Víkurfréttir - 06.03.1986, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 6. mars 1986
VÍKUR-fréttir
Afgreiösla blaösins er að Vallargötu 14
2.hæð, Keflavík. Sími 4717.
Raflagnavinnustofa
Sigurðar Ingvarssonar
Garði - Sími 7103, 7143
SIEMENS-raftæki
Ath: Eldavélar á kr. 18.950.
Þvottavélar - Tauþurrkarar - Rakatæki
Allt í eldhúsið.
Einnig útvörp, útvarpsklukkur,
hárblásarar o.fl.
Flugleiðir hf.
hafa hug á að ráða starfsfólk í hleðsludeild
félagsins á Keflavíkurflugvelli, þ.e. „load-
control“.
Starfssvið:
Gerð hleðsluskráa fyrir flugvélar ásamt
öðrum hliðstæðum skrifstofustörfum.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu fé-
lagsins á Keflavíkurflugvelli.
FLUGLEIÐIR HF.
Hitaveita
Suðurnesja
óskar eftir að ráða tvo starfsmenn.
Starf þeirra verður aðallega fólgið í eftir-
liti og viðhaldi innanhússkerfa veitunnar.
Æskilegt væri að umsækjendur hefðu
einhverja reynslu í pípulögnum.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Hitaveitu Suður-
nesja, Brekkustíg 34-36, Njarðvík, og
skulu umsóknir berast þangað eigi síðar
en 14. mars 1986.
Hitaveita
Suðurnesja
óskar eftir að selja húseign sína Gerðaveg
11 í Gerðahreppi. Hér er um að ræða
24.86% af fasteigninni Gerðaveg 11 ásamt
tilheyrandi hlutdeild í leigulóðarréttindum
hússins, en lóðin er óskipt 4.170 m2 að
stærð. Hinn seldi eignarhluti er í norðvest-
urenda hússins, 104,4 m2 að stærð.
Tilboð óskast send skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja, Brekkustíg 34-36, Njarðvík,
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar, og
skulu þau berast eigi síðar en 14. mars
1986. í tilboðunum skal greina frá tilboðs-
verði og greiösluskilmálum.
Hitaveitan áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna öllum.
Sjálfstæðisflokkurinn:
Prófkjör ákveðin í Sandgerði,
Grindavík og Njarðvík
Ákveðið hefur veri^ að
viðhafa prófkjör á vegum
Sjálfstæðisflokksins fyrir
sveitarstjórnarkosningarn-
ar að vori í Sandgerði,
Grindavík og Njarðvík.
Verður prófkjörið á síðast-
nefnda staðnum haldið
sameiginlega með Alþýðu-
flokki og Framsóknar-
flokki. Fer það fram helg-
ina 15.-16. mars n.k., en þá
fer einnig fram prófkjör
Sjálfstæðismanna í Grinda-
vík. En um dagsetningu
prófkjörsins í Sandgerði er
blaðinu ekki kunnugt um.
Þeir sem vitað er að gefa
kost á sér í þessi prófkjör
eru eftirtaldir:
Sandgerði: Alma Jóns-
dóttir, Guðjón Ólafsson,
Jóhann Guðbrandsson,
John E.K. Hill, Jón Erl-
ingsson, Ragna Proppé,
Reynir Sveinsson, Sigurður
Bjarnason, Sigurður Jó-
hannsson og Svanbjörg Ei-
ríksdóttir.
Grindavík: Eðvarð Júlí-
usson, Guðmundur Kristj-
ánsson, Stefán Tómasson,
Ágústa Gísladóttir,
Magnús Ingólfsson, Ólafur
Guðbjartsson, Ragnar
Ragnarsson, Kristinn
Benediktsson og Gísli Þor-
láksson.
Njarðvík: Árni Ingi Stef-
ánsson, Guðbjört Ingólfs-
dóttir, Guðmundur Sig-
urðsson, Ingi Gunnarsson,
Ingólfur Bárðarson, Jósef
Borgarsson, Kristbjörn Al-
bertsson, Magdalena Ol-
sen, Margrét Sanders,
Sveinn Eiríksson og Valþór
Jónsson Söring. - epj.
