Víkurfréttir - 06.03.1986, Blaðsíða 17
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. mars 1986 17
SIGUR A
SEKÚNDU
UMFN vann ÍBK tvívegis í úrslita-
keppni KKÍ og leikur í úrslitum
Árni Lárusson _ tryggði
UMFN sigur á ÍBK, er
hann skoraði sigurkörfuna
þegar aðeins ein sekúnda
var til leiksloka í leik lið-
anna sl. föstudagskvöld.
Leikurinn endaði með sigri
UMFN 75:73. Staðaníhálf-
leik var 43:42 ÍBK í hag.
Lokasekúndurnar voru
æsispennandi. 15.sek.voru
til leiksloka þegar ÍBK
skoraði og komst þar með
einu stigi yfir, 73:72.
UMFN fór í sókn en bolt-
inn fór útaf, innkast og að-
eins ein sekúnda til leiks-
loka. Þeir hentu knettinum
inná til Árna Lárussonar,
hann tók skot utan þriggja
stiga línunnar og hitti beint
í gegnum körfuhringinn.
Njarðvíkur sigur í höfn og
þar að auki úrslitaleikur-
inn.
„Auðvitað var þetta
heppni, en þetta er hægt.
Aðalatriðið var að fá bolt-
ann og ná góðu skoti, það
skipti engu máli hvar. Eg
sá að Jón Kr. hörfaði frá
mér til þess að hafa gætur á
Kristni. Þetta varð til þess
að ég varð al veg frír, ég fékk
svo boltann og skaut.
Maður hefur lesið um að
svona körfur hafi oft verið
skoraðar í bandaríska NBA
körfuboltanum. Þessvegna
var ég óhræddur við þetta.
Ég var viss um að hitta ef ég
fengi boltann", sagði Ámi
Lárusson um þessa ótrú-
legu sigurkörfu sína, sem
kom UMFN í úrslitaleik
Úrvalsdeildarinnar. UMFN
vann fyrri leikinn með
sama mun í Njarðvík, 75:73
einnig í æsispennandi leik.
Það var ÍBK sem leiddi
fyrri hálfleikinn að mestu
leyti. Þegar um 10 mín.
voru liðnar af leiknum yfir-
gaf Valur Ingimundarson
völlinn og kom ekki meira
við sögu í leiknum sökum
veikinda. Undir lok fyrri
hálfleiks tók UMFN foryst-
una og hélt henni þangað til
Jón Kr. kom IBK yfir með
glæsilegu skoti rétt innan
við miðju, þegar örfáar sek.
voru til hálfleiks. Staðan í
hálfleik því_ eins og áður
sagði 43:42 ÍBK í vil.
Seinni hálfleikur ein-
kenndist af mikilli tauga-
spennu í báðum liðum, sem
lýstu sér í slæmum mistök-
um á báða bóga.
Njarðvíkingar byrjuðu
betur og skoruðu l4 stig á
móti 7 stigum IBK. En
ÍBK-strákarnir náðu góð-
um spretti þegar um fimm
mín. voru til leiksloka og
komust aftur yfir, 67:63.
UMFN náði þó að jafna
67:67. Hér eftir skiptust lið-
in á að skora þar til Þor-
steinn Bjarnason kom IBK
í 73:72, en Jjað dugði
skammt, því Árni Lárus-
son sá til þess að UMFN fór
með sigur af hólmi, eins og
áður hefur verið lýst. - gjó.
Körfuknattleikur unglinga:
Naumur sigur UMFN á ÍBK
í íþróttahúsinu í Njarð-
vík var um helgina 22.-23.
feb. 3. umferð hjá 5. fl. A-
riðli í körfubolta. Liðin sem
kepptu voru UMFN, ÍBK,
ÍR, Haukar og UMFG.
Skemmtilegasti leikurturn-
eringarinnar var án efa leik-
Ungur Njarðvíkingur skorar gegn ÍR
Ljósm.: mad.
ur ÍBK og UMFN, sem þeir
síðarnefndu sigruðu með
tveimur stigum, eftir fram-
lengingu. Haukar sigruðu í
riðlinum í þetta skipti, en
UMFG féll niður í B-riðiI.
