás o.fl.
Það var á föstudag stolið
útvarpstæki frá Birkiteig 33
í Keflavík, á laugardag var
stolið fólksbílakerru fyrir
utan Faxabraut 42 og hjól-
koppum (heilum) af bif-
reið á Vatnsnesvegi.
Síðdegis á þriðjudag í síð-
ustu viku kom upp eldur í
nylon fiskitrolli bak við
Atlantor í Keflavík og
komst eldurinn í lúgu fyrir
frystiklefa á húsinu. Var
slökkviliðið kvatt út til að
slökkva eldinn. Varð tjón
óverulegt, þar sem húsið er
ekki í notkun.
Þá brenndist maður lítil-
lega út frá gufu úr vatns-
kassa á bifreið á Grinda-
víkurvegi sl. sunnudag.
epj.