Víkurfréttir - 10.04.1986, Page 2
VÍKUR-fréttir
2 Fimmtudagur 10. apríl 1986
V/KUft
Útgefandi: Víkur-fréttir hf.
Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar:
Vallargötu 14, II. hæð - Simi 4717 - Box 125 - 230 Keflavík
Ritstjórar:
Emil Páll Jónsson,
heimasími 2677
Páll Ketilsson, Auglýsingastjóri:
heimasími 3707 Páll Ketilsson
Fréttastjóri:
Emil Páll Jónsson
at
Upplag: 4500 eintök, sem dreift er ókeypis
um öll Suðurnes hvern fimmtudag.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað
er óheimilt nema heimildar sé getið.
Setning, tilmuvinna og prentun: GRÁGAS HF., Keflavik
Fasteignaþjónusta
Suðurnesja
Miðgarður 6, Keflavík: Bragavellir 13, Keflavík:
Gott raðhús, laust strax. Einbýlishús úr timbri.
KEFLAVÍK:
Grunnur undir einbýlishús við Bragavelli. Teikn-
ingar fyrirliggjandi.
2ja og 3ja herb. íbúðir við Heiðarholt, tilbúnar
undir tréverk. Verð frá ................... 1.300.000
2ja herb. íbúö við Heiðarból, lítil útborgun ... 1.350.000
3ja herb. íbúð við Hólmgarð ............... 1.900.000
3ja herb. efri hæð við Faxabraut .......... 1.500.000
3ja herb. neðri hæð við Skólaveg .......... 1.400.000
3ja herb. efri hæð við Baldursgötu ........ 1.600.000
3ja herb. ibúðir við Mávabraut ............ 1.500.000
Góö 4ra herb. ibúð við Mávabraut........... 1.900.000
4ra herb. neöri hæð við Hringbraut með bilsk. 2.100.000
Einbýlishús úrtimbri við Freyjuvelli ...... 2.700.000
GRINDAVÍK:
Úrval eigna á skrá, m.a. Viðlagasjóðshús, rað-
hús, einbýlishús o.fl. Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Úrval annarra eigna á skrá, m.a. í Sandgeröi, Garði,
Vogum og vfðar.
Fasteignaþjónusta Suðurnesja
Hafnargötu 31, II. hæð - Keflavík - Símar: 3441, 3722
ATVINNA
Vantar röska og stundvísa menn til starfa
strax.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
NETAVERKSTÆÐI SUÐURNESJA
Njarðvík
SÖLUMAÐUR
Óskum aö ráða sölumann til starfa við bíla-
söluna til 15. sept. n.k. - Þarf að hafa góða
þekkingu á bílum. - Upplýsingar aðeins
veittar á staðnum, ekki í síma.
Uatnsnesvegi 29A - Kellavik • Símar: 1081. 4888
TOYOTA-umboð á Suðurnesjum
Hitaveita Suðurnesja:
Fyrirsjáanlegur orku-
skortur á næsta ári
- verði ekki farið út í strompgufuvirkjun í Svartsengi
Á aðalfundi Hitaveitu
Suðurnesja sem haldinn var
á Glóðinni sl. föstudag, hélt
Albert Albertsson, fram-
kvæmdastjóri tæknisviðs,
erindi um hvað framundan
væri varðandi raforkuþörf
á Suðurnesjum næsta ára-
tug. Kom fram hjá honum
að vegna aukinnar orku-
þarfar fiskeldisfyrirtækja á
svæðinu væri fyrirsjáanleg-
ur orkuskortur þegar á
næsta ári.
Benti hann á að heppileg-
asta lausnin til að mæta
þessu væri virkjun stromp-
gufunnar í Svartsengi. Er
hér átt við virkjun á þeirri
miklu orku sem nú fer út í
andrúmsloftið um strompa
orkuversins í Svartsengi.
Sagði hann að það tæki
eitt ár að koma þessari
virkjun í gagnið, þ.e. eftir
að ákvörðun hefði verið
tekin um slíka framkvæmd
og leyfi væri fengið til slíkr-
ar virkjunar.
Er því ljóst að nauðsyn-
legt er að hraða ákvörðun-
artöku svo ekki komi til
raforkuskorts þegar á
næsta ári. - epj.
Ólafur Gunnarsson og Brvndís Kjartansdóttir, afgreiðslustúlka.
Iiittinzii
W
Já, hvernig væri það?
Lítt’inn hjá Ola er verslun
og myndbandaleiga sem
hefur aðsetur í nýju og
glæsilegu verslunarhúsnæði
að Hafnargötu 35 í Kefla-
vík. Eigandi er Olafur
Gunnarsson, en hann var
áður með Sjónvarpsbúð-
ina, Hafnargötu 54. Hann
er sem sagt búinn að flytja
verslun sína um set og
breyta nafni hennar, enda
er mest allt nýtt í verslun-
inni og eru innréttingar
glæsilega hannaðar af Guð-
mundi Gunnlaugssyniarki-
tekt. Handbragð hans er að
sjá á fleiri stöðum í Kefla-
vík, m.a. á Glóðinni og
Lang-Best.
Eins og áður segir þá er '
Lítt’inn hjá Óla verslun og
myndbandaleiga. Þar er að
finna úrval hljómtækja,
sjónvarpstækja og mynda-
véla. Fjölbreytt mýndefni á
VHS-spólum sem eru allar
með íslenskum texta.
Það er ýmislegt fleira á
döfinni hjá Óla, en það
kemur í ljós innan tíðar.
pket.
Árnað heilla
Nýlega voru gefm saman í
hjónaband í Dómkirkj-
unni í Reykjavík af sr. Þóri
Stephensen, Sigurbjörg
Þorláksdóttir og Guðmund-
ur Hjálmarsson. Heimili
brúðhjónanna er að Hólm-
garði 2b, Keflavík.