Víkurfréttir - 03.04.1986, Blaðsíða 13
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 3. apríl 1986 13
IBK 30 ára:
Fyrsta stjórn ÍBK heiðruð og þeim sem hana skipuðu afhentir sérstakur afmælisfáni. Á myndinni eru
f.v.: Magnús Haraldsson, sem tók við fánanum f.h. Páls Jónssonar, Þórhallur Guðjónsson, Hörður
Guðmundsson og Hafsteinn Guðmundsson. Lengst til hægri er Ragnar Marjnósson form. IBK. Auk
Páls vantaði Heimi Stígsson á myndina, en hann var einnig í fyrstu stjórn IBK.
Glæsileg afmælishátíð
íþróttabandalag Kefla-
víkur hélt upp á 30 ára af-
mæli sitt með glæsilegri af-
mælishátíð, fimmtudaginn
28 mars sl. (skírdag), en
hinn eiginlegi afmælisdag-
ur bandalagsins var 18.
mars sl.
I tilefni af afmælinu var
bæjarbúum boðið í Iþrótta-
hús Keflavíkur, en þar var
boðið upp á kaffi og kökur,
auk þess sem þar var til
sýnis virðulegt safn verð-
launagripa og annarra
hluta er tengjast á einn eða
annan hátt sögu IBK. Þó
nokkrir tóku til máls, þar á
meðal Sveinn Björnsson,
forseti ÍSÍ, Pálmi Gíslason,
form. UMFÍ, og Tómas
Tómasson, forseti bæjar-
stjórnar Keflavikur. Einnig
tók til máls formaður ÍBK,
Ragnar Marinósson. Hann
afhenti fyrstu stjórn ÍBK,
þeim Hafsteini Guðmunds-
syni, Heimi Stígssyni, Páli
Jónssyni, Þórhalli Guð-
jónssyni og Herði Guð-
mundssyni, stóra og glæsi-
lega afmælisfána sem
aðeins voru framjeiddir
fyrir þá, UMFÍ, ÍSÍ og
Keflavíkurbæ. Einnig sagði
Ragnar frá áformum um að
helga afmælisárinu svo-
kölluðum Keflavíkurleik-
um, en það mun verða mjög
umfangsmikil íþróttahátíð,
þar sem keppt verður í vel
flestum íþróttagreinum.
íslandsmeistarar ÍBK
fengu viðurkenningu fyrir
góðan árangur en það voru
3. fl. kvenna í innanhúss-
knattspyrnu, 3. fl. karla í
körfuknattleik og meistara-
flokkur karla í handknatt-
leik.
Að lokum var ÍBK
afhentur bikar sem gjöf til
bandalagsins frá KFK og
skyldi verða farandbikar
sem veittur verði réttkjörn-
um íþróttamanni/konu
Keflavíkur ár hvert. - gjó.
Helgi Hólm var kynnir.
Hér er Pálmi Gíslason, form. UMFÍ, að afhenda formanni ÍBK
bikar frá Ungmennafélagi íslands.
«****>&$
Glæsilegt verðlaunagripasafn vakti mikla athygli.
Ljósmyndir: pket.
Þrátt fyrir annir í fcrmingarmyndatökum hjá Heimi Stígssyni, gat
hann komið skömmu eftir að fyrsta stjórn ÍBK var hciðruð. Við
birtum þess vegna sér mynd af honum hér þar sem hann tekur við
fánanum úr hendi Helga Hólm.
Fyrrum knattspyrnusnillingar ÍBK, f.v.: Hörður Ragnarsson ásamt
Einari Magnússyni og frú, virða fyrir sér verðlaunagripi ÍBK.
mælisgjöf frá ÍSÍ.
Um 300 gestir sóttu ÍBK-daginn og þáðu rjómatertur og kaffi.
Verslunin Nonni & Bubbi gaf einnig 300 hyrnur af Svala í tilefni
dagsins. Hér eru tveir ungir IBK-félagar að bragða á góðgætinu.