Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.1986, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 03.04.1986, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 3. apríl 1986 VÍKUR-fréttir Skrifstofustarf - Keflavík Laust er starf á skrifstofu embættisir.s í Keflavík. Starfsreynsla æskileg. Laun skv. launakerfi BSRB. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast send undir- rituðum fyrir 15. apríl n.k. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu F ermingarskeytasala Fermingarskeytasala er nú snar þáttur í fjáröflun ýmissa æskulýðsfélaga. Vert er að minnast þess, að á því sviði var Skátafé- lagið Heiðabúar í Keflavík frumkvöðull og vann þar merkt brautryðjendastarf. Enn sem fyrr er skeyta- salan megin þátturinn í fjáröflun Heiðabúa - sá þáttur, sem gert hefur Heiðabúum kleift að starfa um hartnær hálfrar aldar skeið, án þess að hafa notið opinberra styrkja, nema aðeins til örfárra afmark- aðra verkefna. Ég vil hvetja Keflvíkinga og aðra Suðurnesjamenn til að láta skátana njóta verka sinna og beina fermingar- skeytaviðskiptum til þeirra. Móttaka fermingar- skeyta Heiðabúa er í Skáta- húsinu, Hringbraut 101, alla fermingardagana kl. 10-19 og í verslun Nonna& Bubba við Hólmgarð kl. 13-18. í ár hefur verið tekin upp ný þjónusta: Aldraðir og Frumkvæði Brunabóta- félagsins er fólgið í því, að í stað þess að bjóða mark- aðnum eins og félögin hafa gert til þessa hefðbundnar tryggingagreinar með samræmdum skilmálum og iðgjöldum, þá snýr félagið sér beint að hverjum einstökum tryggingataka og spyr hann: Hvaða áhættur ert þú að taka í þínum rekstri og þínu lífi? Þegar vátryggingarþörfin liggur fyrir eftir sameiginlega skoðun áhættunnar er pakkinn sniðinn með samsettum tryggingum í samræmi við vátryggingaþörfina. Helstu einkenni pakkans eru öruggari vátryggingarvernd, einfaldari framkvæmd vátryggingarinnar og hagstæðari iðgjöld. Að ógleymdu höfuðeinkenninu: Þú sníður þinn pakka sjálfur. Brunabótafélagið hefur fullgert og sett á markað með mjög góðum árangri pakka fyrir: O sveitarstjórnir O verslunarfyrirtæki O iðnaðarfyrirtæki Nú býður félagið einnig pakka fyrir: O fjölskyldur O bændur O ýmsir sérpakkar Frá Brunabót BtumiBðTiifaticKuintK UMBOÐ, KEFLAVÍK-NJARÐVÍK Hafnargötu 58 - Keflavík - Simar 3510, 3511 sjúkir eiga þess nú kost að fá skáta í heimsókn með sýnishorn af skeytaeyðu- blöðum, til að taka á móti pöntunum. Aðeins þarf að hringja í Soffíu í síma 1709 fyrir hádegi eða í Elsu í síma 4322 eftir hádegi alla virka daga, og ákveða tíma. Skátarnir eru með fjöl- breytt úrval eyðublaða. Nú um þessar fermingar var prentað nýtt eyðublað með mynd eftir Astu Amadótt- ur og ný útgáfa af blóma- skeyti eftir Elínrósu Eyj- ólfsdóttur, bæði mjög falleg. Björn Stefánsson Vímulaus æska Þriðjudaginn 8. apríl kl. 20.30 bjóða Foreldra- og kennarafélög Myllubakka- og Holtaskóla til almenns fundar foreldra af Suður- nesjum um vímulausa æsku. Fundurinn verður haldinn í Holtaskóla. Frummælendur verða Þórarinn Tyrfingsson, yfir- læknir hjá S AA, Oskar Þór- mundsson lögreglufulltrúi, og Bogi Arnar Finnboga- son formaður Sambands foreldra- og kennarafélaga í grunnskólum Reykjavík- ur._ Á eftir verða pallborðs- umræður þar sem öllum er gefinn kostur á að ræða málin. (Fréttatilkynning) Stolnir netadrekar sóttir um borð í bát Fyrir all nokkru var netadrekum stolið frá Ásgeiri hf. í Garði. Hafði ekkert spurst til þeirra, þar til á laugardag að þeirsáust um borð í bát og lét lög- reglan sækja þá, þar sem umræddur bátur var við bryggju í Sandgerðishöfn. epj. Málverkum stolið Laugardaginn fyrir páska bárust lögreglunni kvart- anir vegna ölvaðs manns viðHjallaveg 11 íNjarðvík. Síðan var sami maður grun- aður um að hafa tekið ófrjálsri hendi fjögur mál- verk eða teikningar og eina videospólu úr umræddu fjölbýlishúsi, og fannst þetta í fórum hans. - epj.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.