Víkurfréttir - 06.03.1986, Page 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. mars 1986 15
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Tölvu og 80 diskettum stolið
Tveggja mánaða vinna nemenda fer í súginn
Tölvu af gerðinni
Commodore PC 10 ásamt
hugverkum nmenda á 80
diskettum, í eigu Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja,
var stolið úr skólanum í síð-
ustu viku. Þjófnaðurinn
uppgötvaðist þegar kenn-
ari úr tölvudeildinni kom í
kennslustofuna laust fyrir
hádegi sl. fimmtudag að
loknum starfsdögum.
Engin merki sáust um inn-
brot og engar vísbendingar
er að hafa um hver var
þarna að verki, en kvöld-
vaka var kvöldið áður sem
lokapunktur á starfsdög-
unum. Er umsjónarkenn-
ari fór á brott um kvöldið
var stofan læst, en er komið
var að morguninn eftir var
hurð stofunnar ólæst.
„Skaðinn er mikill fyrir
skólann og þá ekki síður
fyrir nemendurna, því þess-
ar diskettur höfðu að
geyma heimaverkefni eða
glósur nemendanna, sem
þau ætluðu að nota fyrir
prófin, og það verður erfitt
fyrir þau að rifja þetta upp
aftur“, sagði Ólafur Sig-
urðsson, tölvuumsjónar-
maður skólans, í viðtali við
Víkur-fréttir. „Þessi þjófn-
aður á diskettunum kemur
því í sjálfu sér ekki öðrum
að gagni“, sagði Ólafur.
„Þá er það einkennilegt, að
bæði núna og í haust, þegar
prentaranum var stolið, var
um að ræða hluti úr sama
horni stofunnar. I þessari
sömu stofu voru margar
tölvur, þar af tvær af þess-
ari gerð, og voru þær báðar
glænýjar eða tveggja mán-
aða, og í útliti voru þær eins
en sú sem stolið var, var þó
hljóðlátari en hin“.
Um þennan þjófnað
sagði Hjálmar Arnason,
skólameistari:
„Þetta er mikill skaði
fyrir skólann og nemend-
urna. Margir liggja undir
grun og því er þetta rot-
högg á siðgæðið í skólanum
og kemur alls konar gróu-
sögum og kviksögum af
stað. Er það slæmt fyrir allt
skólastarfið og andann í
skólanum. Þá er þetta
bagalegt fyrir nemendurna,
enda fer þarna tveggja
mánaða vinna þeirra í súg-
inn. Við skulum því vona
að þetta upplýsist fljótlega.
Víkur-fréttir taka undir
þessi lokaorð skólameist-
ara og skora á almenning
Ólafur Sigurðsson heldur á kassa
eins og þeim sem slolið var og inni-
héll kassetturnar 80.
að veita upplýsingar um
málið, ef einhver býr yfir
slíku, og eins til þeirra sem
hér voru að verki, að þeir
skili gripnum og diskettun-
um. Munu Víkur-fréttir
fúslega taka við upplýsing-
um urn málið. - epj.
Sams konar talva og sú sem stolið var.
Starfsfólk Aðalverktaka,
athugið
Sölufólk og fararstjórar ÚTSÝNAR munu veita
ykkur almenna ferðaþjónustu og upplýsingar í
húsakynnum Aðalverktaka á Keflavíkurflug-
velli, fimmtudaginn 6. mars (ídag) kl. 18.15-20.
Verið velkomin.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN
ÚRSLITALEIKUR 3. DEILDAR
ÍBK-TÝR
VP
ii
n.k. laugardag kl. 14 í
íþróttahúsi Keflavíkur.
Tvö efstu lið 3. deildar í
síðasta leik
íslandsmótsins.
Bikarinn afhentur
í leikslok.
KEFLVÍKINGAR -
4
éfm
Elvar Sigurðsson,
stórskytta
""S"Ær*5 SUÐURNESJAMENN!
Theódór, þjálfari
Hvað gerir Freyr
gegn Tý?
Komið og hvetjið Kefivíkinga til sigurs í þessum mikil-
væga leik. - Eftir leik ÍBK og Týs leika ÍBK og HK í 2. deild kvenna.
ABÓT
Á VEXTI
ÚTVECSBANKINN
Hafnargötu 60 - Keflavík
Verslun í sókn!
NONNI M Landsbanki
og Mi íslands ÆBanki allra landsmanna
BUBBI Hringbraut Hólmgarði Keflavíkurflugvelli Sími2170
mnm
SPARISJÓÐURINN