Víkurfréttir - 10.04.1986, Síða 1
KEFLAVÍKURBÆR:
TAPAR 8 MILLJONUM A
GJALDÞROTI HEIMIS HF.
Heildartjón Kefla-
víkurbæjar vegna gjald-
þrots Heimis hf. getur
orðið tæpar 8 milljónir
króna. Það þýðir um 5
þús. krónur á hverja
2ja manna fjölskyldu,
miðað við að virkir
gjaldendur séu um þrjú
þúsund í Keflavík
Af þessari tölu eru um
sex milljónir sem bærinn
þarf að greiða vegna
bakábyrgðar sem veitt
var árið 1983 er fiski-
skip Heimis hf., Helgi
var yfirbyggður í
Siippstöðinm á Akur-
eyri. Að auki tapar
bærinn um 1100 þús. í
ógreiddum aðst.gjöld-
um. Við bætast svo
aðrar ábyrgðir bæjarins
sem eru ógreiddar, að
upphæð 1100 þús. og kr.
350 þús. Mögulegt
heildartjón er því kr.
7.740.000.
Af þessari upphæð
hefur Keflavíkurbær
þegar greitt um 1
milljón, fyrst í des. 1985.
Fram í des. 1986 mun
Keflavíkurbær greiða
um 4 milljónir.
í fjárhagsáætlun fyrir
árið 1986 er gert ráð fyrir
greiðslum að upphæð
5.3 millj. kr. vegna gjald-
fallinna bæjarábyrgða.
Stærstur hluti þeirrar
upphæðar er vegna
Heimis hf. (um 4 millj.),
en afgangurinn vegna
Saumastofunnar Sporið
og Hraðfrystihúss Ól-
afs S. Lárussonar hf., að
því er Steinþór Júlíus-
son bæjarstjóri tjáði
blm. Víkur-frétta.
- En hvenær á að ganga í
ábyrgð og hvenær ekki?
,,Þetta verðuralltafað
vega og meta gaumgæfi-
lega hverju sinni. Bæjar-
stjórn hefur oft verið
gagnrýnd fyri r að veita
ekki bæjarábyrgðir og
þannig ekki nægan
stuðning við atvinnulífið
á staðnum. Þetta má
sjálfsagt deila um, en
svona stórt gjaldþrot
vekur sjálfsagt spurn-
ingar hvort ekki þurfi að
setja ákveðnar reglur í
þessum efnum“.
- Mun þetta hafa áhrif á
framkvæmdir þessa árs?
„Sem þessu nemur,
já“.
- Er þetta alvarlegur
skellur fyrir bæinn?
,,Það hafa margir
farið mun verr úr svona
málum, en þetta cr engu
að síður mjög alvar-
legt“, sagði Steinþór.
Það má í lokin geta
þess tii samanburðar, að
þessi tala, um 8 milljón-
ir, er svipuð og kostar að
reka stærsta dagheimili
bæjarins, Tjarnarsei, á
þessu ári, svo eitth vað sé
nefnt. - pket.
V atnsleysustrandarhreppur:
Tekjur duga ekki
fyrir útgjöldum
12 millj. vantar, þrátt fyrir að búið sé að
skuldbreyta ýmsum vanskilaskuldum
Á borgarafundi sem hald-
inn var í Vogum í siðustu
viku kom fram, að allt þetta
kjörtímabil hefur staða
Vatnsleysustrandarhrepps
verið mjög slæm. Er nú svo
komið að þrátt fyrir að á-
ætlaðar tekjur þetta ár
muni nema 22 milljónum,
vantar tólf milljónir til að
endar nái saman.
Hefur þetta verið að vaxa
allt þetta kjörtímabil og
hafa framkvæmdir hrepps-
ins verið í algjöru lágmarki
það sem af er þessu kjör-
timabili, að sögn Kristjáns
Einarssonar, oddvita og
sveitarstjóra Vatnsleysu-
strandarhrepps. Þá hefur
verið gert mikið átak í að
skuldbreyta ýmsum van-
skilaskuldum undanfarna
mánuði í lán til fimm ára.
í viðtali við Víkur-fréttir
sagði Kristján að vanda
þennan mætti rekja til
nauðsynlegra stórfram-
kvæmda á kjörtímabili því
sem lauk fyrir tæpum fjór-
um árum og voru sveitarfé-
laginu ofviða. í framhaldi
af framkvæmdum þessum
varð að taka óhagkvæm
lán, sem þýddi mikinn
fjármagnskostnað við lán-
töku.
Hefur vandinn síðan
vaxið jafnt og þétt og er
hann nú orðinn geysimikill.
Sagði Kristján að vandan-
um mætti líkja við snjó-
bolta, sem hleður utan á sig
og að lokum hleður hann
orðið margfalt meira utan á
sig en í upphafi.
En hvað telur Kristján að
nú verði að gera?
„Það verður að vinna að
því að koma þessu á lengri
lán, því þessi skuldbreyt-
ingalán sem gerð hafa verið
á undanförnum mánuðum
eru aðeins til fimm ára. Er
því fyrirsjáanlegt að þetta
vandamál mun steðja að
allt næsta kjörtímabil.
Verða því allar fram-
kvæmdir á vegum sveitar-
félagsins í algjöru lágmarki
út það kjörtímabil, svo
hægt verði að leysa vand-
ann“, sagði Kristján. - epj.
BEÐIÐ EFTIR FLÓÐI?
Ljósm.: ()K
Lögreglumenn á Suðurnesjum:
53 hafa sagt upp störfum
Um síðustu mánaðamót
sögðu 53 lögreglumenn á
Suðurnesjum upp störfum
sínum með tilskildum fyrir-
vara. Skiptist þetta þannig
milli embætta, að allir
nema tveir er starfa í Kefla-
vík, Njarðvík, Grindavík
og Gullbringusýslu hafa
sagt upp, eða alls 28 lög-
regluþjónar. Á Keflavíkur-
flugve',i sögðu 25 upp af 42
sem þai eru við störf.
Þessir tveir sem ekkr
sögðu upp í Keflavík eru
yfirlögregluþiónn og að-
stoðaryfirlögregluþjónn, en
þeir eru báðir settir í em-
bættið til eins árs og eiga
því erfiðara um vik en aðrir.
Taka uppsagnir hinna gildi
1. júlí n.k. - epj.
VÍK UR-fréttir
- blað Suðurnesjamanna