Víkurfréttir - 03.04.1986, Page 12
12 Fimmtudagur 3. apríl 1986
VÍKUR-fréttir
r
Innanhússmeistaramót Islands í sundi:
r
7 Islandsmeistara-
titlar hjá UMFN
Innanhússmeistaramót
íslands í sundi fór fram í
Sundlaug Vestmannaeyja
dagana 21.-23. mars sl.
Átta keppendur frá UMFN
tóku þátt í mótinu og stóðu
sig mjög vel. Alls unnu
Njarðvíkingar sjö íslands-
meistaratitla. Helsti árang-
ur sundfólks UMFN var
þessi:
sek. Eðvarð sigraði einnig í
100 m bingusundi á nýju Is-
landsmeti, 1:05.28 mín.
Þess má geta að bringu-
sundið er aukagrein hjá
honum, en Eðvarð hefur
æft sl. tvo mánuði sérstak;
lega fyrir bringusundið. I
100 og 200 m baksundi sigr-
aði Eðvarð nokkuð auð-
veldlega og var við sína
Eðvarð Þór Eðvarðsson setti 2 íslandsmet í Vestmannaeyjum.
Eðvarð Þór Eðvarðsson
sigraði í 200 m bringusundi
á nýju glæsilegu Islands-
meti, 2:20.72 mín., og bætti
eldra metið um tæpar fjórar
bestu tíma.
Jóhann Björnsson
sigraði í 200 m flugsundi á
sínum langbesta tíma,
2:15.07 mín., og bætti tíma
Jóhann Björnsson sigraði í 100 og 200 m flugsundi og stórbætti
tíma sinn í 200 m.
íslandsmeistaramótið í júdó:
Góður árangur
Suðurnesjamanna
-Magnús og Sigurður á verð-
launapall á Norðurlandamótinu
Fyrri hluti íslandsmóts-
ins fór fram laugardaginn .
1. mars sl. í íþróttahúsi
Kennaraháskólans. Keppt
var í þyngdarflokkum karla
og voru þrír Suðurnesja-
menn meðal keppenda.
Ómar Sigurðsson, UMFK,
keppti í -78 kg. flokki og
sigraði nokkuð örugglega
eftir úrslitaviðureign við
Halldór Hafsteinsson, Ár-
manni. Magnús Hauksson,
UMFK, keppti i -86 kg.
flokki og var öruggur sigur-
vegari, vann allar glímur
sínar á ,,ippon“(10 stig).
Sigurður Hauksson,
UMFG, keppti í + 95 kg.
flokki og sigraði eftir
jafnglími við Bjarna Friðriks
son, Á. Sigurði var dæmdur
sigur, með dómaraúrskurði
vegna meiri sóknar.
Seinni hluti mótsins fór
síðan fram I4. mars sl. og
var þá meðal annars keppt í
opnum flokki karla. Þeir
Magnús Hauksson og Sig-
urður Hauksson, voru
meðal keppenda. Þeirunnu
báðir sína riðla örugglega
og komust áfram í undan-
úrslit. í undanúrslitum
keppti Magnús við Bjarna
Friðriksson, Byrjaði Magn-
ús glímuna af hörku og náði
að fella Bjarna á YUGO (5
stig) en náði ekki að fylgja
eftir þessari byrjun og varð
að sætta sig við tap. Sigurð-
ur glímdi við Kristján Valdi-
marsson, Á, í undanúrslit-
um vann örugglega á
,,ippon“. Glímdu þeir Sig-
urður og Bjarni þvítil úrslita
og var þar hörkuglíma. Sig-
urður felldi Bjarna á YUGO
(5 stig) en fékk dæmt á sig
refsistigið CHUI (-5stig),
fyrir ólöglega vörn, þegar
glíman var á enda. Voru þeir
því jafnir að stigum en
Bjarna var dæmdur sigur,
með dómaraúrskurði,
vegna meiri sóknar.
Sem sagt mjög góð upp-
skera Suðurnesjamanna á
mótinu. Þrjú gull, eitt silfur
og eitt brons.
Þeir Magnús og Sigurður
kepptu um sl. helgi með
landsliðinu á Norðurlanda-
mótinu í júdó. Komust þeir
báðir á verðlaunapall. Sig-
urður Hauksson varð annar
í opnum flokki og þriðji í-95
kg. flokki. Magnús Hauks-
son varð annar í sínum
þyngdarflokki, -86 kg.
sinn um 8 sek. Jóhann sigr-
aði einnig í 100 m flugsund-
inu í mjög jafnri keppni,
fékk tímann 1:00.77 mín.