Tónleikar
Karlakórinn Hreimur,
sem skipaður er söngmönn-
um úr nokkrum hreppum
Þingeyjarsýslu auk Húsa-
víkur, hyggur á söngför til
Suðvesturlands dagana 7,-
9. mars. Það er í fyrsta
skipti sem Hreimur syngur
sunnan jökla. Áður hefur
kórinn sungið víða um
Norðurland og sumarið
1984 fór hann til Færeyja
og hélt þar tónleika víða,
m.a. í Norðurlandahúsinu,
við frábærar undirtektir.
Fyrstu tónleikarnir
verða í Félagsbíói í Kefla-
vík, föstudaginn 7. mars kl.
20.30. Laugardaginn 8.
mars syngur kórinn í Lang-
holtskirkju kl. 15 og sama
dag að Fólkvangi á Kjalar-
nesi kl. 20.30.
Söngstjóri er Úlrik
Ólason, skólastjóri Tón-
listarskóla Húsavíkur. Ein-
söngvarar með kórnum eru
bræðurnir Baldur og Bald-
vin Kr. Baldvinssynir.
Undirleik annast Ragnar L.
Þorgrímsson, tónlistar-
kennari að Laugum.
Lúðrasveitar-
bingó í Stapa
Lúðrasveit Tónlistarskól-
ans í Njarðvík heldur bingó
í Stapa, sunnudaginn 9.
mars kl. 16, til styrktar fyr-
irhugaðri ferð til Skotlands
í júlí. Eru sveitarmeðlimir á
fullu að reyna að fjármagna
ferðina og hafa þeir selt
blóm í vetur og áætlað er að
halda stórhátíð 1. maí á
torginu í Njarðvík, með
ýmsum uppákomum og
varningi.
Aðstandendur lúðra-
sveitarinnar skora á fólk að
styðja gott málefni. Á
bingóinu verða margir
góðir vinningar, þ.á.m. ein
utanlandsferð og helgar-
pakki til Akureyrar.
(fréttatilkynning)
Fíkniefni
fundust í
Grindavík
Sl. mánudag voru tveir
starfsmenn í fiskvinnslu-
stöð í Grindavík handtekn-
ir með fíkniefni undir hönd-
um. Við nánari leit fundust
nokkur grömm af fikniefn-
um.
Annar mannanna hefur
áður komið við sögu fikni-
efnalögreglunnar, en hinn
ekki. - epj.
Bílasala í alfaraleið
^ JíLASALA JrYNLEIFS
Vatnsnesvegi 29A - Kellavik ■ Simar: 1081. 4888
NAUÐUNGARUPPBOÐ
sem augl. hefur veriö í Lögb.bl. áfasteigninni Birkiteigur 1,
neöri hæö og kjallari í Keflavík, þingl. eign Unnars Magnús-
sonar o.fl., fer fram á eigninni sjálfri aö kröfu Inga H. Sig-
urössonar hdl., miövikudaginn 12.3. 1986 kl. 11.00.
Bæjarfogetinn í keflavík
NAUÐUNGARUPPBOÐ
sem augl. hefur veriö í Lögb.bl. á fasteigninni Hringbraut
59, rishæö í Keflavík, þingl. eign Björns Marteinssonar, fer
fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhjálms H. Vilhjálmssonar
hdl. og innheimtumanns ríkissjóðs, miðvikudaginn 12.3.
1986 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn i keflavlk
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annaö og síðasta á fasteigninni Miðtún 1, efri hæð i Keíla-
vík, talin eign Guömundar Bjarna Daníelssonar, fer fram á
eigninni sjálfri aö kröfu Skúla J. Pálmasonar hrl., Veðdeild-
ar Landsbanka (slands, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl.,
Ævars Guðmundssonar hdl., bæjarsjóös Keflavíkur og
Brunabótafélags (slands, miðvikudaginn 12.3. 1986 kl.
14 30 Bæjarfógetinn í Keflavik
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annað og síðasta á hluta Sigurðar Björgvinssonar í fast-
eigninni Hringbraut 64, efri hæð í Keflavík, þingl. eign Sig-
urðar Björgvinssonar og Guömundar Björgvinssonar, fer
fram á eigninni sjálfri að kröfu Róberts Á. Hreiöarssonar
hdl., miðvikudaginn 12.3. 1986 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn I Keflavik