Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.04.1986, Side 9

Víkurfréttir - 10.04.1986, Side 9
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 10. apríl 1986 Ragnarsbakarí: Opnar „kaffi-konditori 1 Keflavík 66 og afgreiðslubúð á Keflavíkurflugvelli Það er mikið um að vera þessa dagana hjá Ragnars- bakaríi, því fyrr í vikunni opnaði það gjörbreyttan af- greiðslustað ásamt „kaffi- konditori“ að Hringbraut 92 í Keflavík og nk. þriðju- dag verður opnuð af- greiðsla á Keflavíkurflug- velli. Meðal nýmæla á Hringbrautinni er sérsmíð- að kökuborð með kælingu í ljósunum sem heldur súkkulaði og öðrum skreyt- ingum þannig að það bráðni ekki yfir daginn. Þá býður Ragnarábakarí upp á þá nýjung að hægt verður að fá ákveðnar teg- undir beint úr ofninum, t.d. formkökur daglega kl. 11 og sérbökuð vínarbrauð kl. 15. En hvers vegna þessar breytingar? Gefum Ragn- ari orðið: „Okkur fannst búðin á Hringbrautinni vera svo kuldaleg eða kjörbúðarleg þar sem alla hlýju vantaði, sem passaði ekki í af- greiðslubúð fyrir sérvörur s.s. kökur. Þá er maður að vona að kaffimenningin sé að hefja innreið sína í Keflavík, en Gunnarsbak- arí hóf fyrst innreið með sérstakt „kaffikonditori“ og munum við nú bjóða líka upp á slíkt“ sagði Ragnar. Eins og áður kom fram opnar hann í næstu viku af- greiðslu á Keflavíkur- flugvelli og mun hann miða Áskorun frá Áhugafélagi um brjóstagjöf á Suðurnesjum: Alþingi samþykki lengingu fæðingarorlofs Aðalfundur Áhugafél- ags um brjóstagjöf á Suðurnesjum, haldinn í Keflavík 22.02.86, og aðal- fundur Áhugafélags um brjóstagjöf í Kópavogi 24.03.86, senda frá sér eftirfarandi ályktun: „Skorað er á 108. lög- gjafarþing íslendinga að samþykkja framkomið frumvarp um lengingu fæðingarorlofs úr 3 mán. í 6 mán., sem lagt hefur ver- ið fram í þriðja sinn, án þess að fá afgreiðslu úr Heilbrigðis- og trygginga- málanefnd efri deildar. Einnig lýsir fundurinn yfir fullum stuðningi við tillög- ur prófessors Helga Valdi- marssonar um brjósta- mjólkurbanka og of- næmisprófanir á nýbur- um og skorar á landlækni að taka tillögur Helga til athugunar." Greinargerð: Áhugafélögin um brjóstagjöf á Suðurnesj- um og í Kópavogi vilja benda á að lenging fæðingarorlofs sé þjóð- félagslega.hagkvæm sé til langs tíma litið. Benda má á erlendar og innlendar rannsóknir sem sýna, að geðheilsu ungra barna sé Vll'AllcifttiU* STERKUR AUGLÝSINGA- MIÐILL hætta búin, ef þau njóti ekki ástríkrar umönnunar foreldra í frumbernsku. Mjög góð leið til að mynda náin tilfinningatengsl móður og barns er brjóstagjöfin. Nýjustu rannsóknir sýna að besta fæðan, og sú eina sem þörf er á, fyrir ungbarnið fyrstu 6 mán- uðina er móðurmjólkin. Ef ofnæmi er ættgengt í fjöl- skyldum nýburans, er móðurinni ráðlagt að besta leiðin til að fyrir- byggja það, sé að hafa barnið eingöngu á brjósti í 6 mánuði. Þarna yrði beinn sparnaður, bæði í innflutningi þurrmjólkur og í lyfja- og lækniskostn- aði, vegna þess að börn sem eru á brjósti verða síður veik, og fá síður of- næmisútbrot og ofnæmi. Við viljum hvetja feður til að nota hluta fæðingar- orlofsins. Það er ómetan- legt tækifæri fyrir föður til að kynnast barni sínu, tækifæri sem ekki kemur síðar í lífinu. Reynslan hef- ur sýnt, að mæður geta haldið áfram brjóstagjöf, þó þær starfi utan heimilis. Það er trú okkar, að gæfist foreldrum lengri tími við góðan fjárhag og góð félagsleg skilyrði til að sinna barni og eigin til- finningamálum myndi slíkt skila sér í betra mann- lífi. Það myndi jafnframt spara þjóðfélaginu ómælt fé, bæði í heilsugæslu og vegna þess að mæður sem hafa börn sín á brjósti verða sjaldnar frá vinnu vegna veikinda barna sinna. þá afgreiðslu við sérþarfir bandaríkjamanna á þessu sviði. Auk þess sem öll sala verður á dollaraverði og er þetta því í raun útflutning- ur á brauði og kökum sem er nýmæli hér á landi. epj. f siðustu viku hófst hreinsun á rústum fiskverkunarhússins sem hrundi hjá Keflavik hf. ádögunum. Ermeðfylgjandimyndtekinvið það tækifæri. - epj. [=i3 MYLLUBAKKASKÓLI Sólvallagötu 6 - 230 Keflavik - Simi 1450, 1141 VORSKÓLI Innritun fyrir böm sem faedd eru 1980 Innritun fer fram í skólanum við Skólaveg eftirtalda daga: Föstudag 11. apríl kl. 14-16 Laugardag 12. apríl kl. 13-15 Mánudag 14. apríl kl. 14-16 Við innritun geta foreldrar fengið að velja um tvö tímabil dagsins, þ.e. kl. 09.00-11.15 og kl. 11.30-13.45. Vorskólahaldið verður vikutími, dagana 12.-16. maí. Skólastjóri I LANDSBANKANUM FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR, ESCUDOS OG LÍRUR HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM (3 g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda okkar vísum. Landsbanki Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum helstu gjaldmiðlum. Við minnum líka á Visakortið, - athugaðu gildistímann áður en þú leggur af stað. Góða ferð. L Islands Banki allra landsmanna Keflavíkurflugvelli, sími 2170 Grindavík, sími 8179 Sandgerði, sími 7686

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.