Síðasta turneringin hjá
A-riðli verður í Seljaskóla
helgina 22.-23. mars. Þá
ræðst hverjir verða Islands-
meistarar 5. flokks í körfu-
knattleik. Víst er að UMFN
og Haukar muni berjast um
titilinn, einnig eru Keflvík-
ingar til alls líklegir.
Úrslit leikja í turnering-
unni voru annars þessi:
UMFG - Haukar ... 24:54
UMFN - ÍR ......... 39:26
ÍBK - Haukar ...... 24:40
UMFG - ÍR ......... 30:35
ÍBK - UMFN ........ 33:35
Haukar-ÍR ......... 41:27
UMFN - UMFG ... 32:20
ÍBK - ÍR .......... 24:19
UMFN - Haukar ... 29:49
ÍBK - UMFG......... 45:29
mad.
l-X-2 l-X-2
Guðjón Skúlason lætur skot ríða af í eiknum gegn UMFN. Jóhannes og Helgi koma eng- um vörnum við. Ljósm.: mad.
r „Areiðanlega svakalega svekkjandi“ „Úrslitaleikurinn leggst vel í mig, sérstak- lega vegna þeirrar hvíld- ar sem leikmenn fá núna fyrir úrslitaleikinn. Haukana hræðist ég ekkert frekar en Valsmenn, við stefnum á sigur", sagði Brynjar Sigmundsson, liðsstjóri UMFN, eftir leik þeirra við ÍBK sl. föstudag. „Ég er mjög ánægður með veturinn, sérstak- lega vegna þess að við misstum góða leikmenn í byrjun, en þeir hafa skilað sér aftur í ungum og efnilegum leikmönn- um, sem hafa staðið sig mjög vel í vetur, eins og t.d. Teitur, með sínar stáltaugar. Ekki vildi ég vera í sporum Keflvík- inganna, það er alla vega hræðilegt að vera með unninn leik og tapa svo á einni sekúndu. Þetta á ekki að vera hægt, en þeir gleymdu einuin manni, og hann hitti. Áreiðanlega svaka- lega'svekkjandi“. - gjó.
„Everton vinnur deildina“
„Ég hef ekki tippað mikið í vetur, hef verið með af og til
og þá alltaf verið með lítil kerfi", segir næsti spámaður
okkar, Gunnar Már Eðvarðsson, starfsmaður hjá Kefla-
víkurverktökum og mikill áhugamaður enska boltans.
„Það er svo sem ekki spennandi að vera að reyna ein-
hver kerfi þegar frestanir eru í hverri viku. Það dregur ör-
ugglega pr hjá þeim sem eru með stór kerfi vikulega.
Unnið? Ég hef nokkrum sinnum unnið smávinninga, en
ekkert í vetur.
Uppáhaldslið? Það er Liverpool. Ég er ekki mjög á-
nægður með frammistöðu þeirra í vetur, en það er kannski
ekki hægt að ætlast til að þeir séu alltaf á toppnum. Ég
vona þó að þeir vinni aðra bikarkeppnina. Everton vinnur
deildina“, sagði Gunnar Már Eðvarðsson.
Heildarspá Gunnars:
Leikir 8. mars:
Chelsea - Man. City .... 1
Ipswich - Nott. Forest .. 1
Leicester - Coventry ... 2
Bradford - Blackburn . X
Cr. Palace - Middlesbro 1
Grimsby - Oldham .... X
Leeds - Huddersfíeld ... 1
Portsm. - Barnsley .... 1
Shrewsbury - Fulham .. 2
Stoke - Hull .......... 1
Sundrland - Charlton .. 1
Wimbledon - Norwich . X
Enn og aftur 3 réttir
Stórspekingurinn Guðmundur Matthíasson gerði ekki
stóra hluti á síðasta seðli frekar en 3 spámenn á undan
honum. Var með 3 rétta. Kannski að Gunnari takist að
koma með örlitla tilbreytingu í árangri spekinga. - pket.