Annar maður í sundinu
fékk tímann 1:00.88 mín.
Að lokum kom svo sigur
í 4x100 m fjórsundi karla
og þar með sjöundi Islands-
meistaratitillinn til UMFN.
Boðsundsveitin synti mjög
gott sund og fékk tímann
4:15.54 mín. Aðeins tæpar2
sek. frá Islandsmetinu í
þessari grein. Sveitina skip-
uðu þeir Eðvarð, Jóhann
Björnsson, Þórður Oskars-
son og Eiríkur Á. Sigurðs-
Aðrir keppendur frá
UMFN stóðu sig einnig vel.
Heba Friðriksdóttir komst
í úrslit í 100 og 200 m bak-
sundi, hún varð 4. í 100 m
baksundi á 1:15.70 mín. og
síðan náði hún 3. sæti i 200
m á 2:42.49 mín. Ævar
Jónsson, ungur og efnilegur
sundmaður, komst einnig í
úrslit í 100 m baksundi og
varð 8. á 1:15.04 mín. Hann
synti mjög vel 200 m
baksund og komst í úrslit á
sínum langbesta tíma,
2:37.40 mín., bætti fyrri
tíma um 7 sek. Tværungar
sundkonur úr UMFN,
Björg Jónsdóttir og Díana
Hlöðvesdóttir, tóku einnig
þátt í þessu meistaramóti
og stóðu sig með stakri
prýði þó þær kæmust ekki í
úrslit. Stúlkur sem eiga fram-
tíðina fyrir sér í sundinu.
Að lokum má geta þess
að öll framkvæmd við
mótið sjálft var til mikillar
fyrirmyndar og eiga fram-
kvæmdaaðilar, þ.e. SSI og
sunddeild ÍBV, þekkir
skilið fyrir gott og
skemmtilegt Islandsmeist-
aramót. - fó./pket.
l-X-2 l-X-2 l-X-2 l-X-2
Úrslitin hefjast
Góðir lesendur og getraunaspekingar. í dag hefjast úrslitin í getraunaleik Víkur-frétta.
Keppnin um nafnbótina „Getraunaspekingur Víkur-frétta 1986“ stendur yfir í flmm vikur og
þátt taka fjórir efstu spekingar vetrarins. Þeir eru RAGNAR MARINÓSSON, ÓLAFUR
RÓBERTSSON, FINNBJORN AGNARSSON og Studeo-liðið, GÍSLI GUÐFINNS-
SON og BJÖRN ÓLAFSSON. Þeir síðastnefndu félagar gátu ekki gert uppámilli sínfyrrí
vetur hvor ætti að stilla upp röðinni, svo þeir gerðu það saman. Allir þessir keppendur voru
með 7 rétta.
Verðlaunin? Jú, það er búið að ákveða hluta þeirra. Aðalverðlaunin, þau sem „Getrauna-
spekingur Víkur-frétta 1986“ hlýtur, er ferð á bikarúrslitaleik ensku knattspyrnunnar á
Wembley sem fram fer í maí n.k. Ferðina gefur FERÐASKRIFSTOAFN VÍKINGAFERÐ-
IR í KEFLAVÍK.
Úrslitakeppnin verður með sama sniði og sl. 2 ár. Sá sem verður með sem flesta „rétta
Ieiki“ samtals að 5 umferðum loknum, er sigurvegari og fer með Víkingaferðum til Lon-
don. Sigurvegari í fyrra var Inga Birna Hákonardóttir. Hún hlaut samtals 35 rétta í úrslita-
keppninni.
Þátttakandinn í síðustu umferð, Einar Björnsson, fékk þrjá rétta og komst því ekki i
úrslitin.
Við höfum þetta ekki lengra að sinni, heldur skellum okkur í fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar. Hér kemur hún:
Leikir 5. apríl:
Gísli ogBjörn
Ragnar
Olafur
Finnbjörn
Sheff. Wed. - Everton ..
Sout’pton - Liverpool ..
Birmingham - Luton ...
Chelsea - Ipswich ....
Coventry - Man. Utd. ..
Man. City - Arsenal ...
Oxford - Aston Villa
Watford - Newcastle ...
W.B.A. - Nott’m Forest
Huddersfield - Stoke
Hull - Sheff. Utd.....
Shrewsbury - Charlton .
l-X-2 l-X-2